Fálkinn


Fálkinn - 15.10.1954, Blaðsíða 4

Fálkinn - 15.10.1954, Blaðsíða 4
4 FÁLKINN FRAMHALDSGREIN. Albert Einstein heima hjá sér Allur heimurinn kannast við nafnið Albert Einstein höfund afstæðiskenningar- innar. Það er á fæstra færi að botna í kenningum vísindamannsins Einsteins. en maðurinn sjálfur er einstaklega blátt áfram, eins og lýsingar Philomenu Einstein í eftirfarandi greinum bera með sér. TDLÍSTRANDI sendisveinn kemur upp götuna. Hann er með lítinn flatan böggul undir héndinni. Hann sveigir af aðalgötunni inn í fáfarna hliðargötu í smáíbúðarhverfi Prince- tonháskólans: Mercer Street. Sendill- •inn William A. Johnson er nýgræðing- ur í Princeton og liefir fengið vinnu hjá Kayson & Co Vie, skóversluninni miklu. Það er í fyrsta skipti sem hann fer með böggul á bennan stað og hann lieldur að liann sé á leiðinni á íburðar- mikið rikismannsheimili. Þvi að á bögglinuin stendur greinilega: „Mr. Albert Einstein" og þó að fermingar- drengurinn William botni ekkert i afstæðiskenningunni veit hann þó að Einstein er ekki aðeins frægur maður, heldur meðal þeirra allra frægustu. William nýr augun. Hann lítur á heimilisfangið einu sinni enn, á hús- númerið og götunafnið og hristir höf- uðið. Þetta litla hvita timburhús mcð geraníublómum í gluggunum getur ómögulega verið bústaður svona frægs manns. Þetta er ekkert fallegra en húsið hans föður lians í úthverfi Philadelphiu, og faðir hans er ekki nema vagnvörður á neðanjarðarbraut- inni, en þetta lieimsfrægur prófessor. DYRASPJALD MEÐ „A. E“. En þetta er nú svona. Á hurðinni er skilti með stöfunum A. E. William hringir og gráhærð kona kemur til dyra, tekur við bögglinum og gefur drengnum vikaskilding og kallar á ekta svabneskri mállýsku: „Herr Professor! Die Schuferln sind komme........“ „Die Schufferln" eru nýju inni- skórnir prófessorsins og gráhærða konan er ráðskonan Martha frá Stuttgart, sem frú Elsa heitin Einstein hafði með sér til Ameríku. Martha hefir fylgt þeim í allri útlegðinni. Nú opnast dyr og liöfuð með miklu silfurhvítu hári kemur í gættina. Und- ir hárinu sér i skær dökk augu. Háls- inn gildur og sólbakaður upp úr frá- hnepptum flibbanum og prófessorinn er í brúnum prjónajakka, viðum fhin- elsbuxum og gráum ullarsokkum. En á sokkaleistunum. — Ágætt! segir maðurinn, sem vís- indin kalla „mesta hugsuð vorra daga“. Ágætt, Martha! Ég vona að þeir séu voðfelldir. Hann setur á sig morgunskóna, sem eru úr rnjúku, ljósgulu kálfskinni varp- ar öndinni ánægjulega og fer aftur inn í vinnustofu sína, þar sem einka- ritarinn, lítil og dökkliærð stúlka, sem heitir Helene Dukas, biður hans. Ung- frú Dukas er Ilka Suður-Þjóðverji. „ Na, Helenchen, schön, — micht? Ungfrú Dukas brosir og lítur á inni- skóna. Hún veit um snöggu blettina á prófessornum. Hann kviðir alltaf fyr- ir, ef liann á að setja upp almennilega skó. Elskar morgunskóna og á tíu pör. — Það er það einasameiginlega með liertoganum af Windsor og mér, sagði hann einu sinni á alvarlegum fundi með ýmsum vísindamönnum. — En ég held líka að það sé það eina sem er likt með okkur. Ilertoginn af Windsor á fimmtíu pör af morgunskóm. Húsið í Mercer Street er mjög blátt áfram. Það mætti vel nota áritunina á garðhúsi Goetlies í Weimar um það: „Ubermútig sieht’s nicht aus, dieses kleiner Gartenliaus. Allen, die darin verkehrt, wards guter Geist bescliert.“ Hús Alberts Einstein er líka garð- hús, þó að það teljist ekki til neins annars stærra liúss. Vinnustofa þessa heimsfræga eðlisfræðings er einföld: Eikarskrifborð með mörgum blek- klessum og lítið framleiðsluborð og á þvi er jafnan kælir með — rjómais! í tilliti er lieimsborgarinn Albert Einstein ósvikinn Ameríkumaður: Hann borðar rjómais hvenær sem vera skal, bæði á degi og nóttu, hinni svab- nesku ráðskonu sinni til mikils hugar- angurs, því að hún telur að „Dampf- nudeln“ eða „Spátzle" mundi miklu hollari 75 ára gömlum manni, en allur þessi sæti, kaldi, seigi ís. Með öllum veggjum eru bókaskápar nema rétt þar sem stóri glugginn er, sem veit út að garðinum. Á skrifborðinu, sem öll veröldin talar um með lotningu liggur alltaf þykkur hlaði af livitum pappír, sem er klipptur i marga smáseðla. Á þessa miða skrifar Einstein rneð greinilegu letri hugmyndir sínar, stærðfræði- setningar, flatar- og rúmmálsfræði- myndir, tölur og teikn, sem enginn leikmaður getur skilið. HANDRIT ALDARINNAR. Einstein prófessor notar mikið af pappír. Hann er ekki sparaður. Hundr- uð miða skrifar liann og hendir þeim i pappírskörfuna. Hann finnur ekki þræðina i þvi sem hann er að hugsa, við fyrstu atrennu. Oft liða svo dagar, vikur og mánuðir, að einn einasti miði sem hann skrifar, sé talinn þess verður að lialda honum til haga. En þegar þessir fáu miðar sem hann safnar eru komnir saman i eitt, eru þeir skýrt og greinargott handrit. Handrit Einsteins að „Sérstakri af- stæðiskenningu“, sem kom út 1905 og sem hann jók við og gerði úr „Al- menna afstæðiskenningu“ á árunum fram til 1916, er aðeins 14 vélritaðar blaðsíður. Hann skrifaði sjálfur liand- ritið með penna. En þessar 14 vélrit- uðu siður eru taldar merkilegasta skjal aldarinnar, af þeim sem vit hafa á. Og um þær hafa verið skrifuð mörg þús- und visindarit. Auk skrifborðsins með blekklessun- um og allra pappirsmiðanna eru lika tveir gamaldags hægindastólar í vinnustofunni, ennfremur nótnapúlt og loks blessuð fiðlan lians. Það getur nefnilega komið fyrir að maðurinn með silfurhárið spretti allt í einu upp frá skrifborðinu eins og ungur maður, fleygi sjálfblekungnum fræga frá sér og grípi fiðluna. Hann fékk kennslu i Múnchen fimm ára gamall, fyrst i píanóleik og svo i fiðluleik. Og fiðluna hefir hann ekki viljað missa síðan, þó að liann sé enginn snillingur. Hann varð 75 ára 14. mars. — Ég spila aðeins sjálfum mér til skemmtunar, segir hann og leggur áherslu á orðin. Ég spila aðeins þegar enginn heyrir til mín — það er að segja enginn kunnáttumaður. Ekki vill hann lilusta á nýtísku músík. — Ilún er hrærigrautur — ég skil hana ekki! í tónlistinni verða að vera hreinar, skýrar línur. Hándel er uppá- haldstónskáld hans. Og svo hefir hann gaman af að spila barnaljóð, og þjóð- vísur. Sá sem sér alla bókaskápana, með þúsundum binda, heldur vitanlega að Einstein sé mesti bókaormur. — Hafið þér lesið allar þessar bæk- ur? spurði ég hann einu sinni, er mér var hleypt inn i „liið allra helgasta“, aldrei þessu vant. — Lesið? Nei, fjarri fer þvi. Flestar þeirra eru gjafir, og ég vil ekki endur- senda bækurnar, svo að ég móðgi ekki gefandann. Þegar ég var ungur las ég mikið, en ég er hættur því. Lestur truflar mig og beinir huganum á brautir, sem ég ætla mér ekki að fara. En — bíðið þér snöggvast: — Hérna er uppáhaldsbókin mín! Glettur og eðlisfræði. Hann tekur fram þykka bók: Wil- helm Busch, mesta humorista Þjóð- verja, teikningar með textum. „Max og Moritz“, barnamyndirnar frægu eiga Einstein sem aðdáanda. Og sjálf- ur yrkir Einstein stutt kvæði og vísur. — Ef þér þurfið á tækifærisskáldi að lialda ..... — Ágætt! Þá finnst mér að þér ætt- uð einhvern tíma að lialda ræðu í Ijóð- um i þessum stóru veislum, sem verið er að lialda yður. Nú kemur glampi í augun: — Bestu ræðuna mína liéll ég í veislu á Swarthmore College ........ Ég stóð upp, ræskti mig og sagði: — Dömur mínar og herrar! Því miður hefi ég ekkert að segja. — Og hvað gerðist þá? Einstein tók tóbaksdósina, tróð í pípuna og blés frá sér bláum reykjar- strók. Svo svaraði hann ofur sak- leysislega: —Ekkert, alls ekkert! Það varð dauðaþögn. En þá datt mér í liug að

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.