Fálkinn - 26.05.1944, Page 2
2
F Á L K I N N
Guðmundur Bergsson, fyrv. póst-
Gísli Guffmundsson, bókbindari, fulltrúi, nú á Akureyri, varð 75 ára Pjetur Záphóníasson, hagstofuritari, /1. p, Kofoed-Hansen fgrv. skógrœkt-
verffur 70 ára 29. þ. m. 25. þ. m. verður 65 ára 31. þ. m. arstjóri, varff 75 ára 22. þ. m.
Smávegis um
Hyrrahafseyjar
Marianne-e,yjar. Þær eru röð 15
sæbrattra eldfjallaeyja, sem ná yfir
380 mílna vegalengd, frá norðri til
suðurs. Magellan fann þær árið 1521.
Voru þær í fyrstu nefndar Ladrones,
eða Ræningjaeyjar. En meir en
heilli öld siðar voru þær endurskírð-
ar, til heiðurs Mariu Önnu, keisara-
frú i Austurríki.
Giiberts-eyjar eru 16 kóraleyjar,
sem ná yfir um 400 milna svæði
til norður-morðausturs. Þær eru
samtals 168 fermílur að flatarmáli
Hafa stundum gengið undir nafninu
Kongsmyllueyjar. Það var afi Byrons
skálds, John 'Byron, sem fann þessar
eyjar 1765, enda er ein af þeim
kölluð Byronsey. Gilbert var þarna
árið 1788.
New Britain, sem oft er getið í
striðsfrjettum er bogamyndaður eyja-
klasi í Bismarckshafi. Stærðin er
áætluð 9.500 - 13.000 fermilur. —
Djúpt sund er milli þessara eyja og
Nýju Guineu. Það var enski land-
könnuðurinn William Dampier sem
skírði eyjarnar nafninu, vegna þess
að legan minnti hann á legu Ivng-
lands við Ermarsund.
New Ireland er um 180 milna
löng eyja, en breiddin víðast ekki
meira en 10 milur. Hún myndar
nokkurnveginn hálfhring með New
Britain. Philip Carteret fann eyjuna
1767. í samræmi við Dampier skírði
hann hana New Ireland, því að hún
Víkings
HAPPDRÆTTIÐ
Styrkið
íþrótta-
starf-
semina
Aðeins
6 dagar
eftir þar til
dregið
verður f
Þessi fagri sumarbústaður fyrir aðeins 5 krónur. Drátturinn fer fram 1. júní n. k.
Kaupið þvf miða straks f dag
var smærri en England-iSkotland.
New Guinea er næststærsta eyja
í heimi, 1500 mílur frá norðvestri
til suðausturs og um 390 mílur þar
sem hún er breiðust. Nafnið fjekk
hún hjá spönskum könnuðum, um
1545, sem veittu þvi athygli, að
eyjaskeggjar (Papúarnir) voru enn
blakkari en aðrar Kyrrahafsþjóðir
og líkir svertingjum, sem þeir höfðu
sjeð í Guinea á vesturströnd Afríku.
Rootone og Transplantone,
plöntuhormonax og vitamín,
sjálísagt til notkunar við sáningu
og útplöntun
GARÐASTR.2 SÍMI I899
ORÐSENDING FRÁ MÁLI OG MENNINGU :
SlÐARA BlNDl AF
Þrúgur reiðinnar
eftir JOHN STEINBECK
er komið út, eiiuiig TÍMARITIÐ, I. hefii þessa árs.
Efni tímaritsins er að þessu sinni: Grein um
lýðveldisstofnunina, eftir Sigurð Tliorlacius, —
Styrjöld og stefnumið, eftir Sverri Kristjánsson,
Ritdómar, eftir Sigurð Nordal, Halldór Laxness,
Björn Sigfússon o. fl., Kvæði eftir Guðínund
Böðvarsson og Halldór Helgason, Smásaga eftir
Jón Dan, Þýdd grein, eftir Halldór Stefánsson,
úr nýrri bók um frelsisbaráttu Júgóslava. —
Ennfremur flytur Tímaritið frásögn um nýtt rit vísinda-
legs efnis, sem Mál og menning ætlar að gefa út, og birt-
ist einn kafli úr því riti í heftinu í þýðingu eftir Ágúst
H. Bjarnason, prófessor.