Fálkinn


Fálkinn - 14.05.1954, Side 3

Fálkinn - 14.05.1954, Side 3
FÁLKINN 3 Herra Ásgeir Ásgeirsson. Forseti Islands sextugur Forseti íslands, Ásgeir Ásgeirsson, á sextugsafmæii fimmtudagihn 13. þessa mánaðar. Á þeim degi árnar íslenska þjóðin honum allra heilla, þakkar störf lians í þágu iands og þjóðar og óskar horium blessunar og giftu í framtíSinni. Forsetahjónin eru sem kunnugt er nýkomin heim úr opinberri heimsókn til Norðurlandanna, þar sem þau hlutu mjög vinsamlegar og hlýjar mót- tökur. HiS eina, sem skyggSi á förina, var fráfall Mörthu krónprinsessu NorSmanna. Að þessu sinni varð því ekki af opinberri heimsókn forseta- hjónanna til Noregs, en þau voru við- stödd útför prinsessunnar. Enginn vafi er á því, að Ásgeir Ás- geirsson og forsetafrúin, Dóra Þór- liatlsdóttir, hafa með heimsókn sinni treyst mjög vináttuböndin viS frænd- þjóSirnar á NorSurlöndum. Það sýndi og hug íslensku þjóðarinnar til þeirra, hve innilegar móttökur þau fengu, er þau komu til landsins aftur með Gullfossi. Ásgeir Ásgeirsson er fæddur að Káranesi á Mýrum, sonur Jensínu Bjargar Matthíasdóttur og Ásgeirs Ey- þórssonar. Hann lauk stúdentsprófi árið 1912 og kandidatsprófi i guðfræði þrerii árum síðar. Gerðist liann fyrst biskupsritari bjá Þórlialli biskup Bjarnarsyni, síðan starfsmaður Lands- banka Islands, en 1918—1926 var hann kennari við Kennaraskóla íslands, en þá tók hann við embætti fræðslumála- stjóra, sem liann gegndi til ársins 1938, er liann varð bankastjóri Út- vegsbankans. Árið 1923 var Ásgeir Ásgeirsson fyrst kosinn á þing fyrir Vestur-ísa- fjarðarsýslu. Gegndi hann þingmanns- störfum fyrir það kjördæmi óslitið fram lil ársins 1952, er hann var kjörinn forseti. Naiit hann jafnan mik- itla vinsælda og trausts jafnt í kjör- dæmi sínu sem utan þess. Á löngum stjórnmáiaferli hlóðust ýmis þýðingarmikil störf á Ásgeir Ás- geirsson. Það féll m. a. i hans hlut sem forseta sameinaðs Alþingis að stjórna Alþingishátíðinni 1930, fjár- málaráðherra var hann 1931 og for- sætisráðherra 1932—1934. Störf og æviatriði forsetans skulu ekki rakin hér frekar, enda eru þau þjóðinni vel kunn. Hinn 13. maí færir islenska þjóðin forseta sínum, Ásgeiri Ásgeirssyni, innilegar hamingjuóskir í tilefni sextugsafmælisins og árnar honum og fjölskyldu lians allra heilla í framtíðinni. Einar Jónsson myndhöggvari áttræður Einn merkasti sonur íslands, Ein- ar Jónsson myndhöggvari, varð átt- ræður þriðjudaginn 11. maí s. 1. Einar er fæddur að Galtafelli 11. mai 1874, þar sem liann ólst upp fram um tvítugt. Siðan lá teið hans til Kaupmannahafnar til listnáms. Árið 1901 sýndi hann fyrst opinberlega á Charlottenborg. Var það hin þekkta mynd af „Útlaginn", sem vekur at- liygli allra, sem koma á safn Einars. Að námi loknu ferðaðist Einar mikið um Evrópu og mótaði margar myndir. í upphafi fyrri heimsstyrj- aldarinnar gaf Einar ættlandi sínu öll verk sín, ef það vildi byggja yfir þau. Safnhúsið reis af grunni á Skóla- vörðuhæð fyrir samskotafé og styrk frá Aljiingi. Var það opnað 1923 nokkru eftir að Einar og kona Jians, Anna M. Jörgensen, komu úr Ame- ríkuferð sinni, en í þeirri ferð gerði Einar líkneski af Þorfinni karlsefni. Um þrjátíu ára skeið hafa þau hjónin búið í safnhúsinu Hnitbjörg- um á Skótavörðuhæð og fjöidi manns, jafnt erlendir sem innlendir hafa heillast af verkum Einars, sem þar eru tit sýnis. Hér skal ekki farið út í Jiað að ræða um einstakar myndir Einars. Það hef- ir svo víða verið gert, enda mun erfitt að gera upp á milli hinna miklu meistaraverka hans. Allir, sem á safnið koma munu þó hrifast af hinni fögru Kristsmynd hans, enda er það verk táknrænt fyrir hin kristilegu og fögru lífsviðhorf listamannsins, sem kemur fram í mörgum höggmyndum hans, en Jió einkum málverkunum, sem færri þekkja, en eru þó frábær- Jega vel gerð. Margir heimsfrægir menn, sem kynnst hafa verkum Einars Jónssonar hafa kveðið mjög sterkt að orði um ágæti listmannsins og verka hans. Og á því getur enginn vafi leikið, að iistaverk Einars Jónssonar inunu skipa nafni hans veglegan sess i sögu íslensku þjóðarinnar. í tilefni afmælisins hefir bókaút- gáfan Norðri tekist á hendur að gefa út bók með verkuiri Einars. Er liún prentuð i Svíþjóð og verður væntan- lega tilbúin í sumar. Safnið liefir ávallt verið að færa út kvíarnar, og 1. júni n. k., þegar það vcrður opnað á ný, mun ein ný deild hafa bætst við með nýjustu verk- unum. Á þessum merkisdegi i tifi lista- mannsins streymir ylur þakklætis og virðingar frá hverju mannsbarni á ís- landi til Einars Jónssonar, listamanns- ins góða, sem hefir borið liróður lands síns víða um lieim.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.