Fálkinn - 04.04.1947, Side 2
2
FÁLKINN
\[ýjÁ'Hraurt'(l878)
v/.ViV ’
hraunf
■StööÉwar. ý
MerlökooU^'
-fiPfPfyQ
■*<t~.v*rZ{ :rr4’. , ? r.* ^
IIKKI-A
RAUI
í'olar*
\oe/izrhjolt
wm
UámcMÍ£íUxr:>
tmrn
■ootnaíjöU
Kríuri fe;Í76.6 "67
Hluti af korti fínðm. Kjatanssonar : Hekta og ndgrenni.
Hekla hefir nú vaknað af
102 ára dvala og byrjað að gjósa
aftur. Gosið byrjaði laust fyrir
kl. 7 á laugardagsm. og vakn-
aði fólk víða austanfjalls við all
snarpan jarðskjálftakipp, sem
var undanfari gossins. Margir
lijuggust þá við meiri jarð-
liræringum en orðið hafa. Fyrri
hluta dags steig gosmökkurinn
í 10-12 km. hæð, en siðan hefir
hæð reykjarstróksins verið mjög
mismunandi. Aðalgosstöðvarnar
telja jarðfræðingar vera í
sprnngu á fjallshryggnum, og
liggur hún til norðausturs. Gos-
stöðvarnar virðast ná nokkuð
niður i hlíðarnar að ausían og
norðaustan, og þar vellur hraun-
ieðjan glóandi niður. — Hraun-
tungur læsast einnig niður að
suðvestan, en ekki eru efstu
hæir í Landsveit, Næfurholt,
Haukadalur og Selsund, þó tald-
ir í bráðri hættu. Fólk liefir
samt verið flutt þaðan, því að
hæði gefa gosdynkirnir ekki
svefnfrið og hætta er á myrkv-
un, ef vindátt liggur á hæina.
Öskufallið var talsvert í aust-
ursveitum Rangárvallasýslu og
Vestmannaeyjum fyrsta gosdag-
inn, cn nú virðist hafa dregið
úr þvi. Fróðir menn telja, að
litil liætta sé á öskufalli hér í
ReykjaVik eða nærsveitum vegna
þess að vindátt er sjaldan mjög
austlæg á suðurlandi.
Fjöldi manna hefir farið flug-
leiðis austur yfir Heklu til að sjá
náttúruhamfarirnar, og verður
það öllum ógleymanleg sýn. —
Strax á laugardag fóru bílar svo
lmndruðum skipti austur vfir
fja.ll, en komust misjafnlega
langt vegna umferðaröngþveitis-
ins. Á sunnudag fór fréttamað-
ur Fálkans austur snemma morg
uns í hópi 90 háskólastúdenta,
og dvaldist hópurinn þar uns
aldimmt var orðið.
Fyrrihluta dags var mistur
mikið í lofti ýfir láglendinu, og
gosmekkirnir sáust ekki rnjög
langt að. Þegar kom austur í
Gnúpverjahrepp, tóku goslivell-
irnir að magnast, og upp við
Gaukshöfða og Ásólfstaði heyrð-
ust sífelldar drunur í fjallinu.
Fréttamaður Fálkans liitli
Þorvald Águstsson frá Ásum i
Gnúpverjahreppi að máli, og
skýrði hann frá þvi, að laust
fyrir kl. 7 á laugardagsmorgun
hafi hann vaknað við snarpan
jarðskjálftakipp og klætt sig í
snatri, gengið út og litið til
austurs. Stóð þá gosmökkurinn
Séð til Heklu. (Ljósm.: Porst. Jóse psson).