Fálkinn - 28.10.1943, Qupperneq 1
16 ifðor
Þessiim fleytom fækkar
1 byrjun aldarmnar voru engin vjelknúin fiskiskip til á íslandi, heldur aðeins róðraskip, frá tveggja manna förum upp í tein-
æringa. Síðan komu opnir vjelbátar til sögunnar, og fóru að rgðja róðrarbátunum úr vegi, en stærri þilfarsbátar vjelknúnir og
línuskip komu í stað kútteranna og margir þeirra fengu hjálparvjel. og jafnframt fjölgaði togurunum, hinum stórtækustu fiski-
skipum landsmanná. Bæði í Reykjavík og kaupstöðum og fiskiverum meðfram strönd landsins var það algengt fyrrum að sjá
sjón þá, sem sjest hjer á myndinni: raðir af opnum bátum uppi í fjörukampinum. Það voru á árum þessara báta, sem ungu sjó-
mennirnir tognuðu, sem kallað var, og margur gamall sjómaðurinn kann að segja frá endurminningum um langan og harðan
barning gegn sjó og roki á þessum bátum. Útróðrar voru iþrótt, sem styrktu og stældu margan manninn, en þó mundu fæstir
vilja hverfa að þeirri fiskiaðferð á nýjan leik. — Sumir bátarnir hjer á myndinni eru með vjel.
I