Fálkinn - 15.10.1954, Page 10
10
FÁLKINN
Nútíma hjálpartæki.
— Þarftu að sitja allt kvöldið án
þess að segja eitt einasta orð þó að
þér líki ekki pípan mín.
.—Maðurinn minn elskar blóm.
— Hamarinn er í kjallaranum, nagl-
ar í verkfærakassanum og joð og
bindi er í meðalaskápnum!
GARÐURINN OKKAR. Prh. af bls. 5.
liálfri vísu. Viðtakandi á að geta sér
til uni sendandann og botna vísuna.
Getur hann þá krafið sendanda um
gosakaffi, en ella segir sendandi til
sín og fær kaffi hjá viðtakanda. Vetr-
argosinn ber livít, drúpandi blóm, en
dvergliljurnar blá, gul eða hvít, stór
upprétt. Stjörnuliljulaukarnir eru
settir um 8 cm. djúpt og perlulauk-
arnir um 10 cm. Stjörnuliljurnar bera
flestar blá, drúpandi blóm, en perlu-
liljur í blómi líkjast lielst bláum jóla-
kertum.
Goðaliljulaukarnir eru settir 10—15
cm„ Þær eru mjög skrautlegar með
gildu, rauðu, bláu eða hvítu blómaxi,
en fremur viðkvæmar og þurfa góðan
stað i skjóli, móti sól. Páskaliljuhnúð-
ana má setja 8—12 cm. djúpt. Páska-
liljurnar blómgast oft um páskaleytið
hér sunnanlands. Skreyta hin fagur-
gulu blóm þeirra mjög garðana. Dverg-
liljur blómgast árum saman á sæmileg-
um vaxtarstöðum og sumar goðaliljur
einnig. Túlípanlaukar eru settir um 8—
12 cm. djúpt. Þeir blómgast mikið í
júní og fram i júlí. Einstaka tegund
t. d. Kaufmanniana, sem hér eru
nefndir „kaupmannatúlípanar“ blómg-
ast samt miklu fyrr. Til eru bæði lág-
vaxnir og liáir túlípanar. Hinir lágu
henta betur þar sem næðingasamt er.
Túlipanar eru mjög skrautlegir og lit-
auðugir, rauðir, gulir, hvítir, tvílitir
með ýmsum litbrigðum. S'umir eru of-
krýndir, aðrir með venjulegu blómi.
Túlípanar eru oft ræktaðir í röðum.
Er mikilsvert að velja litina vel sam-
an. En ekki verða gefnar reglur um
litavalið, þar verður smeklcur manna
að ráða. Venjulega þarf að setja nýja
túlípanalauka á hverju hausti. Sum-
arið er varla nógu heitt hér á landi
til þess að nýir laukar nái fullum
þroska. Er þess vegna öruggast að
endurnýja laukana. — Litlu laukblóm-
in, sem áður voru nefnd dvergliljur o.
fl., fara vel í þyrpingum. Skal atlniga
það þegar laukarnir eru settir niður.
Laukar smáu tegundanna þroskast
hér í flestum sumrum og blómgast
árum saman. Ef laukarnir eru orðnir
mjög þéttir, þarf að grisja þá á haust-
in. Hnúðar fáeinna tegunda eru settir
á vorin eins og áður er sagt. Hcfir
Fegrunarfélagið nýlega birt reglur
um meðferð þeirra. Visast til þess og
til Garðagróðurs um tegundaval o. fl.
Verður sjálfsagt mikið laukblóma-
skrúð i görðunum að vori. *
Ingólfur Davíðsson.
Gnú heitir ólánlegasta skepnan af
antilópuættinni. Skrokkurinn er lík-
astur vansköpuðum hesti. hausinn
eins og á nauti og liornin eins og á
sauðnauti.
Gamlir fjallafylgdarmenn fullyrða,
að kvenfólk sé þolnara i fjallgöngum
en karlmenn og þoli miklu betur þunna
loftið þegar hátt er komið. í hópum
þar sem karlar og konur eru saman,
mæðast karlmennirnir alltaf fyrr.
Þefnæmin er 10.000 sinnum glöggari
en bragðnæmin.
Vitið þér...?
að flestir stúdentar við ameríska
háskóla eiga bíl?
Þetta þarf alls ekki að vera af þvi
að þeir séu frá efnaheimilum. Á ár-
unura eftir 1930 var mikil fjárkreppa
i Bandaríkjunum og hafði luin það
meðal annars í för með sér að miklu
færri börn fæddust en í meðalári.
Þess vegna eru árgangarnir kringum
tvítugt fámennir núna, og af því leiðir
að þeir sem eru á þeim aldri eiga tii-
tölulega auðvellt með að verða sér
út um aukavinnu, samhliða náminu.
Og undir eins og Ameríkumaður hefir
auraráð verður hann vitanlega að eign-
ast bil.
PÍNA, PUSI OG SIGGI SVARTI
|f#m|
. fp $!§!&> ‘
að skordýr og nagdýr eyða að
minnsta kosti 10% af uppskeru
jarðarinnar?
Auðvitað veit enginn hve mörg
skordýr eru til á jörðinni, en giskað
er á að kringum einn milljard se á
hverjum liektara. Að iiauðsynlegt sé
að berjast gegn skoi-dýraplágúnni og
nag'dýrunum má marka af því að þau
éta og eyðileggja að minnsta kosti
10% af uppskeru allrar jarðarinnar
eða álika mikið og íbúar Afríku,
Bandaríkjanna og Kanada þurfa til
viðurværis.
1. mynd: Hvað heitir þú? spyr Trilla. Ég heiti Froskur og get hoppað! — 2.
mynd: — Viltu koma i sirkus, spyr Pína. — Froskur er til i það. — 3. mynd:
Nú sækjum við allt það sem við þurfum í sirkusinn okkar. — 4. mynd: — Hérna
er gamalt tau, sem ég fékk iijá mömmu, og liérna er pappir, málning og margt
annað. — 5. mynd: Þetta er fallegur kjóll, sem ég fer í, og þarna eru góðar
buxur. — 6. mynd: Erum við ekki fín. Við getum vel leikið sirkus. — 7. mynd:
Þessi lok notum við sem trumbu, og svo syngjum við með. — 8. mynd: Ég segi
ykkur ekki til livers ég ætla að nota þetta skinn. Það á að koma öllum á óvart.
Á fimmtándu öld voru Englendingar
taldir þrifnasta þjóð i heimi, því að
flestir þeirra fóru 1 laug einu sinni
eða tvisvar á mánuði.
Á næstu fimm árum ætla Hoilend-
ingar að taka allar eimreiðar sinar úr
umferð, og taka upp rafmagnsvagna i
staðinn.
Súpur, sern „hita sig sjálfar“ eru nú
á boðstólum í Ameríku. Þær eru seldar
i niðursuðudósum, senj eru með pípu
með eldfimu efni, og til þess að hita
súpuna þarf ekki annað en bera eld
að i pípunni.