Fálkinn


Fálkinn - 27.03.1953, Blaðsíða 6

Fálkinn - 27.03.1953, Blaðsíða 6
6 FÁLKINN D’RAMHALDSSAGAN: FJÓRAR — Já, meira en nóg, svaraði Abou Fatma. — Skotfœri, skammbyssur og riffla. Hann l>enti á stað um tuttugu metra frá úlföldunum, þar sem blaðk- an náði þeim um það bil í bné. l>ar beygði hann sig og fór að róta í sand- inum með böndunum. — Hérna er ])að, sagði hann. Trencb fleygði sér niður og fór að krafsa með báðum böndum, og rak upp smávein í sífellu. Það lá við að Feversham skammaðist sin fyrir hvernig félagi bans hagaði sér. Hann líktist fremur skynlausri skepnu en manneskju. En Trench varð liægari undir eins og liann hafði náð sér i riffil. Og nú komu hin vopnin og liver fékk sitt, ásamt skotfærum. — Ivomi þeir nú ef þeir þora! sagði Trench og rak upp ruddalegan hlátur. Nú mega þeir elta okkur eins og þeir vilja! Eg skal aldrei þurfa að koma aftur í fangelsi skelfinganna, jafnvel þó að þeir nái í okkur! Hann strauk hlaupið á rifflinum og talaði við hann eins og krakka. Tveir Arabar settust á úlfaldana tvo og stefndu til Omdurman. Abou Fatma og fylgdarmaður lians héldu áfram með flóttamönnunum. Það bafði ekki orðið nema kortérs töf við skiptin. Þeir riðu gegnumr melgras alla nótt- ina og miðaði ekki vel áfram. Um sólaruppkomu komu þeir í nakta eyði- mörk, þar sem hvergi sá stingandi strá. — Eru effendíarnir þreyttir? spurði Abou Fatma. — Viljið þið staldra við og fá eitthvað að eta? l’að er matur í hnakktöskunum. — Við getum eins vel etið þó að við sitjum í linökkunum. 26. FJAÐRIR Maturinn var döðlur og brauð, og talsvert af vatni með. Úlfaldarnir greikkuðu sporið þeg- ar þeir komu út úr melgrasinu. Um sólarlag áðu þeir klukkutima. Þeir riðu stanslaust alla næstu nótt og daginn eftir og bæði menn og skepn- ur tóku á því, sem þau áttu til. Þeir fóru yfir grýttar hæðir, þvert yfir dali og gular sand-flatneskjur. Bæði Trench og Feversham fannst þeir ekki komast úr sporunum. í sólarupprás sáu þeir fjall út við sjón- deildarhringinn, og þeir riðu allan daginn án þess þeir virtust komast nær því. Stundum sá Abou Fatma úlfaldalest nálgast. Þá voru úlfald- arnir látnir leggjast í felur bak við kletta, og mennirnir biðu með riffl- ana miðaða. Þegar nokkru lengra kom hittu þeir fyrir menn með nýja úlfalda, og höfðu skipti. Þeir héldu sig alltaf nálgast dagleið fyrir vestan Níl. — f kvöld förum við yfir veginn til Berber, sagði Abou Fatma. — Ef guð lofar verðum við komnir austur yfir Níl annað kvöld. — Ef guð vill! tautaði Trench. — Bara að hann vilji það! Hann skim- aði óttasleginn kringum sig og hann varð því hræ'ddari sem nær dró mark- inu. Nú voru þeir á slóðum, sem lesta- mannaleiðir lágu um á ýnísa vegu. Þeim þótti ekki vogandi að vera á ferli á daginn. Þeir fóru af baki og földu sig í kjarri, þar sem þeir sáu til mannaferða. Þegar dimmdi hættu þeir sér yfir lestamannagöturnar og riðu eins og þcir komust áleiðis að ánni. I dagrenningu bað Abou Fatma þá um að staldra við. Þeir voru i al-gróðurlausri eyði- mörk. F''eversbam og Trench ein- blíndu til austurs. Nil gat ekki verið langt undan, en þeir sáu ekki ána cnnþá. — Við verðum að blaða bring úr grjóti, sagði Abou Fatma, — og ]>ið leggist á magann inni í honum. Eg ætla að fara niður að ánni og athuga hvort báturinn er á sínum stað, og hvort vinir okkar eru viðbúnir að taka á móti okkur. Eg kem aftur þegar skyggir. Þeir tíndu saman grjót og blóðu garðbrot, um eitt fet á hæð. Og svo lögðust þeir þar fyrir, Feversham og Trench, með vatnspoka og rifflana hjá sér. — Hafið þið döðlur líka? spurði Abou Fatma. — Já. — Hreyfið ykkur ekki fyrr en ég kem. Eg fer með þessa úlfalda, þið skuluð fá aðra í kvöld. Og svo fór Abou með Arabann sinn. Trench og Feversham grófu sig niður i sandinn, eins vel og þeir gátu. Báðum hefir þeim líklega fundist þessi dagur vera sá lengsti, sem'þeir höfðu lifað. Þeir voru svo nærri mark- inu, og þó voru þeir alls ekki óliultir. Trench fannst dagurinn enn lengri cn heil nótt í fangavítinu, en Fevers- liam líkti honum við dag sem hann hafði lifað fyrir sex árum heima hjá sér í London, er liann beið eftir að svo dimmt yrði að hann þyrði að hætta sér út. Þeir voru ískyggilega nærri Berber, og leitarmennirnir gátu ekki verið langt undan. Sólin bakaði þá miskunnarlaust allan daginn, og þeir höfðu ekkert til að hlífa sér með. Það varð lítið um samtal milli þeirra. Loks gekk sólin til viðar, blessað myrkrið færðist yfir eyðimörkina, og kaldur andvari sval- aði þeim eftir hita dagsins. — Þei! sagði Trench allt í einu. Þeir hlustuðu báðir eins og þeir gátu og heyrðu til úlfalda rélt hjá sér. Augnabliki síðar var blístrað Jágt. Aðeins HEILBRIGT hörund heíir cðlilcga fcgurð Það er eðlilegt að vilja hafa fallega húð — þess verðið þér að fara eftir reglum náttúrunnar, og halda húðinni beilbrigðri, þá verður hún fögur o, aðlaðandi. — í Rexona er undraefnið Cadyl sem hjálpar náttúrunni til að viðlialda húðinni heilbrigðri. — Kaupið Rexona-sápu i dag, hún mýkir og hreinsar húðina, er ilmrík og heldur hörundi yðar hraustlegu og fögru. (Kmjona X-REX 3-1307-50 Inniheldur CADYL* * CADYL, — Rexona er eina sápan, sem inni- heldur undraefnið Cadyl. 1 því eru sótthreins- andi og græðandi olíur. — Það eyðir lykt. HJÓLANDI Á JÁRNRÚMI. — Reið- hjóli leiktrúðsins Beppo frá Bert- ram Mills Cirkus á varla sinn líka í veröldinni. Það er aðallega gert úr gömlu járnrúmi og til varúðar eru hjólin höfð fjögur. Beppo vann það þrekvirki að hjóla á þessu tilbera- verki frá Stafford til London — 170 cnskar mílur. Hér sést lögregluþjónn stöðva Beppo til að athuga hvort farartækið sé í lagi. ■— Hérna erum við, sagði Fevers- ham varlega. — Guði sé lof, sagði Abou Fatma. — Eg færi ykkur góðar fréttir, .— reyndar slæmar líka. Báturinn er til taks, vinir okkar biða okkar, og fyrir handan ána bíða óþreyttir úlfaldar. En allir hafa frétt um flóttann, og vörður haldinn við öll vegamót og ferj ustapinn. Við verðum að vera komnir talsvert langt inn í land hand- an Nilar fyrir sólaruppkómu. Þeir laumuðust eins og þjófar yfir Nil klukkan citt um nóttina og sökktu bátnum. Úlfaldarnir biðu og þeir riðu af stað inn í landið, en að visu ekki nærri eins hart og flótta- mennirnir liefðu óskað. Þarna var afar grýtt, svo að úlfaldarnir komust ekki nema fetið. Allan næsta dag lágu þcir í felum undir klettum, en úlfaldarnir voru sendir upp á sléttu langt frá, þar sem þeir gátu bitið. Nóttina eftir kom- ust þeir talsverðan spöl, og eftir tvo sólarhring voru þeir komnir á óasa, l>ar sem þeir hvíldu sig í tólf tíma. Þaðan lá leiðin yfir Núbíu-eyðimörk- ina. Nú á dögum hruna iiraðlestir yfir þessar vatnsleysumerkur, og ferða- fólkið nýtur alls konar þæginda. Öll leiðin er farin á tólf tímum. En í ])á daga sem Feversham og Trench voru á flóttanum norður, var talsvert öðruvísi að komast áfram. Að kvöldi annars dagsins hnippti Trench allt i einu í Feversliam. — Líttu á! sagði hann og benti í suður. Hann var svo hrærður að rödd- in brást. — Á hverju einasta kvöldi i sex ár hefi ég séð Suðurkrossinn. Á nóttunni hefi ég oft legið og starað upp í himinninn og spurt sjálfan mig, hvort þessar fjórar stjörnur mundu nokkurn tima hverfa mér sjónum áður en ég dæi. Ferversham, nú þori ég i fyrsta skipti að trúa því að okkur takist flóttinn. Þeir sátu báðir og störðu á suður- loftið. Báðir gagnteknir af innilegri þakklætistilfinningu. Loksins eftir að þeir sofnuðu voru þeir alltaf að smá- vakna og stara upp í stjörnugeiminn.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.