Fálkinn - 04.04.1947, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
Lifandi kross. — Á kirkjuhátíð í
New York mynduðu 1700 ungar
stúlkur með kyndla í höndunum
þennan kross, sem líkist risastóru,
geistandi hálsmeni.
Nunniír við uppskeruvinnu.
begar vorar í Ölpunum. — Það vor-
ar oft snemma i Ölpunum, og það
er aðeins ]>ar, sem stíka hrífandi
sjón er að sjá, blómstrandi tré í snjó.
Þraut á þraut ofan. Frost og fann-
kingi og síðan þíðviðri með stór-
flóðum hefir mætt hart á ensku
þjóðinni að undanförnu. — llér
sjást sríðsfangar ryðja veg með
snjóplóg.
Erkibiskup heimsækir Þýskaland —
Æðsti klerkur grísk-kaþólsku kirkj-
unnar i Bretlandi og Vestur-Evrópu,
Germanos erkibiskup heimsótti ný-
lega Þýskaland. Iíér sést hann við
guðsþjónustu í Bad-Nauheim.
Leiksýning í kirkju. — / kirkju einni i London hefir nýlega verið sýnt
leikrit, sem er trúarlegs eðlis. Hér sést Maria mey koma með Jesú-
barnið i predikunarstólinn.
Hraunflóðið úr Etnu. Fyrir skömmu vaknaði eldfjallið Etna á Sikitey af
dvala, og setti það mikinn ótta í fólk þar syðra. Mynd þessi er tekin
þegar straumleðjan vellur inn i þorp eitt við fjallsræturnar. Þorps-
búar hafa tínt saman pjönkur sínar og lagt á flótta, en nokkrir standa
enn við hraunjaðarinn og horfa á leðjuna eyða híbýlum þ.eirra.
Etnugosið. Við hið nýafstaðna gos
úr eldfjallinu Etnu mynduðust nýir
gigar og talsvert hraunflóð fylgdi
gosinfi. Þessi mynd etr tekin úr
flugvél við eitt gosið.
........'
■ ÍK, ,, ' ' •//,/
ýXVfý/.
Flóðin í Englandi. Svona var umhorfs í útborginni Putney við London, þegar þíðan kom. Vatnsflaumurinn
rann eftir götunum og inn í húsin. Verra var þ.ó ástandið víða með Thems-ánni og Severn, þar sem vatna-
vextirnir urðu svo stórkostlegir að annað eins hefir ekki þekkst síðuslu mannsaldra.