Fálkinn - 11.01.1952, Blaðsíða 2
FÁLKINN
')
CnbóriH Halldðrsdóttír dttræð
Giinnþórunn Halldórsdóttir.
Hinn 9. jan. átti hin vinsæla leik-
kona, Gunnþórunn Halldórsdóttir
áttræðisafmæli. í tilefni afmælisins
efndi ÞjóðleikhúsiS til sýningar á
„Gnllna hliðinu“ eftir Davíð Stefáns-
son og vihli með því lieiðra hina
áttræðu merkiskonu, en hún fer
með hlutverk Vilborgar grasakonu
í því.
Gunnþórunn hefir i meira en hálfa
öld verið í hópi fremstu og þekkt-
ustu leikara Reykjavíkurbæjar. Hún
kom fyrst fram á sviði 6. jan. 1895
i Breiðfjörðsleikhúsi og lék ])á tvö
hlutverk, Sigríði frá Stuðlabergi í
„Systkinin i Fremstadal“ eftir Tnd-
riða Einarsson og Helgu í „Hjá
höfninni“ eftir Einar Benediktsson.
Þegar leikfélagið, sem stóð að
leikjunum i Brciðfjörðsleikhúsinu,
leystist upp, gekk Gunnþórunn,
ásamt ýmsum fleiri, sem í leikfé-
laginu höfðu verið, í félagsskap við
leikara úr góðtemplarareglunni og
stofnuðu Leikfélag Reykjavíkur ár-
ið 1897. Hjá því félagi hefir Gunn-
þórunn lpyst af hcndi geysimikið
Gunnþórunn í hlutverki Vilborgar i
„Gnllna hliðinu“.
o.
Gunnþórunn í hlutverki Grímu í
„Jósujat“.
starf, og skal ekki farið út í það
hér að telja upp allan þann lilut-
verkafjölda, sem hún hefir farið
með. A 50 ára afmæli félagsins 1947
var hún gerð að heiðursfélaga þess
ásamt Friðfinni Guðjónssyni. Voru
þau hin einu, sem ennþá voru starf-
andi af stofnfélögum Leikfélags
Reykjavíkur. Um aldarfjórðungsskeið
starfaði Gunnþórunn þó ekki hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Skal ekki
farið út i það hér að rekja þá sögu,
sem bak við það liggur, en þá (á
árúnum 1920—’30) lék Gunnþórunn
við mikinn orðstír og almennar vin-
sældir í revyum Reykjavíkurannáls
h.f. Yfirleitt fór mikið orð af henni
í gamanleikjum og þeir eru margir,
sem eiga góðar minningar um marga
skemmtunina í Góðtemplarahúsinu,
þar sem Gunnþórunn söng og lék
‘gamanhlutverk inn í hjörtu fólksins.
GANDHI-DÝRIÍUN í INDLANDI.
Sænski trúbragðasöguprófessorinn
dr. Sunlder, ,sem nýlcga hefi-r verið
við rannsóknir í Indlandi, segir að
Gandhi-dýrkun fari þar mjög í
vöxt. Við dyr fjölda mustera standa
líkneski af Gandhi, og þess verður
varla langt að bíða að þau verði
flutt inn í musterin, segir prófes-
sorinn.
AMERÍSKT!
Keðjubréfafáraldur með dálítið
einkennilegu sniði geysar í Dallas í
Bandaríkjunum um þessar mundir.
Fólk fær bréf sem hljóðar svo:
„Sendið sem fyrst sex vinum yðar
eitt cintak hverjum af þessu bréfi,
og jafnframt einar nærbuxur þeim,
sem efstur stendur á nafnalistanum.
Þegar nafn yðar stendur efst á lista
muðuð þér fá sendar 36 nærbuxur.“
BORÐSIÐIR.
Hollenskur mannfræðingur hefir
reynt að gera áætlun um hvernig
mannkynið matist, og kemst að
]>eirri niðurstöðu að 37% allra íbúa
jarðarinnar noti fingurna eina til að
koma í sig fæðunni. 20% nota
prjóna (Kínverjar o. fl.) en aðeins
16% hníf, skeið og gaffal. Og 21%
nota þessar þrjár aðferðir i sam-
ciningu.
IIAGUR EFTIRKOMENDUNUM.
Yfir 108 milljón skógarplöntur
voru gróðursettar i Englandi og
Skotlandi á árinu sem leið, á 220
hektara svæði. Er þetta mesta gróð-
ursetning siðan 1918. Breska skóg-
málanefndin hefir tryggt. sér 6.700
hektara land til skógræktar siðan
1919.
r
HAppdrœtti Háskóím Tslonrfs
Hlutum í happdrættinu hefur verið fjölgað. Nú eru
^OOOO númer — 10000 víoningnr á nri
I
'v
'v
70% af söluverði happdrættismiðanna er úthlutað í vinninga.
Þriðja hvert númer hlýtur vinning á árinu.
Vinníngar eru skattfrjálsir (tekjuskattur og útsvar).
UMBOÐSMENN í REYKJAVÍK:
Arndís Þorvaldsdóttir, kaupk., Vesturgötu 10. Sími 6360.
Bókaverslun Guðmundar Gamalíelssonar, Lækjargötu 6 A. Sími 3263.
Bækur & ritföng, Austurstræti 1. Sími 1336. (Áöur Austurstr. 14, Carl
D. Tulinius & Co.).
Elís Jónsson, kaupm., Kirkjuteig 5. Sími 4790.
Helgi Sívertsen, Austurstræti 10. Sími 3582.
Kristján Jónsson, kaupm. (Bækur & ritföng). Laugavegi 39. Sími 2946.
Maren Pétursdóttir, frú, Versl. Happó, Laugavegi 66. Sími 4010.
Pálína Ármann, frú, Várðarhúsinu. Sími 3244.
Verðið er óbreytt: 1/1 hlutir 20 kr., /2 hlutir 10 kr., '/ 5 kr. á mánuði .
Viðskiptamenn hafa forgangsrétt að númerum sínum til 10. jan. Eftir þann tíma er heimilt að
selja þá öðrum. — Sleppið ekki númerum yðar!