Fálkinn


Fálkinn - 02.07.1948, Page 8

Fálkinn - 02.07.1948, Page 8
8 FÁLKINN HANA dreymdi eina nóttina, hún lá milli svefns og vöku. Það var eitthvað með votan, sleipan stiga — háa smíðapalla í hrá- slagalegu háreystarmyrkri. Og allt í einu var hrópað. Einhver hrópaði í neyð. Hún þekkti röddina. Það var Haraldur, einkasonur hennar, sem var í Kanada. Hann hrópaði og bað um hjálp. — Mamma! hróp- aði hann. — Mamma! Tvisvar sinnum — í síðara skiptið var hann alveg hjá henni. Hún heyrði það greinilega — heyrði hve hræddur hann var. . Svo var líkast og myrkrið hryndi saman. Gljáandi votir plankarnir hrundu og allt varð kyrrt. Hún vaknaði og tók fyrir brjóst sér. Hjarta hennar barðist svo að heyrðist um herbergiskytruna. Svitinn bogaði af enninu og kroppnum. Hún skalf af kulda og reyndi að gráta, en gat það ekki. Kverkarnar herptust saman. Hún gat ekki komið upp nokkru hljóði. En hræðsluópin hljómuðu enn fyrir eyrunum á henni. Loksins gat hún samt gefið frá sér hljóð. Maðurinn hennar bylti sér og umlaði í svefninum. Sneri sér hálfvegis á hlið og spurði hvað um væri að vera. — Eg veit ekki, svaraði hún. Mig dreymdi svo illa. Það var eitt- hvað með hann Harald. — Með ’ann Harald? — Já, mig dreymdi að hann væri að hrópa á hjálp. — Hm. — Maðurinn svaraði ekki undir eins. En hann var nú glaðvaknaður líka og góndi upp í loftið. — Ætti eitthvað að vera að honum Haraldi þá, heldurðu? Þú fékkst bréf frá honum í fyrri viku. Og þá ætlaði hann að hætta í námunni, sagði hann og fara í akstur. Og svo kemur hann heim fyrir jólin. — Já, ég veit það — En mig dreymdi svo greinilega. Það var alveg eins og hann stæði hérna við rúmstokkinn og hrópaði inn í eyrað á mér. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM Ritstjóri: Skúli Skúlason íVamkv.stjóri: Svavar Hjaltested Skrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210 Opin virkn daga kl. 10-12 og 1-6 Blaðið kemur út hvern föstudag Allar áskriftir greiðist fyrirfram HERBERTSprenf — Hm. — Maðurinn spennti greiparnar yfir bringuna. Skegg- broddarnir á sterklegri, beina- mikilli hökunni skrjáfuðu við á- breiðuna. — Já, sagði hann, — þetta er ekki annað en það, sem svo oft kemur fyrir mann. Þú verður að reyna að sofna aftur. Og á morg- un ertu búin að gleyma þessu. Það hefir ekkert misjafnt komið fyrir hann, eins og þú skilur.... En hún gat ekki sofnað. Hún lá og var að hugsa um þetta, sem hana hafði dreymt. Haraldur var ekki nema barn þegar hann fór. Nú hafði hann verið burtu í fimm ár. Hann hafði verið heppinn, haft gott kaup og lagt peninga fyrir. Hann hafði verið líkt honum að gera þetta — hlífa öðrum og þræla sjálfur. En nei, þá væri þetta lygi, og hann hafði ekki lagt það í vana sinn að ljúga, hann Haraldur, ekki gat hún minnst þess. Bíðum nú hæg, hvernig stóð í bréfinu, að hann œtlaöi að byrja með bílinn aftur. Það stóð ekki að hann vceri byrjaður. Og svo gat eitthvað hafa komið fyrir á síðustu stundu. Ef til vill hafði orðið slys . .. . Æ, nei, hún mátti ekki hugsa svona. Allt hafði gengið svo vel þessi fimm ár, sem hann hafði verið að heiman. Hún mátti ekki æðrast og fara að verða hrædd núna, þegar ekki voru nema nokkrir mánuðir eftir. ANDREAS ERIKSEN: K R N A D A orð á því að hann ætlaði að borga út jörðina, þegar hann kæmi heim aftur. Og svo ætlaði hann að breyta húsinu, setja á það nýtt þak og hækka risið. Það var mein- ingin að gera herbergi á efra loft- inu. Hann tók djúpt í árinni í bréf- unum sínum, teiknaði og útskýrði. Hann hafði alltaf verið fullur af hugmyndum og athafnaþrá. Hún efaðist ekki um að hann mundi koma þessu í framkvæmd. En henni líkaði ekki það, sem hann hafði fyrir stafni núna. Hún hafði alltaf verið óróleg síðan hún frétti um það. Hún vildi helst að hann yrði ökumaður aftur. Hann afsakaði sig með því að hann græddi tvöfalt meira á þessu en akstrinum. Ojá, það var nú svo. — En hún taldi nú að heils- an væri dýrmætari en allt annað. Hann gæti dottið niður og drep- ið sig, eða það sem verra var: hrapa og verða örkumlamaður alla sína ævi. Gæti hann ekki far- ið varlega í þessa tvo mánuði, sem hann átti eftir þarna? 1 síðasta bréfinu hafði hann loksins látið undan. Hann skrif- aði að nú ætlaði hann að byrja með bifreiðina aftur. Og síðan hafði hún verið rólegri. Hún varð svo örugg og glöð.... Þangað til hana dreymdi þetta núna í nótt. Nú setti að henni grun. Skyldi hann bara hafa sagt þetta til þess að gera hana rólega? Það gat Haraldur, já. . blessaður dugn- aðardrengurinn. — Hún brosti hlýtt og ánægjulega, þarna sem hún lá. Það var svo mikið undir því komið, að hann kæmi heim .... Þremur dögum síðar fékk hún símskeytið. HÚN STÓÐ úti á stétt og var að þvo keröldin þegar það kom. Það var Gunnar, sonur hennar Rannveigar í Hvammi, sem kom með það. Hann veifaði því í hend- inni og kallaði langar leiðir: — Símskeyti til þín, Magnhild- ur! Þú hefir fengið símskeyti frá Kanada! — Símskeyti, segirðu. . ? Frá Ka. . . . Henni varð bylt við. Henni kom undir eins í hug draumurinn. Hún fann hvernig fæturnir urðu mátt- lausir, svo að hún varð að styðja sig við bæjarþilið. Svo harkaði hún af sér. Það var ekki sæmandi að haga sér svo að ókunnugum ásjáandi. Hún strýkur hárið frá enninu, gengur tvö skref fram á hlaðið og þurrkar hendurnar á strigasvuntunni. — Má ég sjá, segir hún og strýkur um ennið einu sinni enn. Drengurinn réttir henni skeyt- ið. Hann horfir forvitinn á hana. Þetta er í fyrsta skipti, sem hún heldur á símskeyti. Og svo er það meira að segja frá Kanada. — En ég get ómögulega opnað það! segir hún ráðalaus. Hún svipast um eftir einhverju til að skera með og ætlar að skreppa inn eftir skærum. — Notaðu hárnál, segir dreng- urinn. Hún þuklar á hárinu og finnur eina, missir hana niður, sér hana ekki og þuklar aftur upp í hárið eftir annarri. Með titrandi höndum rífur hún þunnan merki- bleðilinn á skeytinu. — Það opnast ekki samt, hróp- ar hún og er nú orðin æst. Hún þekkir ekki öll þessi brot. Stendur og eltir stinnt blaðið í höndunum þangað til það er orðið rakt af svita. — Eg skal hjálpa þér! segir drengurinn. Bróðir hans fékk sím- skeyti þegar hann var fermdur í fyrra, svo að hann veit hvernig á að fara að þessu. Hann réttir úr brotunum, hverju eftir annað. Það er eitthvað bogið við það seinasta. Hann verður að nota nöglina og kippa fast í. — Æ, þú mátt ekki rífa það fyrir mér! Æ, rífðu það ekki, nei! Að þetta skuli vera svona marg- brotið. Aldrei hefi ég nú séð ann- að eins! Hún stappar niður fætinum af ákafa og tvístígur á meðan. Loks er hann búinn og réttir henni skeytið. Hún þrífur það með ákefð. Augu hennar verða star- andi og óeðlilega stór, hún heldur niðri í sér andanum og segir ekki eitt einasta orð. — Nei, en .... nei, en .... hvað er nú þetta! segir hún loks- ins. — Eg skil ekki eitt einasta orð. Nú getur drengurinn ekki stillt sig lengur. Hann lýtur fram og les. Hann ætlar að reyna að hjálpa henni. — Útlenska? segir hann á báð- um áttum og starir á Magnhildi og símskeytið á víxl. Magnhildur svarar ekki. Hún kreistir pappírsblaðið, rennir nið- ur munnvatninu en gefur ekki frá sér nokkurt hljóð. Dóra frá Dal gengur veginn — Herra forstjóri — -— ég er kominn hérna viðvíkjandi kaup~ hœkkun ........

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.