Fálkinn


Fálkinn - 02.07.1948, Síða 7

Fálkinn - 02.07.1948, Síða 7
FÁLKINN 7 Eftirsótt frímerki. — 1 tilefni silfiirbrúðkaups bresku kon- ungshjónanna hafa verið gefin úl sérslök frímerki í Englandi. Eru það 2V-2 pence frimerlci og 1 punds frímerki og mynd er á þeim af konungshjónunum. Hér sést punds frímerkið, sem vafalaust verður mjög eft- irspurt af frímerkjasöfnurum. Sjóslysið í Kattegat. — Loftmynd af danska skipinu „Kjöbenhavn", sem fórst á tundurdufli í Kattegat, er það var á leið milli Kaupmannahafnar og Álaborgar. Skipið var statt um 2 klst. siglingu frá ströndinni. Um borð voru Ú50 manns, og í fyrstu var talið að á annað hundrað manns liefðu farist, þótt reyndin yrði sú, að þeir voru töluvert innan við hundrað. Er þetta eitt hið mesta sjóslys, sem 'orðið hefir á Norðurlöndum. FYRIR GIFTINGUNA EFTIR GIFTINGUNA Þegar Michael og Anna giftust. — Hinn 10. júní vai'ð loksins af því að Michael, fyrr Rúmena- konungur og Anna af Bourbon-Parma, dóttir René prins og afkomandi Kristjáns IX. væru gefin saman, og var það Damaskinos erkibiskup Grikkja sem gaf þau saman í konungs- höllinni í Aþenu. Eiríkur Danaprins var svaramaður brúðarinnar en foreldrar hennar voru ckki viðstödd. En það voru hinsvegar grísku konungshjónin. Prinsessan var með ennisdjásn Helenu Rúmenadrottningar og hálsfesti, sem samsett var úr ýmsum krúnugimsteinum frá Rúmeníu. — Foreldrar brúðarinnar höfðu gefið samþykki sitt til ráðahagsins en það er tal- ið Xaviev afa brúðarinnar að kenna að þau þorðu ekki að koma í brúðkaupið. Hann gerir sem sé kröfu til ríkis á Spáni og vill hafa páfann góðan, en páfinn lítur með vanþóknun á að Anna prinsessa, sem er páfatrúar, giftist grísk-kaþólskum manni, og hefir heyrst að páfinn muni jafnvel gera hjónabandið ógilt. Miss Evrópa. - Þessi stúlka dæm ist vera fegursta stúlkan í Ev- rópu eins og stendur. Hún liafði áður verið kosin fegurðardrottn ing Frakklands. Bogmenn keppa. — Eftir 5 ára hlé hefir hin hefðbundna boga- skotkeppni i Ville-Noble, skammt frá París, verið tekin upp að nýju. 1 sambandi við keppnina er venjulega fjöl- breytt útiskemmtun fyrir hér- aðsbúa, og bogmenn á öllum aldri taka þátt í keppninni. GÓÐ ATVINNA. Það fylgja ýmisskonar bögglar því skammrifi að vera milljóna- mæringur, meðal annars sífelld aðsókn af betlurum. Milljónamær- ingarnir í New York hafa því ekki símanúmer sín í skránni, heldur leyninúmer. En í sömu borginni er maður sem heitir Archibald Ferguson og er sérstaklega laginn á að snuðra upp þessi leyninúmer og selur þau síðan fyrir hátt verð. Enginn veit hvernig hann kemst yfir þessi númer, en hitt er þraut- reynt að hann á heilt safn af þeim. Ríku mennirnir hafa hvað eftir annað heimtað af lögreglunni að hún gerði manninn „óskaðlegan" en enginn lagabókstafur er til, sem hægt er að hegna honum samkvæmt.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.