Fálkinn - 11.07.1952, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
Hinn brosti aðeins. Hinn leiftrandi
augnasvipur gaf þó til kynna, að hann
þyrfti lítið til þess að reiðast.
„Ertu nú afbrýðisamur, Jerry?
Annars kemur röðin nú að þér. En
þú verður að leyfa Elisabetu að livíla
sig dálítið. Hún hlýtur að vera
þreytt.“
Elisabet bar þó engin þreytumerki.
Hún heyrði greinilega ekki það, sem
var sagt. Hún leit á Michael Panister
og sagði hvasst:
„Hvað gengur eiginlega að yður?-
Er ekki munkurinn kominn í klúbb-
inn! Á þetta að tákna það, að þér haf-
ið svikið meginreglur yðar og œtlið
að snerta forboðna ávexti?"
Michael horfði á hana með hrifn-
ingu og samúð.
„Elísabet, viljið þér dansa við
mig?“ spurði hann titrandi röddu.
„Nei, góði minn. Eg ætia að dansa
við Jerry Briggs. Getið þér ekki séð,
að hann er i slæmu skapi. Hann er
óheyrilega grófur í framkomu, en
með einhverju verður maður að end-
urgjalda gestrisnina. Annars er ó-
þarfi fyrir yður að hafa áliyggjur út
af mér, Michael. Eg get vel haft gæt-
ur á mér sjálf. Þér ættuð að fara heim
— það er kominn háttatími fyrir
yður.“
„Hvers vegna liæðist þér að mér?“
sagði Michael lágri röddu. „Sjáið þér
ekki, hve mikið það særir mig?“
Hún yppti öxlum, sneri sér snöggt
við og tók vindling, sem Querita rétti
henni, og kveikti í honum á vindlingi
þeim, er hann reykti. Svo sneri hún
sér aftur að Panister.
„Mér þykir það leitt, kæri Michael,"
sagði liún kæruleysislega „en mér
er ómögulegt að venja mig af því að
gera ofurlítið að gamni mínu. Eg er
vafalaust hræðileg manneskja, en
mér þykir gaman að þvi að særa
fólk.“ Svo breyttist svipurinn og aug-
un leiftruðu af reiði.
„Hver hefir sent yður liingað í
kvöld?“ spurði hún höstugum rómi.
Hann fór undan í flæmingi.
„Hvers vegna þarf ég endilega að
vera sendur? Get ég ekki vera kom-
inn að eigin hvöt?“
„Yður geðjast ekki að svona stöð-
um,“ sagði hún. „Þér munduð aldrei
koma hingað af frjálsum vilja. Játið
þér bara, að þér liafið verið sendur!“
, IJver ætti að hafa sent mig?“
Hún blés reykjarmekki framan í
hann.
„Eg veit það ekki,“ sagði hún, „en
mig grunar, að þér liafið talað við
minn elskulega gest. Þá liafið þér
vafalaust fengið að heyra mikið
heimskulegt þvaður um mig. Þér vor-
uð ennþá heima, þegar ég fór. Játið
þér nú, að þér liafið lalað við greifa-
ynjuna og hún hafi sagt yður ýmis-
legt um mig.“
„Elísabet," sagði Michael blátt á-
fram, „hún hefir miklar áhyggjur út
af yður og henni þykir vænna um
yður en þér haldið. Hún hefir lika
sagt mér, hvaða bönd það eru, sem
binda ykkur saman.“
Elísabet flcygði vindlingnum. Hún
varð fyrst sótrauð í framan og svo
snjóhvít.
„Hvernig dirfist hún!“ sagði hún
titrandi af reiði. „Hvernig dirfist hún.
Við liöfðum samþykkt að minnast ekki
á það. Hvaða rétt hefir hún til þess
að gera slíkt. Hún hefir glatað þeim
rétti fyrir mörgum árum. Hún er mér
ekkert og ég henni ekkert. Það gerir
mig æsta í skapi, að hún skuii hafa
leyft sér að segja yður þetta.“
„Þér eruð mjög reið og mjög ósann-
gjörn,“ sagði Michael. „Hún er eina
manneskjan í allri veröldinni, sem
hefir rétt til þess að tala við mig um
yður, einkum þegar luin veit, hvers
virði þér eruð mér —- að við eigum
eftir að giftast.“
Cerald Briggs var staðinn upp og
kom nú til þeirra.
„Mér sýnist þið vera i svo hátið-
legum samræðum," sagði hann. „Hvað
er að. Elísabct0 Annars er dansinn
byrjaður og þér voruð búnar að lofa
mér dansinum.''
„Eg ætla að hvila mig þennau fians,“
sagði Elíísabel kuldalega. Þér getið
setið liérna hjá mér og spjallað við
mig, ef þér viljið, Jerry,“ sagði hun
og horfði bcint i augu Michaels
Það skein ögrun og grimmd úr svip
hennar
„Þér eruð na'ði þreytulegur og leið-
inlegur.“ sagði hun. „Þér ætiuó áreið-
anlega að fara heiin. Við kærum okk-
ur ekki um leiðin’.ega gesti hérna, ér
það, Jerry?“
En Gerald Pr'ggs var i vond'i skapi.
„En hvers vegna viljið þér ekki
dansa við mig? Þér dansið alltai við
Querita — nú er það minn dans. Þér
ættuð að leika hciðarlegan leik, Elisa-
bet.“
„Jæja, þá það. Við skulum ljúka
þessu af.“
Hún fór frá Michael án þess að
segja orð, en hún brosti um öxl lil
Benito Querita,
„Þér verðið að koma og bjarga mér, ‘
sagði hún.
Siðan sveif hún út á dansgólfið.
Michael Panister var einn ettir, yfir-
bugaður á sál og líkama. Hann skiögr-
aði til dyranna og afþakkaði boð uin
að að setjast hjá stúlku við eitl af
næstu borðum. Querita horfði hæðnis-
lega á eftir honum — en ])á mátti
greina öfund i háðssvipnum. Michael
ba reitthvað það með sér, sem Querita
og lians líkar geta aldrei náð þrátt
fyrir fegurð sína og glæsileik.
Kvöldsvalinn hressti Michael. Hann
vorkenndi þó og hataði sjálfan sig
i senn. Honum varð líka hugsað til
móður Elísabetar, sem hafði sagt, að
hún vildi ekkert fremur en að hann
og Elisabet giftust. En hún hafði jafn-
framt látið í ljós ótta um það, að hún
mundi ekki færa honum neina ham-
ingju.
Og nú var Michael gripinn þessari
sömu tilfinningu. Greifafrúin hafði
sagt honum, að hann elti fiðrildi, en
nú fannst honum fiðrildið svo miklu
fremra henni. Elisabet verðskuldaði
ekki, að henni væri líkt við fiðriidi.
IJann óskaði þess nú af öllu hjarta,
að hann gæti' losnað undan áhrifa-
valdi og töfrum Elísabetar, svo að
hann gæti lifað frjáls áfram, laus við
óttann um að tapa henni.
Eftir næstum því svefnlausa nótt
var Michael kominn á þá skoðun að
honum væri fyrir bestu að hverfa
burt frá London. Ninetti greifafrú fór
til Parisar um morguninn og sendi
Michael kveðjubréf.
Hesfer féll það þungt. að hún skyldi
fara. Það var eins og henni væri
nauðsynlegt að hafa einhvern hjá sér,
sem lnin gat látið sér þykja vænt um.
Michael fór til ömmu sinnar í gamla
húsið i Kent. Hann vissi, að henni
mundi verða það til mikillar ánægju
að hafa sig hjá sér að staðaldri.
Ósjálfrátt lagði Michael oft leið sina
hjá húsi Jane Briggs, og urðu þau
brátt góðir vinir. Jane var ákaflega
hlýleg i viðmóti og nærgætin við
Michael.
Naðran eignaðist 100-bura.
Sjö metra löng sucuri-naðra var
til sýnis á fjölleikahúsi í Fortaleza
og sópaði að sér áhorfendum eins
og ljónin í Beykjavík. En aðdáun
áhorfendanna fékk skjótan endi eitt
kvöldið, er naðran gaut um 100 smá-
nöðrum, sem voru það litlar að þær
komust út á milli rimlanna í búr-
inu og skriðu undir pils kvenfólks-
ins og upp eftir fótunum á þeim. —
En fólkið í Fortaleza er hugað og
er það hafði jafnað sig fór það að
tína saman nöðrurnar og þeim var
komið fyrir í 'búri með þéttari rim-
um.
NÝ ÚTVALIN HJÁ ALI KAHN. —
Þrátt fyrir hvernig fór með Ritu Hay-
worth hefir Ali Khan nú farið að
dingla við nýja Evrópustúlku. Það er
grísk kvikmyndaleikkona, sem heitir
Irene Pappa og var gestur á kvik-
myndavikunni miklu, sem haldin var
í Cannes í vor. Hérna sjást þau vera
að dansa á einum af dýrustu gilda-
skálunum í Cannes. —
Clark Gable er kominn til Parísar —
konulaus og allslaus — og ætlar að
vera þar í fríi nokkrar vikur. Hann
segist ætla að spila golf eins mikið
og hann geti og svo „skoða bæinn“.
Hér hefir hann hitt frönsku dísina
Michele Phillipe, sem nú hefir leikið
í fyrsta sinn í ítalskri kvikmynd. —
Kommúnistar í Frakklandi byrjuðu ýmsar óspektir nokkrum dögum áður en Itidgway kom til Parísar, til þess
að taka þar við embættinu eftir Eisenhower. Er svo að sjá, sem viðbúnaður hafi verið til þess að steypa stjórn-
inni og koma öllu í bál og brand. Lögreglan skarst í leikinn og handtók foringjann Jaques Duclos og fjölda
annarra kommúnistaforsprakka um land allt, einkanlega í ýmsum borgum, sem hafa hernaðarlega þýðingu,
svo sem flotaborginni Toulon. Hér sjást menn í kröfugöngu með alls konar kröfuspjöld. Nokkrir menn særðust.