Fálkinn - 15.04.1949, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Bornavínafélagid SamargjoJ
25 dro
í þessum mánuði eru 25 ór liðin
frá stofnun Barnavinafélagsins Sum-
argjöf, og minnist félagið afmæl-
isins með útgáfu myndarlegs rits
um sögu félagsins og starf. Gils Guð-
mundsson, rithöfundur liefir ann-
ast samningu ritsins og leysir það
starf itijög vel af hendi.
skóla- og vistgjöldum þeirra, sem
notið hafa starfsemi Sumargjafar.
Það yrði langt mál, ef farið væri
ítarlega út í hina fjölþættu starf-
semi Sumargjafar á liðnum 25 ár-
um. Hér verður aðeins drepið á ör-
fá atriði, en fróðleiksfúsum mönn-
um skal bent á rit Gils Guðmunds-
j
Steingrimur Arason, formaður Sum-
argjafar 15 fyrstu árin.
ísak Jónsson, formaður Sumargjafar
10 síðustu árin.
Barnavinafélagið Sumargjöf var
stofnað 11. apríl 1924, en formlega
var gengið frá lögum þess 22. apríl.
Stofnendur voru 30. Tilgangurinn
með félagsstofnuninni er skv. félags-
lögum sá, „að stuðla að andlegri og
líkamlegri lieilbrigði og þroska
barna í Reykjavík og vernda þau
fyrir óhollum áhrifum.“ Til þess
að treysta þennan tilgang félagsins
hefir Sumargjöf m. a. komið á fót
dagheimilum, leikskólum, vöggustof-
um og vistarheimilum fyrir börn,
gert ráðstafanir til þess að ritað
væri um uppeldismál og aðbúnað
barna og beitt áhrifum sínum gagn-
vart löggjöf landsins á sem heilla-
ríkastan hátt fyrir börnin. Fjár til
starfsemi sinnhr hefir Sumargjöf
aflað með skemmtunum og blaða-
og merkjasölu ó sumardaginn fyrsta,
en auk þess hefir ríkis- og baijar-
sjóður styrkt starfsemina mjög vel
siðustu árin. Ekki má svo glcyma
sonar til þess að fá frekari innsýn
i starf félagsins og sögu.
Fyrsta dagheimilið var rekið í
Kennaraskólanum sumarið 1924—
1927, og barnafjöldinn var 35—50.
Síðan lá rekstur dagheimilisins niðri
fram til ársins 1931 vegna húsnæð-
isskorts. En þá var hafist lianda um
byggingu Grænuborgar, sem fékk
lóð i oddanum milli Laufásvegar og
Hringbrautar. Fram til ársins 1936
var Grænaborg eina dagheimilið og
barnafjöldinn orðinn 134 það ár.
Síðan bættust fleiri dagheimili við.
Vesturborg 1937, en árið áður hafði
dagheimili verið rekið í Stýrimanna-
skólan'um. Á fyrstu stríðsárunum
var um stundarsakir rekið dag-
heimili á Amtmannsstíg 1 og einnig
í Málleysingjaskólanum. Síðan komu
dagheimilin í Tjarnarborg (1941) og
Suðurborg (1943), og voru hin þá
Frh. á bls. U.
Börnin skoða myndablöð.
Suðurborg.
Grænaborg.
Vesturborg.
Tjarnarborg.