Fálkinn - 13.06.1952, Blaðsíða 11
FÁLKINN
11
(ZS&
— Eg hefi alltaf haft gaman af að
saga úr krossviði.
ii
i
Sendiferðabifreið gleraugnaverslun-
arinnar.
— Eg held áreiðanlega að það hafi
verið hérna, sem við töluðum um að
hittast.
— Þessi maður var svo kurteis að
fylgja mér heim, Arnalía!
//Cfnrðuvínn okkttv",
Verjið kdlíð Jjrir bdlmaðkínum
Kálflugan líkist venjulegri stofu-
flugu að útliti. Hún verpir hvítum,
aflöngum eggjum (sem likjast víum
fiskiflugunnar) efst í moldina inn við
rótarhálsinn á káljurtum og rófum.
Byrjar varpið oft um miðjan júní, en
talsvert fer það samt eftir tíðarfari.
Úr eggjunum koma kálmaðkarnir, sem
síðan naga kál og rófur til stór-
skemmda, eins og kunnugt er. Mest
eyðileggja þeir af blómkáli, en drepa
einnig oft hvitkál og naga rófurnar
alveg fram á haust.
Varnir: Oft gagnar að flytja kál-
reitinn, einkum ef hægt er að færa
liann alllangt írá maðkasvæðunum.
Lyktarmikill búfjáráburður 'hænir flug
urnar að. Góð ræktun óg ör vöxtur er
auðvitað til bóta. Rótarháls hvítkáls-
ins trénar þegar það er orðið allstórt,
svo að maðkarnir vinna þá siður á
því. Lyf eru mikið notuð til varnar.
Gamalreyndu lyfin sumblimat (1 gr.
uppleyst i lítra af vatni) og ovicide
(2,5 gr. í litra af vatni) eru notuð til
þess að eyða eggjum kálflugunnar. Er
vökvað með öðruhvoru þeirra kring-
um káljurtirna-r, þegar egg kálflug-
unnar sjást. Moldin á að blotna alveg
inn að stöngli og rótum, en ekki má
vökvinn koma á blöðin. 1 lítri nægir á
Nú stendur yfir langmesti anna-
tíminn við alla garðræktun. Öllum
undirbúningi fyrir gróðursetningu
þarf að vera lokið næstu daga. Reynsla
undanfarinna ára hefir sannað að
besti útplöntunartíminn fyrir sumar-
blómin er fyrsta vika júnimánaðar.
I>á eru að öllum jafnaði verstu vor-
kuldarnir um garð gengnir og von
á hlýrra og betra tiðarfari.
Það hefir sýnt sig að það er mikil
áhætta að gróðursetja sumarblóm í
garða i maímánuði hér sunnanlands,
eða strax um miðjan maí eins og
sumir liafa gert. Iíomi kulda- og liret-
viðrakast eins og oft vill verða um
það leyti, kemur það mikill kyrking-
ur í plönturnar þótt þær lifi það af, að
þær ná sér ekki aftur og fara ekki
að vaxa fyrr en um eða eftir mitt
sumar, hefir þá mánuður af þeirra
vaxtartima farið til einskis. Þetta er
i langsamlega flestum tilfellum hægt
að fyrirbyggja með því að miða gróð-
ursetningartíma sumarblómjurtanna
aðallega við fyrstu viku júnimánað-
ar, þótt hitt kunni að lánast ef vor-
ið er sérstaklega gott. Þetta atriði
vil ég að allir leggi ríkt á minnið
bæði seljendur og kaupendur. Að vísu
geta stjúpmæður og bellisar er stað-
ið hafa i opnum reitum þolað það að
vera snemma gróðursettar í skjól-
góða garða en allur er þó varinn
góður að vera ejiki of bráður að gróð-
ursetja út í kuldann.
Um leið og gengið er frá beðunum
fyrir gróðursetningu og allur búpen-
ingsáburður hefir verið pældur nið-
ur, eru allir graskantar skornir til,
fram með öllum beðum og gangstíg-
um, verkið er framkvæmt eftir snúru,
skerinn er með beinu skafti og boga-
dreginn fyrir eggina. Nauðsynlegt er
12—15 jurtir. Vökva þarf tvisvar eða
þrisvar með viku millibili. Súblímat
má ekki vera á málmíláti og er mjög
eitrað, svo að varlega þarf að fara
með það. Ovicide er tjöruolíublanda.
Nýlegu lyfin D. D. T. og Gammexan
dreifa með liendinni eða duftdælu,
en vinna ekki á eggjunum. Þess vegna
þarf að byrja á notkun þeirra áður en
flugan verpir, (10. til 14. júní í meðal-
árferði, cða strax þegar búið er að
gróðursetja kálið í garðinn). Þessum
lyfjum má dreifa þurrum meðfram
kálröðunum eða hræra þau saman við
vatn og vökva með þeim. Hægt er að
dreifa með hendinni eða duftdælu,
svo að aðeins sjáist grána. Eftir 10—14
daga þanf að dreifa á ný og helst í
þriðja sinn á blómkál og rófur. Gamm-
exan má aðeins nota i fyrstu umferð,
því að ella geta a. m. k. rófur fengið
óbragð af því. Siðan má nota DDT
(Gasarol) eða eingöngu DDT. Sum
lyktarmikil efni t. d. tjara og naftalín
fæla flugurnar frá og er nokkur vörn
að þeim, ef þau eru oft endurnýjuð.
En örugg eru þau ekki.
Lengst þarf að halda áfram að nota
varnarlyfin við rófur, en grænkál er
harðgerðara.
Ingólfur Davíðsson.
að kantskerinn sé vel beittur. Trú-
legt er að i framtíðinni verði notað-
ir vélknúnir kantskerar, eða kant-
skerar sem 'hægt er að festa. við vél-
knúin tæki til dæmis sláttuvél. Öll-
um grasræmum sem skornar liafa
verið af er sjálfsagt að safna saman
í sérstakan haug og láta þær rotna,
verður úr því með tímanum ágæt
mold, ef haugurinn er stunginn um
öðru hvoru.
Eftir að búið er að kantskera með
fram beðunum og búið er að stinga
þau upp, er tilbúna áburðinum dreift
yfir og hann rakaður niður um leið
og jafnað er til i beðunum fyrir gróð-
ursetningu.
Uppstunga í trjá- og blómabeðum er
verk sem þarf að framkvæma af mik-
illi vandvirkni svo að ræturnar skadd-
ist sem minnst, er þá grunnt stungið
upp, rétt losað yfirborð moldarinnar,
en þó það mikið að hægt sé að hylja
búpeningsáburðinn sem borinn hefir
verið í beðin um leið.
Hirðing blómjurta yfirleitt er fyrst
og fremst fólgin i því að lialda beð-
unum hreinum við allt illgresi, að
binda upp þær jurtir sem þess þarfn-
ast og vökva i þurrkum.
Visnar og afblómstraðar greinar
eru klipptar burtu jafnóðum, og hjá
mörgum tegundum mun sú hirða hafa
i för með sér að hliðarsprotar þrosk-
ast betur og jurtin heldur áfram að
blómstra.
Til þess að blómgunartimi liverrar
jurtar geti orðið sem lengstur er enn
fremur nauðsynlegt að klippa burtu
alla afblómstraða knúppa þvi að fræ-
myndun tefur fyrir að nýjar greinar
blómstri. Munið að garðurinn ber
liúsbóndanum vitni.
Sigurður Sveinsson.
TISKUMYNDIR
í kjól og hvítt. Marenblá sumardragt
frá Raphael, opinn jakki og hvítt pique
vesti með háum flibba og slaufu, má
einnig hneppast með einum hnapp á
brjóstinu. Pilsið er eins og nú tíðk-
ast mjög þröngt um hnén.
Reglulega fínn taftkjóll. Treyjan nær
á mjaðmir og ermarnar eru með pok-
um á öxlunum. Tvöfaldur kragi og
rykkingar á belti. Pilsið brúsar út af
rykkingum og að aftan er slaufa. —
Allar eru þær karlakærar.
Doktor Ethel Duke er læknifræði-
legur ráðunautur fyrir nýgift fólk,
og hlýtur því að vera treystandi til
að vita hvað hún segir um kvenfólk
gagnvart karlmönnum. í ræðu sem
hún hélt í Bedford nýlega sagði hún,
„Við vitum allar, að við eigum að
biða þangað til einhver kemur og bið-
ur okkar — en það er skylda okkar
að koma manninum til. Við verðum
að sitja um karlmennina, brosa til
þeirra og gefa þeim undir fótinn. Ef
stúlka gerir það ekki þá sýnir það
ekki annað en að liún er ekki heil-
brigð.“
Mesti annatíminn