Fálkinn - 21.01.1949, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
Geitafegrun. -— Telpunni finnst
geitin ekki nógu fín og er því
, að snyrta hana áður en hún
fer með liana á landbúnaðar-
sýningu í Olympia í London.
Percy beið ósigur. — Þegar borgarstjórinn í London tekur við embætti 9 nóvember er jafnan
mikið um dýrðir í borginni og hátíðleg skrúðganga um göturnar. Núna síðast skeði það við
þetta tækifæri að 100 læknisstúdentar frá Bartolomew Hospital vildu fá að vera með í skrúð-
göngunni með ,,verndarvætt“ sína, risavaxinn fíl úr pappa. En lögreglan vildi ekki leyfa
þetta og tók fílinn, sem heitir „Percy“ af stúdentunum og ók honum burt á vörubifreið. —
Áhorfendurnir skemmtu sér ágætlega og gleymdu sjálfum borgarstjóranum á meðan.
Til vinstri:
Til hægri:
Óeirðir í Frakklandi. — Franska
stjórnin hefir látið hart mæta
hörðu í viðureigninni við verk-
fallsmenn. Þessi mynd er frá
Bethune í Norður-Frakklandi
og sjást tveir verkfallsmenn
vera að hjálpa félaga sínum,
sem særst hefir í viðureign við
lögregluna.
Abdullah konungur í Jerúsalem. — Abdullah, konungur Transjordaníu, kom nýlega til Jerú-
salem og gekk til bæna í Omar musterinu. Sést hann hér á leið til bænahaldsins. Fremst til
vinstri er herstjóri Araba í Jerúsalem, Abdullah Bey al Tell.
Hemingway í Venezia. — Hinn
frægi ameríski rithöfundur Ern-
est Hemingway er um þessar
mundir í ltalíu og sést hér í
Venezia með fjórðu konunni
sinni. Þrátt fyrir leiðindaveður
virðist hann vera í besta skapi.
Hemingway hefir nýja bók l
smíðum og hefir lokið við
fyrstu 250.000 orðin.
Juan D. Peron, forseti Argen-
tínu, sem vann mikinn sigur
við síðustu kosningar i landinu.