Fálkinn - 11.01.1952, Síða 9
FÁLKINN
9
Hin fræga sópransöngTcona Rosita Serrano, sem oft er kölluð„næt-
urgálinn frá Chile“ er um þessar mundir á hljómleikaferð um 30
borgir í Vestur-Þýskdlandi. Hún hóf söngferil sinn í Berlín 1938 en
varð að flýja land 19J/3. Hér sést hún ásamt undirleikara sinum,
Kurt Wege, og er að æfa sig. Á gitarnum hennar sést fangamark
Gústafs V. Svíakonungs, sem hann krotaði sjálfur, er söngkonan
söng fyrir konunginn árið 191/2.
sinn. — Sá látni las lika það
sem á legsteininum stóð. Svo
tók hann lítinn stein upp úr
ganginum, ofurlítinn hrúna-
hvassan stein, og fór að stafa
út bókstafina með mestu var-
úð. Þeir hurfu smátt og smátt
og með tómum augnatöttunum
góndi hann á blettinn, sem þeir
höfðu staðið á. Svo skrifaði
hann með livassa endanum á
kögglinum, sem einu sinni hafði
verið vísifingur, með sjálflýs-
andi bókstöfum:
Hér livílir Jacques Olivant,
dáinn 51 árs gamall. Hann
■ flýtti, með hrottaskap sínum,
fyrir dauða föður síns, af því
að hann vildi komast yfir
eignir hans. Hann plágaði
konu sína og pyntaði börn-
in sin, sveik nágranna sína,
rændi alla sem hann komst
í færi við, og dó glataður.
Þegar beinágrindin haf-ði lok-
ið við skriftina, stóð hún eins
og stytta og leit yfir handaverk-
in sín. Þegar ég leit við sá ég
að allar grafirnar stóðu opnar
og allir hinir dánu voru risnir
upp úr þeim, og allir höfðu
skafið út áletranirnar, sem ætt-
ingjar þeirra höfðu látið höggva
á legsteinana, og i staðinn liöfðu
þeir skrifað sannleikann. Eg sá
að allir liöfðu kvalið náunga
sína, að þeir voru barmafullir
af mannvonsku, óheiðarlegir
hræsnarar, lygarar, þorparar,
rógberar, öfundssjúkir, og að
þeir höfðu stolið, svikið, gert
sig seka um alls konar lúalegan
og viðbjóðslegan verknað, þess-
ir góðu feður, þessar tryggu
eiginkonur, ástúðlegu synir,
hreinlífu dætur, þessir heiðar-
legu kaupsýslumenn, þessir
menn óg konur, sem kölluð eru
fyrirmyndir. Á þröskuldinum til
eilífs lífs skrifuðu þau öll sann-
leikann, hræðilegan og lieilagan
sannleikann, sem þau virtust öll
ekki hafa vitað hvað var, með-
an þau lifðu.
Eg hélt að hún mundi líka
hafa skrifað eitthvað á legstein-
inn sinn, og nú flýtti ég mér
milli liálfopinna líkkistanna,
milli kroppanna og beinagrind-
anna, að gröfinni hennar, sann-
færður um að nú mundi ég finna
hana.
Eg þekkti hana aftur undir-
eins, þó að andlit hennar væri
liulið undir líkklæðinu, og á
marmarakrossinum, sem ég
hafði áður lesið á:
Hún elskaði, var elskuð og dó,
las ég nú:
Einu sinni í rigningu f.ór-hún
út til þess að halda fram hjá
elskhuga sínum. Hún ofkældist
og dó.......
Það er sagt að um morguninn
hafi ég fundist meðvitundarlaus
á gröfinni liennar.
STJÖRNULESTUR
Eftir Jón Árnason, prentara.
Vetrarsólhvörf 1951.
ALÞJÓÐAYFIRLIT.
Yfirgnæfandi meiri hluti pláneta
er í loftsmerkjum. Bendir á að ráða-
gcrðir miklar verði á döfinni og
snúist þær mjög um utanrikismálin
og viðskipti þjóða á milii. Nálega
allar plánetur eru i aðalmerkjum,
sem bendir á mikið athafnalíf og
framkvæmdir á alþjóðavettvangi.
Virðast áhrif þessi sterkust í Mos-
kóvu oig Tokýó. — Afstaðan til ís-
lenska lýðveldisins virðist athuga-
verð. Sól er í 4. húsi og hefir slæm-
ar afstöður. Bændur undir örðugum
áhrifum. Júpiter i 7. húsi. Slæm
áhrif á utanríkismálin og fjárhag-
inn gangvart öðrum löndum. Koma
áhrif þessi frá stjórninni og ráð-
cndunum.
Lundúnir. — Sól í 7. húsi. —
Ilefir slæmar afstöður. Áframhald-
andi örðugleikar í viðskiptum við
önnur riki og kemur það einkum
illa við fjármálin og frá áhrifum
sljórnarinnar og þingsins. — Úran
í 1. húsi. Mjög slæm afstaða. Urgur
C'S óeirðir, verkföll, lögbrot og uppi-
vaðsla gegn ráðendum, tafir og töp.
— Tungl, Satúrn, Mars og Neptún
í 5. húsi. Örðugleikar miklir og á-
berandi í rekstri leikhúsa, leikarar
og leiklist undir gagnrýni og óvænt-
ar misgerðir koma i ljós i þeim
greinum. :— Venus í 6. húsi. Vafa-
söm afstaða fyrr verkamenn og
vinnuþiggjendur. Andstaða frá þing-
inu og framkvæmd utanríkismál-
anna. — Júpiter i 11. húsi. Deilur
um trúmál og stjórnin gæti tapað
við atkvæðagreiðslu i þinginu.
Berlin. — Sól í 6. húsi. — Slæm
afstaða fyrir verkamannastéttina.
Veikindi áberandi. Háttsettur em-
bættismaður gæti látist. — Júpíter
í 10. húsi. Hefir slæmar afstöður
sem bendir á fjárhagsörðugleika
mikla og eiga þeir margvíslegar or-
sakir. — Mars, Satúrn, Neptún og
Venus i 5. húsi. Afstöðurnar yfir-
leitt slæmar. Leikhús og leikstarf-
scm undir örðugum áhrifum, kostn-
aður mun aukast og tekjur rýrna
og saknæmir verknaðir koma í Ijós
í rekstri þessara stofnana. -—• Úran
í 1. húsi. Slæm afstaða og bendir
á undirróður og saknæma verknaði,
sprengingar af rafmagni og verkföll.
Orói meðal almennings. Tungl i 4.
húsi. Slæm afstaða fyrir landbún-
aðinn og afstða stjórnarinnar slæm.
Moskóva. ■—■ Sól i 6. húsi. •—-
Slæm afstaða fyrir verkamenn og
vinnandi lýð. Á það rót sína í til-
tektum ráðendanna og fjárliagsleg-
um þvingunum. — Tungl, Satúrn,
Mars og Neptún i 4. húsi. Satúrn er
hér sterkastur i áhrifum. Örðugleik-
ar miklir meðal bænda og landsbún-
aðarstarfsmanna. Saknæmir verkn-
aðir koma i ljós, barátta og urgur
á sér stað i þessum efnum. — Ráð-
endurnir eiga i örðugleikum mikl-
um. — Júpiter í 10. liúsi. Hefir
slæm áhrif á aðstöðu ráðendanna
og andstaða gegn þeim mun færast
i aukana. — Venus í 5. liúsi. Slæm
áhrif á leiklist og leikara. — Úran
í 12. lnisi. Sprenging gæti átt sér
stað í betrunarhúsi, spítala, vinnu-
hæli og fangabúðum.
Tokýó. ■— Sól i 3. liúsi, ásamt
Merkúr. •— Samgöngur, póstur, sími,
fréttaflutningur, útvarp, blöð og
bókaútgáfa undir áberandi áhrifum
og mun fjárhagsaðstaða þessara
starfsgreina að ýmsu atliugaverð.
— Tungl, Satúrn, Mars og Neptún í
1. húsi. Allar afstöðurnar mjög at-
hugaverðar. Urgur og óánægja mun
gera vart við sig. Tafir og truflanir
koma í ljós í starfsemi almennings
og lieilsufarið athugavert. Hitasóttir
gætu komi til greina og undangröft-
ur og misgerðir koma í ljós og verða
heyrinkunnar. — Venus í 2. húsi.
Líklegt að fjárhagsmálin og við-
slcipti bankanna séu athugaverð,
tekjur rýrni. — Úran i 9. húsi. Slæm
afstaða með tilliti til utanlandssigl-
inga. Sprenging gæti átt sér stað í
flutningaskipi.
Washington. — Sól í 10. húsi.
Stjórnin á í örðugleikum miklum og
benda þeir á vandkvæði í fjárhags-
málum og munu þau áberandi við-
fangsefni. Merkúr er einnig í húsi
þessu og mun liann draga nokkuð
úr slæmum áhrifum. -— Venus i 9.
húsi. Ætti að liafa góð áhrif á utan-
landssiglingar og verslun. •—■ Júpiter
í 1. húsi. Slæm áhrif á afstöðu al-
mennings og heilsufarið hæpið. Á-
greiningur um trúmál. — Úran í 5.
húsi. Leikhús, leikarar og leiklist
undir slæmum áhrifum. Sprenging
gæti átt sér stað í leikhúsi eða i
skemmtistað.— Satúrn i 8. húsi. •—
Bendir á dauðsfall meðal háttsettra
eldri manna og hershöfðingi kunn-
ur gæti látist.
ÍSLAND.
6. hús. — Sól, Merkúr og Venus
eru í húsi þessu. — Órói meðal
verkamanna og veikindi áberandi.
Gamall þjónn hins opinbera gæti
látist. Þó gæti verið að Merkúr og
Venus drægju eitthvað úr þessum
áhrifum.
1. hús. —- Úran í húsi þessu. —
Óróleiki er sýnilegur meðal almenn-
ings, skemmdarverk unnin, sak-
næmir verknaðir, ikveikjur og
sprengingar. Uppreisn gegn valdhöf-
um og truflun friðarins.
2. hús. — Tungl ræður húsi þessu.
— Hverfleiki í fjármálum og óvissa
ríkjandi og hætt við auknum út-
gjöldum og minni tekjum. Bankar
undir örðugum áhrifum. Úran mun
auka þessi þessi áhrif að mun.
3. hús. — Tungl ræður húsi þessu.
— Líklegt að erfiðleikar komi í ljós
í fréttaflutningi, póstgöngum, út-
komu bóka oig blaða. Óánægja nokk-
ur mun koma i ljós meðal starfs-
manna í þessum greinum.
4. hús. — Sól ræður húsi þessu.
—Hcfir slæmar afstöður. Stjórnin á
i örðugleikum og andstaðan vex.
Landbúnaðrinn undir örðugum á-
hrifum.
5. hús. — Plútó er í húsi þessu.
—• Leiklist og leikhús undir sérkenni
legum áhrifum og ýmislegt gæti kom-
ið upp á yfirborðið sem nú er liulið.
7. hús. — Satúrn ræður húsi þcssu.
— Er ekki beinlínis heppileg af-
staða fyrir utanrikismálin og með-
ferð þeirra. Tafir og óvænt atvik
geta komið til sögunnar sem valda
iruflunum.
8. hús. — Satúrn ræður húsi þessu.
— Lítil líkindi til þess að rikinu
áskotnist gjöf eða arfur á þessum
tíma.
Frh. á bls. 11.
í