Fálkinn


Fálkinn - 29.10.1953, Side 6

Fálkinn - 29.10.1953, Side 6
6 FÁLKINN Spennandi ástar- og leynilögreglusaga eftir Phyllis Hambledon. leyndttvmál («) sHstrnnnn NEHItU í LONDON. — Þó að Indland sé Iýðveldi, og Indverjar því ekki eig- inlega þegnar Elisabethar drottning- ar, eru þeir samt í breska rikjasam- bandinu. Og við krýninguna mætti Nehru forsætisráðherra fyrir hönd þjóðar sinnar. LÉTT í LUND. Rosemary Clooney er alltaf full af glensi og gáska og þess vegna má telja líklegt, að hún verði vinsæl á léreftinu eins og hún hefir verið sem söngkona. ÞaS, sem hér hafði skeð, var hvorki martröð né drauniur, sem hverfur þegar maður vaknar og segir „Ham- ingjunni sé lof að þetta var aðeins draumur". Nei, hér var um blákaldan veruleika að ræða. Eg sá að Martin opnaði augun og svipur hans gaf til kynna að tilfinningar hans og hugs- anir væru þær sömu og minar. „Það horfir ekki vel með þétta in- dæla sumarleyfi, sem við ætluðum að eyða hérna. Nýr dagur er að hefjj- ast, og hvað skyldi hann færa okkur?“ Síðan settist hann upp og sveiflaði fótunum fram úr rúminu. Eg hefi alltaf dáðst að því hvað hann er fljót- ur að vakna til fulls. Hann hvarf inn í haðherbergið og um leið kom Josephine inn úr dyr- unum. Hún var eflaust ein þeirra, sem alltaf ,eru brosandi og glaðlegar á morgnanna,' jafnvel nú var luin síð- ur en svo ömurleg á svip, þótt glað- værð hennar væri eðlilega venju fremur niðurbæld. Hún liélt á bakka og á honum var nýbakað hveitibrauð, smjör, hunang, kaffi og tvö egg. „En hvað þetta er girnilegt, Josep- hine,“ sagði ég. „Hvernig líður núna?“ Hvað segið þér mér um þær Mademoiselle Suzy og Mademoiselle llelen?“ „Helen sefur ennþá. Hún jafnar sig eflaust. Mademoiselle Suzy er lienni ákaflega góð systir.“ „Eg efast ekki um það.“ „Við skulum vona að þcir hafi upp á morðingjanum," sagði Josephine og varð skyndilega alvarleg á svip. „Madame Frenier var okkur mjög góð húsmóðir. Á ég að segja yður hvað mér hefir dottið í hug, Madame? La Bande Voleur gæti staðið á bak við þetta.“ „La Bande VoIeur?“ „Það er bófafélag sem hefir vaðið uppi hér í Frakklandi um hríð. í vetur létu þeir greipar sópa um gisti- húsin í Riviera. Þeir stálu jafnan skartgripum. Hver veit neina þeir séu nú komnir til Dinard? Eitt innbrotið var ekki ósvipað því sem hér hcfir átt sér stað. Grímuklæddur maður ruddist vopnaður inn i herbergi frægr- ar Ieikkonu og hafði á burt með sér skartgripi, virta samtals á þrjár milljónir franka. Lögreglan hefir enn ekki haft upp á þeim. Þeir eru i fé- lagi og hjálpa hverjir öðrum. Þeir gætu hafa komist á snoðir um riibín- hálsmenið og komið til að stela því. Madame hcfir ef til vill veitt ein- hverja mótspyrnu og þá hafa þeir myrt hana.“ „Hafið þér skýrt yfirlögreglumann- inum frá þessum grun yðar, Josep- hine?“ spurði ég. „Auðvitað, madame." Og liann svar- aði: „Þótt ótrúlegt megi virðast hefir mér dottið eitthvað svipað í hug.“ Og þá sagði ég: „Þeir hafa eflaust líka sent okkur skeytið." „Hvað er hér á seyði?“ spurði Martin. Hann kom i þessu út úr baðher- berginu. Hann var í sloppnum og liár hans var lítið eitt hrokkið eftir bað- ið. Josephine virti hann fyrir sér með svip sem ég ekki skildi. Mér virt- ist eins og hún væri að vega hann og meta í huganum. Hvers vegna? Hvaða ástæðu hafði hún til þess? Hún endurtók sögu sina um La Bande Voleur, og dró sig síðan hæversklega i hlé og fór. „Eg er ekki frá því að það sé eitt- hvert vit í þessari skýringu hennar," sagði Martin. „Skýringin er auðvitað ofur hversdagsleg, en það myndi spara okkur öllum hérna mikil óþægindi ef hún reyndist sönn.“ Eg var honum sammála. Skýring Josepliine kom okkur báðum í betra skap, og við tókum til snæðings af bestu lyst. Að svo búnu klæddumst við. Martin lauk við að klæða sig á undan mér og fór siðan niður, en ég fór að taka farangur okkar upp úr töskunum. Lögregluforinginn var nýkominn þegar ég kom niður. Suzy var þar einnig, og innan skamms heyrðist glamra í skóhælum og inn kom feit- lagin kona með lögregluþjónana á hælum sér. Konan var klædd síðbux- um, en óneitanlega var vaxtarlagi hennar þannig háttað að slíkur bún- ingur hæfði henni fráleitt. „Asnar!“ hvæsti hún. „Halda þessir fávitar að þeir geti útilokað mig af heimili minnar elskulegu vinkonu?“ hrópaði hún skrækróma. „Mér stend- ur hjartanlega á sama um hvað lögin segja.“ Hún hljóp til Suzy. „Segðu að þetta sé ekki satt!“ hrópaði hún. Hún sá svipinn á andliti Saizy og fór að hágráta. Tárin runnu niður vanga hennar og mynduðu farvegi í andlitsfarðanum. „Þetta getur ekki verið raunveru- legt,“ kveinaði hún. „Það getur ekki átt sér stað! Mollý! Hún talaði við mig í síma i fyrrakvöld ....“ Áhugi lögregluforingjans vaknaði skyndiléga. „Segið þér að frú Frenier hafi sím- að til yðar, frú?“ „Já, vissulega var það svo. Og hún var i besta skapi. Hún sagðist hafa skemrnt sér mjög vel í Jersey, og hún sagðist einnig eiga von á ungum enskum hjónum í heimsókn. Hún bauð okkur, mér og syni mínum, að koma liingað í dag og kynnast þeim.“ „Afsakið, livað heitið þér, frú?“ spurði Boudet. „Eg heiti frú Hocker, frú Caro Hocker og er frá New York. Eg tók á leigu næsta hús hérna — svo að ég gæti dvalist nálægt Mollý. Ilún var besta vinkona mín, skal ég segja yð- ur. Við höfum þekkst árum sam- an ....“ Boudet greip fram í fyrir lienni. „Um hvaða leyti hringdi hún til yðar?“ „Khikkan hlýtur að hafa verið orð- in eitt um nóttina," sagði frú Hocker. „Eitt 1“ FÓTMÁL FRÁ DAUÐANUM. — Fjall- göngur eru hættuleg íþrótt, enda hefir það orðið mörgum að bana, því að ekki þarf annað en misstíga sig til að hrapa. — Hér á myndinni sjást þrír rússneskir kilfurgarpar, sem eru að fikra sig áfram á brattri vella hengju. Andlit Boudet Ijómaði. Við bíðum mcð öndina í hálsinum. Þarna kom þó loks vitneskja sem máli skipti. „Er það ekki óvenjulegur tími fyr- ir símtal?“ „Nei, alls ekki. Hún sagðist hafa verið að reyna að ná í mig allt kvöld- ið. Hún var háttuð, en það var mjög algengt að við spjölluðum saman, þeg- ar við vorum komnir í háttinn á kvöldin. Við Júlíus höfðum farið í spilavítið um kvöldið og komum ekki heim fyrr en kl. 12. Við Mollý gátum talað saman á kvöldin svo kluklui- tinnim slcipti, stundum lá við að við sofnuðum út frá rahbinu. Þegar ég talaði við Mollý í fyrralcvöld, vildi hún að ég kæmi í heimsókn morg- uninn eftir. „Elskan mín,“ svaraði ég, „liað get ég ekki þvi að ég fer á hárgreiðslustofuna ....“ „Kæra frú,“ sagði Boudet, „það er mjög mikilvægt að ]iér segið mér ná- kvæmlega hvað Mollý Frenier sagði.“ „Hún sagði að Suzy hcfði skemmt sér vel í Jersey ,og það væri ungur maður þar mjög ástfanginn áf henni. Og ég svaraði að það væri ekki nýtt. Hún talaði alltaf svo mikið um Suzy. Hún sagði einnig að Helen virtist vera að skána. Svo sagði hún að Sebastian hefði snætt kvöldverð hjá sér — það var auðvjtað. Hún lét einnig í Ijós gremju sína yfir þvi að Josephine og Pierre skyldu ekki vera komin og svo var liún að tala um einhvern óvæntan gest og bætli við orðrétt: „Eg liefi gert nokkuð, sem ég veit að myndi falla þér vel í geð, Carol! En hún vildi ekki segja mér livað það var. Eg skal segja þér það næst þegar við hittumst," sagði hún. ■—• Ó, ég get ekki fengið mig til að trúa þvi að hún sé dáin! Myrt! Moliý!“- Hún fór aftur að gráta, liálfu meira en áður. Suzy reyndi að hugga hana en ég fór upp aftur. Eg hafði i her- bergi minu komið auga á bók eflir Jean Louis Bory, og mér datt snögg- lega i hug að gaman mundi vera að lesa hana — hún fjallaði um Hfið í frönsku smáþorpi. Dyrnar að her- bergi Helenar stóðu opnar, er ég gekk fram hjá. .Tosephine var að koma frá því að færa lienni morgunverðinn. Litli hundurinn kom á móti mér og snerist í kringum mig, en þó var eins og hann væri fremur áhugalaus um aílt og alla.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.