Fálkinn


Fálkinn - 19.11.1948, Blaðsíða 7

Fálkinn - 19.11.1948, Blaðsíða 7
FÁLKINN 7 YHCtfftf U/eNbURNIR Haf eyðimerkurinnar. Eyðimörkin Sahara er stundum kölluð „haf eyðimerkurinnar“ eða vatnslausa liafið, vegna þess hve stór og tilbreytingalaus hún er, og er þetta í samræmi við nafnið „skip eyðimerkurinnar“, sem úlfaldanum hefir verið gefið. Sá sem ætlar sér að fara frá Alzír til Timbuktu verð- ur að ferðast 1900 krn. leið yfir þurra, heita sanda. Mestur hluti Sahara er óbyggilegur bæði inönn- um og skepnum og þó er þetta flæmi um 7 sinnum sfærra en ís- land, Noregur og Svíþjóð til sam- ans. Stundum koma þarna stormar, sem eru 40—50 stiga heitir, og þá eiga mennskir menn erfitt með að draga andann. Slagæðin herðir á sér og rakinn gufar úr líkamanum, svo að maður verður óbærilega þyrstur. Þó er talið að 2—3 millj- ónir manna eigi heima i Sahara, og eru það hirðingjar sem flytja sig á milli ,,óasanna“ eða vinjanna í eyðimörkinni en vesturhlutinn er gersamlega óbyggilegur. Sahara er eins og stórt brúnt haf, þvi að sandarnir eru gáróttir og öldumyndaðir. Og einu sinni var haf þar, sem eyðimörkin er nú. Það sér maður m. a. á þvi, að víða finnast þar leifar af skeldýrum, sem nú eru aigeng í Atlantshafinu. Indíána-bragð. Þetta bragð, sem Irokesa-Indíán- arnir eru sagðir höfundar að virð- ist ofur létt, og þó má ekkert út af bera ef það á ekki að mistakast. Það er sem sé i því fólgið að binda bandi um tré, sem hnifur hefir ver- ið rekinn í. Þegar hnifurinn er dreginn út dettur bandið af trénu, eins og það hefði aldrei verið bund- ið um það. Þið sjáið á myndinni hvernig er farið að þessu. Listin er fólgin í því að iáta réft band liggja ofan á. HJALP I VIÐLOGUM 3. í bænum skammt þarna frá átti að halda markað daginn eftir og vit- anlega ætluðu Óli og Níls að fara þangað. Þar skutu þeir til marks, róiuðu sér, fóru i hringekju og átu heitar vöfflur með berjasultu. Þeir skemmtu sér í stuttu máli prýðilega. Allt í einu 'tóku þeir eftir því að fólk hnappaðist saman skammt frá þeiin og hlupu þá þegar til þess að sjá livað um væri að vera. Þeir héldu að þetta væri einhver skemmtisýn- ing', en það var nú eitthvað annað. Það liafði sem sé liðið yfir ungan pilt þarna i troðningunum. Og nú tók Óli til sinna ráða. 4. Hann sá undir eins að piltur- inn var afar föiur og réði af því að blóðið hefði streymt frá höfð- inu. Þessvegna lét hann hann liggja flatan, iosaði um fiibbann hans og mittisólina og iyfti síðan fótunum á honum eins liátt og hann gat. Einhver kom hlaupandi og ætlaði að gefa sjúklingum vatn að drekka, en Óli afstýrði þvi, af því að hann vissi að aldrei iná hella vatni ofan i meðvitundarlaust fólk •— það get- ur farið ofan i barkann. Hinsvegar er gott að hella ofuriitlu af köldu vatni á andlit mannsins og láta hann lykta af kainfórudropum eða salmí- aki, ef siikt er við hendina. Hefði sjúklingurinn verið rjóður í framan átti að iiækka höfuðið og beygja fæt- urna niður, svo að blóðið rynni frá höfðinu. Framh. Ógæfufuglinn hans Adamsons. Skrítlur — Álítur prófessorinn að ég fái nokkurntíma tækifæri til að hafa gagn af röddinni í mér? — Já, ef þér lendið í hafsnauð, frú. — Jæja, hvenær koma þessar 48 krómir, sem þér skuldið síðan sein- ast? DÍONNE-FIMMBURARNIR urðu 14 ára 28. mai, en ekki var nein afmælisveislan því að telpurn- ar voru allar að búa sig undir inn- tökupróf í inenntaskólann, og tóku það i júni. Allar eru þær orðnar stórar Anetta, Cecilie, Emilie, Marie og Yvonne. Þær hafa gaman af — Ljómandi falleg klukka — mað- urinn minn segir að hún hafi einu sinni verið í eigu greifafrúar. En hún getur bara ekki gengiðl — Þeir eru að yfirvega að lækka derðið á gistihúsunum ivivaiiV/v hljómlist og leika á skólaleikjunum og iðka íþróttir. Pabbi þeirra hefir kennt þeiin að lijóla og þær hafa fengið að læra á skautum. Hinsveg- ar hefir gamli maðurinn bannað þeim að iðka knattspyrnu — en þær gera það samt.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.