Fálkinn


Fálkinn - 15.09.1950, Blaðsíða 11

Fálkinn - 15.09.1950, Blaðsíða 11
FÁLKINN 11 VITIÐ 'ÞÉR . . ? v S> «8 í sjóhestafjölskyldunni er það karldýrið, sem ungar út eggjunum. Kvendýrið verpir eggjunum i út- ungunarpoka karldýrsins og þar frjógvast þau. Og þegar unginn skrið- ur úr egginu ojjnast pokinn og ungarnir synda á burt. Sjóhest- inum, sem telst til „nálafiskanna" er lýst þannig, að hausinn sé eins og á hesti, skottið eins og á apa, kviðpokinn eins og á kengurú, roðið eins og á grásleppu og augun eins og á kameljóni. — Hér sést þessi einkennilegi fiskur i þeim stelling- um sem hann er venjulega í sjón- uin. að í U.S.A. er sérfræöingur í stjörnu- hröpum? Hann heitir Nininger og er sér- staklega laginn á að finna loftsteina og á orðið mikið safn af þeim. Sá stærsti vegur 79 ensk pund. — Sjái Nininger stjörnuhrap símar hann í ailar áttir til að fá menn til að fylgjast með livar loftsteinninn komi niður. Siðan fer hann á staðinn og leitar að steinunum með sérstöku rafsegultæki. Líka kaupir hann gamla loftsteina og borgar að jafnaði cinn dollar fyrir pundið í þeim. Hér á myndinni sést hann vera að vega stein, sem liann liefir nýlega komist yfir. S YKRUN GSGRÍSINN. Frh. af bls. 10. til, að ég liefi sykurstangatöfrastaf- inn minn með mér. Eg er nefni- lega töframær. Eg skal koma Peter í samt lag. Mér hefir enn ekki mis- heppnast það, sem ég hefi lagt hönd að.“ Foreldrar Peters urðu afarglöð, er þau heyrðu þetta. Þau héldu þá aftur til sódavatnslækjarins, og var álfkonan lijálpfúsa, í fylgd með þeim. Þau námu staðar hjá sykur- klessunni, eða líkinu af Peter. Álfkonan sveiflaði töfrastafnum nokkrum sinnum yfir sykurkless- unni. Og smám saman stækkaði kless an. Það leið ekki á löngu þar til hann Peter hafði fengið fulla stærð og sömu lögun og hann hafði liaft. Hann lifnaði við. Þarna stóð Peter snarlifandi og jafn digur og áður. Aðeins ein breyt- ing hafði orðið á honum. Annar framfótleggurinn var úr súkkulaði en ekki ljósrauðum sykrungi eins og áður liafði verið. En súkkulaðifóturinn var eins góður og hinir. Foreldrar Peters sögðu að þessi breyting væri heppileg. Súkkulaði- fóturinn minnti hann alltaf á það, að hann mætti aldrei vaða út í sódavatnslæki, eða annað því likt. Peter langaði til að lifa, og fór gætilega að ráði sinu það sem eftir var ævinnar. Og það ættu allir að gera.. SUSSIE. Frh. af bls. 9 kvöldsins og mæla hitann í Suss- sie á ný. Spilamennirnir fengu lampa á borðið, og Almeida gerði sér til gamans að erta Braganza, sem tók allt svo nærri sér, ýmist með því að tala óvirðulega um hann eða segja að liann liefði rangt við. Braganza stóð upp, mjög móðgaður, og varði æru sína með mjög liáfleygum orðum. — Spilaðu nú út, rugludallur- inn, sagði Almeida, og Braganza leit ráðalaus kringum sig, sett- ist aftur og taldi trompin sin 3nn einu sinni. Almeida hafði gaman af honum, en hló ekki, og spilið gekk sinn gang. Bak við föður sinn lá Sussie í strigastól og horfði á þá svört- um sljóvum augum. Hún var vakandi og hafði lifnáð við aftur. Fölvinn var kominn í kinnarnar aftur og augun lif- andi. En fínu drættirnir höfðu skýrst. Dularfullt merki þess að hún hefði enn vaxið og væri önnur en fyrir tveimur timum, ríkari og meiri kona .... Og allt í einu gerðist dálítið, sem gaf lækninum nærri ofboðs- legan grun um að hún hefði alls ekki verið veik, en að lifið hefði þvert á móti hleypt ólgu í blóð liennar og það væri allur „hitinn“. - iTÍSKUMYNDm - AUGLÝSING. Þetta stóð í ensku blaði: „Hann er kannske dauður núna. Ef ekki þá vil ég benda mótorhjólaranum, sem tróð sér milli bilsins mins og strætisvagnsins, á það, að ekki er það góðum óskum mínum að þakka, af liann er lifandi enn. Takið eftir baksvipnum. — Jac- quet Fath hefir lekið upp á því að hneppa lausum dúlr aftan á treyjuna. Ermarnar eru einnig sérkennilegar úr mörgum lögum af rykktu silki. Við kjól- inn skal nota hvíta háa hanska. Sýnishorn frá Jacques Fath. — Það er ekki einungis í sam- kvæmum sem notaðir eru lilýra lausir kjólar, heldur einnig á heitum sumardögum eru þeir hreinasta fyrirtak. Hann getur t. d. eins og þessi verið tjós meðdökkum dropum og dökkum hnöppum. Og gott væri að hafa við hann ermalausan frakka eins og þann sem liér er sýnd- ur cf ske kynni að drægi fyr- ir sólina. Ferðafrakkinn. —- Þessi fallegi frakki frá Valmajor-Lavin sýn- ir nýja sniðið með hringskorið herðastykki og % langar, víðar ermar. Öxlin er smásneidd og löng. Bakið vitt og frakkinn virðist ágætur til að hafa utan yfir dragt. Sýnishorn frá Dior. - Christian Dior sýnir hér snotran sumar- jakka. Takið eftir háum kraga, láréttri fellingu eða broti fram- an frá og undir hönd, stóru víðu vösunum og lokafelling- unni neðarlega á hliðarsaum- unum. Framhald á bls. 14.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.