Fálkinn - 06.09.1946, Side 7
FÁLKINN
7
Cricket-æfing á Gullströndinni. — Á
Gullströndinni í Afríku leggja blá-
ínennirnir mikla áherslu á likams-
rœkt í skóium sínum. Hérná sést for-
stoðumaður fyrir skóla, sem i senn
'er bændaskóli og kennaraskóli,
sveifla kylfunni á cricket-æfingu í
skólanum.
OG SUMAR. — Honum leiðist
ekki litla snáðanum að tarna, og
móðirin er lika i sólskinsskapi, því
að hvað getur verið indælla að
sumri til en að njóta góðviðrisins■
á baðströndinni?
Herforingjaskifti í Finniandi. - Lund-
quist, hershöfðingi, yfirmaður hers
Finnu hefir nú lagt fram lausnar-
beiðni sína. Meðal þeirra, sem sækja
um stöðnna má nefna hershöfðingj-
ann Aarne Sihvo, sem sést hér við
störf sín.
Fyrir öryrkja. — í Ameríku er reynt af fremsta megni að búa svo
vel i haginn fyrir öryrkja úr stríðinu, að þeir geti lifað án á-
hyggna um afkomu sína. Sérstakga er lögð áhersla á, að þeir njóti
sem bestrar aðhlynningar á meðan þeir eru að jafna sig, svo að þeir
missi ekki kjarkinn og trúna á lífið Hér á myndinni sjást nokkrir öi-
kumla menn, sem eru sjúklingar á spítala sjóhersins í Philadelphia,
sitju niður við tjörn i garði sjúkrahússins og veiða. Fiskarnir hafa
verið fluttir þangað aðeins í því skyni að gleðja sjúklingana.
Tala umferðarslysa hér á landi
hefir á siðustu árnm aukist mjög
frá því, er áður var. Slysahœttan er
orðin eitt af erfiðustu þjóðfélags-
vandamálum okkar, og tikt er á-
'statt hjá flestum öðrum þjóðum.
Óvíða mun þó meira hafa verið
gert að þvi að afstýra slysum eða
hjálpa slösuðum en í Englandi. —
/ borgum eru mjög strangar um-
ferðareglur og úti á landi eru sifeltt
Rauðakross-liðar, sem ferðast eftir
þjóðvegunum, á bilum og mótorhjót-
um, viðbúnir að rétta hjálparhönd
ef slys ber að höndum. Á myndinni
sjást tveir slikir veita litilli stúlku,
sem keyrt hefir verið yfir, fyrstu
hjálp, og hagræða henni, þar tit
sjúkrabillinn kemur.
Farið sparlega með öll matvæli. —
Nú á dögitm er maturinn og öflun
hans eitt helsta umræðuefni í flest-
um löndum heims. Börnin spyrja:
„Fáum við nokkuð að borða í dag?"
fstendingdr œttu að vera þess minn-
ugir, að gæta hófs í mat og sjá um
að sem minnst fari til spitlis, einnig
væri gott að skýra þessi mál fyrir
sumum íslenskum börnum, sem hafa
sælgœti að vild en leyfa svo af mál-
tíðunum vegna ofeldis. — Myndin
sýnir nokkur svettandi börn við
læknisskoðun.
SILFURVATN heitir þetta vatn oy
er í Engadine-dalnum i Sviss. Eig-
andi þess ætlaði að virkja það, en
þá hefði hin rómaða fegurð þess
tapað öllu sinu gildi. Þá var það,
að Náttúrufriðunarfélagið svissneska
skarst í leikinn. Súkkulaði var fá-
gæt vara i landitiu á slríðstímuniim
og þess vegna skammtað. Félagið
fékk nokkurn hluta af súkkulaði-
birgðum hersins, lét gera heiðurs-
pening úr súkkulaði og seldi hann
á hálfa miljón franka, og keypti
vatnið fyrir. Efri myndin er af
Silfurvatni, en sú neðri af súkku-
laðipeningnum.