Fálkinn - 12.03.1943, Side 15
F A L K I N N
15
ii Tilkynning
JJ Vegna síaukinnar aðsóknar utanspítalasjúklinga til
smáaðgerða við minni háttar slysum og öðru, sem nú er
o orðin meiri en svo, að komist verði yfir að sinna, neyð-
o ist Landspítalinn til að tilkynna, að frá 15. næsta mán-
aðar sinnir hann skki slíkum aðgerðum nema í neyðar-
tilfellum. Jafnframt verður með öilu tekið fyrir um-
j; búðaskiptingar og framhaldsaðgerðir á utanspítalasjúkl-
JJ ingum, nema um sjúklinga sje að ræða, sem nýlega hafa
JI legið á spítalanum og fyrir hefir verið lagt að koma til
! > eftirlits.
o Ennfremur tilkynnist, að eftirleiðis verður tekið
gjald af utanspítalasjúklingum, er leita aðgerðar á spít-
j; alanum, og nemur þá gjaldið fyrir hverja aðgerð, auk
JJ læknishjálparinnar, daggjaldi spítalans á hverjum tíma.
!J Reykjavík, 27. febrúar 1943.
o F. h. stjórnarnefndar ríkisspítalanna.
Ö VILM. JÓNSSON.
o GUÐM. THORODDSEN,
X forstjóri Landspítalans.
ARROW
M'ANGETTSRVRTBR
4 (
Hvítar og mislitar
með föstum flibba.
Einnig ljerefts-NÆRFÖT
fallégt úrval.
GEYSIR H.F.
Fatadeildin
Nýkomið stórt úrval af
Vorkápum 09 Swaggerum
Einnig nokkrar DRAGTIR.
SKÍÐABUXUR fyrirliggjandi.
Klæðav. Andrjesar Andrjessonar h.f.
ATHU GIÐ !
Vikublaðið Fálkinn er seldur i lausa-
sölu í öllum bókabúðum og mörgum
tóbaksbúðum, kaffistofum og brauð-
sölubúðum. Snúið yður þangað, eða
beint til afgreiðslunnar, þegar yður
vantar vinsælasta heimilisblaðið —
VIKUBLAÐIÐ ,FÁLKINN‘
Nál Kleopötru
Einu sinni stóð þessi fagri steinn
fyrir framan inusteri sólguðsins i
Heliopolis i Egyptalandi, en nú
stendur hann á Thamesórbakka í
London. Margt hefir á dagana drif-
ið fyrir þessari grönnu bergnál
siðan hún var reist i hinu sólríka
Egyptalandi, ltiOO árum f. Kr. Róni-
verjar ljetn flytja hana lil Alex-
andria og þar stóð hún meira en
1800 ár. Síðan gaf khedivinn í
Egyptalandi Englendingum hana, en
sá galli fylgdi gjöf Njarðar, að ekk-
ert skip var til, sem hægt væri að
flytja hana á. Steinninn vóg sem sje
180 smálestir og var 22 metra lang-
ur, svo að hann rúmaðist ekki i
neinni skipslest. Loks var þó ráþ’ist
í að flytja hann. Var smíðað hylki
utan um hann úr plönkum og með
stálgjörðum, og annað vatnshelt
hylki utanum það fyrra, og svo
stórt að það bar steininn uppi.
Líktist hVlki þetta risavöxnu tund-
urskeyti. Þetta einkennilega „nál-
hús“, sem hlaut nafnið „Kleópatra“
var nú dregið út úr höfninni í Al-
exandríu og sett á það mastur og
klefi. Sex menn voru settir um
borð í hið cinkennilega fley, og þvi
síðan hnýtl aftan í gufuskip, og
hajdið af stað til Englands. Nú gekk
alt stórtíðindalaust þangað til komið
var norður í Biskayaflóa, en þar
skall á ofviðri, og nólhúsið fór á
hliðina og loks þótti óhjákvæmilegt
að skera á dráttartaugarnar. Menn-
irnir sex komust um borð i gufu-
sltipið, en nálhúsið var yfirgefið,
og þótti sýnt, að það mundi von
bráðar lenda á hafsbotni. En það
fór á aðra leið. Þó að stórsjóar
Biskayaflóans ljeki nálhúsið hart,
þá sökk það ekki, og loks náði ann-
að gufuskip í það og dró það til
Vigo á Spáni. Siðan var dráttarskip
sent þangað frá Englandi, og þann
20. janúar 1878 var „Ivleopatra"
komin i höfn í London. Nú stendur
bergnálin á Victoria Embankment
við Thames, skamt frá Waterloo
Station.
Við liið forna sólguðsmusteri i
Heliopolis höfðu staðið tvær berg-
nálar, eða „nálar Kleopötru", sem
svo hafa verið kallaðar. Hina gaf
Ismael Pasha Ameríkumönnum árið
1880 og var hún flutt til New York.
Þegar Rússum tókst að losa I.en-
ingrad úr umsátinni nún^ í vetur,
með því að opna samgöngur við
borgina austur á bóginn, hafði borg-
in verið í herkví i 515 daga. Og tal-
ið er um 1700 þúsundir mana hafi
týnt lífi þar, — sumpart vegna
sprengjuregns og sjúkdóma, en flest-
ir horfallið. Tobrúk var á sinum
tima 252 daga i herkvi, en Sevas-
topol 230 daga. En lengsta umsát,
sem sagan hermir frá, er umsátin um
Trojuborg. Homer segir, að hún
hafi staðið í níu ár. En ekki er ó-
sennilegt, að það sje þjóðsaga.
Stærsta gullmynt í heimi er til i
Japan og heitir „oban“. Hún er 12,5
cm í þvermál og vegur 112 grömm.
\