Fálkinn


Fálkinn - 20.05.1955, Blaðsíða 12

Fálkinn - 20.05.1955, Blaðsíða 12
12 FÁLKINN JENNIFER AMES: 8. Húsið, sem hlustaði Hún roðnaði af gleði. „Ég gerði nú ekki nema lítið.“ „Það er ekki aðalatriðið hvort það sem gert er, er mikið eða lítið, heldur hvernig það er gert. Smávægileg hjálp á réttu augnabliki, getur sparað manni mikið erfiði,“ sagði hann og brosti. „En ég hefi alltaf sagt, að dugleg hjúkrunarkona sé fædd hjúkrunarkona. Og þú ert dugleg hjúkrunarkona, June.“ Það var svo þægilegt að heyra hann segja þetta ... eða yfirleitt að heyra lækni segja það, eftir hinn nístandi dóm Williams læknis. „Ég hélt nú lika að góðir læknar hljóti að vera fæddir til starfsins," sagði hún og fór hjá sér. „Það var unun að sjá hvernig þú fórst með drenginn. Ég man að þú skrifaðir mér um litlu telpuna, sem átti kaninuna. Það var svo gaman og svo fallegt." Hann hló. Og nú gerði hún sér allt í einu ljóst, að það var ekki nema sjaldarl sem hann hló. „Skrítið að þú skyldir muna það ... Já, það er margt skrítið, sem maður er beðinn um.“ „Þú hefir gaman af börnum, er það ekki?“ „Já ...“ „En þú hefir aldrei verið giftur.“ Hann brosti. „En piprunin er ekki sjúk- dómur, held ég, og sé hún það, þá er efalaust hægt að lækna hann.“ Hann hélt áfram: „Það er ekki vegna ástarrauna úr æsku, sem ég hefi ekki gifst, eins og rómantískar dömur hafa grun um. Ástin hefir aldrei ráðist á mig, kannske vegna þess að ég hefi ekki ögrað henni. Og veistu hvers vegna?“ Hún var í vandræðum með spurninguna. En eitthvað varð hún að segja. „Nei, hvernig ætti ég að vita það? En ...“ Hún þagnaði. „En?“ endurtók hann, en svo sagði hann: „Hver fjárinn!" Billinn hafði ekið ofan í djúp- an poll og nú gengu gusurnar af aur og leðju yfir hann. „Afsakaðu þetta!“ sagði hann. „Og fallegi kjóllinn þinn!“ Hann hafði þá tekið eftir kjólnum hennar. Og hún hafði einmitt verið að hugsa um Law- son lækni, þegar hún keypti þennan kjól á útsölunni hjá Harrods í London. Hún hafði reynt að ráða í það af bréfunum hans, hvers konar kjólar honum mundu falla best. Eitt- hvað mjúkt, kvenlegt ... ekki of áberandi. „Líst þér vel á þennan kjól?“ „Mér líst vel á allt, sem kemur þér við ... En þú laukst ekki við það, sem þú ætlaðir að segja, June.“ Hún stamaði. „Ég ætlaði bara að segja, að Clive gaf í skyn, að þú hefðir ekki gifst vegna þess að þú hefðir svo mikið að gera. Ég hefi aðeins verið hérna í tvo daga, en samt séð hve annríkt þú átt.“ Hann féllst á það. „Það er ekki sjúklinga- fjöldinn heldur þessar miklu fjarlægðir. Við eigum að aka hundrað enskar mílur núna í dag. Næst förum við á stórbýli, en það er þó ekki eins stórt og Gumbula er. Það eru ekki margar jarðir í héraðinu eins stórar og vel setnar og Gumbula er.“ „Hver á heiðurinn af því?“ „Hektor, faðir Kens, sá ekki sólina fyrir þessum stað. Hann hafði beinlínis átrúnað á jörðinni. Þetta var stór og sterkur ástralskur bóndi. Ken svipar til hans í mörgu, en Ken er laglegri ... það liggur við að Ken sé of laglegur, mér hefir oft dottið það í hug. Mönn- um, sem eru jafn laglegir og hann, haettir við að fara í hundana.” Hún svaraði ekki. Hvað átti hann við? . .. Ástamál — kvenfólk? Jed hélt áfram: „Ken elskar líka þennan stað og hann vinnur áf kappi, alveg eins og faðir hans. Gamli maðurinn hefði átt að vera upp með sér yfir að eiga anhan eins son og Ken, en hann tók eldri soninn, Roy, fram yfir hann. Það kann að vera af því, að Roy var svo líkur konunni hans, sem honum þótti mjög vænt um. Vegna Roys sætti hann sig meira að segja við Shelah, en það hefði ann- ars verið óhugsandi. „Hvers vegna var það óhugsandi?“ June hafði spurt dálítið hranalega, án þess að ætla sér það. Það hvarflaði að henni á ný, að Shelah væri kannske höfð fyrir rangri sök. Þau voru komin að næsta viðkomustaðnum, stórbýlinu. Fjölskyldan sat úti á svölunum og var að drekka te þegar Jed og June óku heim að húsinu. Fullorðin kona stóð upp og bauð þau velkomin. Það var frú McFaddon. „Þið megið til að drekka tebolla með okk - ur. Þér þekkið sjálfsagt hana Betty dóttur mína, er það ekki, læknir? Þetta er vinstúlka hennar, sem er hérna í heimsókn, Lorna Hinkler." „Þökk fyrir, ég ætla að fá tebolla hjá yður seinna, frú McFaddon," sagði Jed. Hann sneri sér að June. „Þú getur sest hérna úti og fengið þér te með fólkinu. Ég kem bráðum aftur.“ Betty McFaddon dró fram legustól handa June. Hún var há, sérlega fríð stúlka meo stutt, jarpt hár, brún augu og glaðlegt andlit. Hún var í rjómagulum langbrókum og erma- stuttri treyju. Vinstúlka hennar var lítil og rauðhærð og fallega búin, í línkjól og fellinga- pilsi. June fannst þær ekki eiga heima í þessu umhverfi. Þær voru líkari því sem gerist á tískubaðstöðum. En June fannst þær vera einkar viðfelldnar. Lausar við alla uppgerð og fordild. Það vai’ auðséð að Betty hjálpaði móður sinni við innanhússverkin; en öðru hverju brá hún sér til Sidney og dvaldist þá á Australa Hotel eða Ushers, heimsótti kunningjana, sótti veðreið- ar og fór hringferð milli náttklúbbanna. June heillaðist af frjálsræðinu og hreinskilninni, sem einkenndi þessar stúlkur báðar, og lá við að öfunda þær af ævinni. Hún hugsaði til þess hvernig væri að alast upp undir svona örugg- um kringumstæðum, geta farið í borgina til að skemmta sér, og vita alltaf að maður áttl heimili til að hverfa að, og þurfti aldrei að hafa áhyggjur af peningunum. Sjálf hafði hún orðið að vinna fyrir sér frá blautu barns- beini. Lorna, sú minni, s-agði: „Og þegar ég var. á Ushers næst síðast — hvern haldið þér áð ég hafi hitt, frú McFaddon? Jú, fallegu litlu frúna .frá ,Gunibula,,haná f,rú Wyman!“ „Ekkjuná' éftir -Roý W'yman?" spurði Mc- Faddon. „Þið vitið að hann er dáinn fyrir ná- lægt sex ,mánuðum?“ . ... Lorna hló. „Jæja, en ég gat ekki þetur séð en að hún skemmti sér furðu vel samt! Ég: sá hana borða miðdegisverð hvað eftir annað með einhverjum ljóshærðum náunga, sem mér virtist vera útlendingur. Þau voru alltaf sam- an á Hayden. Við borðuðum öll egg og flesk klukkan þrjú að morgniJ' „Hayden-klúbburinn er glæsilegur,“ muldr- aði Betty. „Hann er aðálathvarfið okkar þeg- ar við förum í borgina." „Ég skil ekki hvernig þið þolið þetta næt- urlífj telpur mínar,“ sagði frú McFaddon. „Þegar ég var á ykkar aldri hafði ég aldrei stigið fæti mínum inn fyrir dyr á náttklúbb." „Ef við förum ekki í náttklúbbana núna sjáum við þá aldrei á aevinnj,“ sagði Betty. „Þú kemur þar aldrei, mamma. Þú kemui’ eiginlega hvergi. „Nei,“ sagði frú McFaddon. Það færðist skuggi yfir andlit hennar. „Það ér kannske ekki npma gott að þið notið taekifærið meðari þið eruð ungar. Þegar ég var ung var ég allt- af að hugsa um það, sem ég ætti ógert í framtíðinni. Allir sögðu að ég'ætti a<5 láta það bíða þangað til ég yrði eldri. 'Jæjd, svo beið ég, — og ég hefi ekki gert neitt af því ennþá.“ „Þarna sérðu, amma.“ Betty hló. „Við er- um miklu hyggnari en foreldrar -okkar." „Það kann að vérd talsvert satt í því,“ sagði frú McFaddon. „Að minnsta kosti held ég, að þið fáið meiri gleði í lífinu.“ Hún sneri sér að June. „Eigið þér heima hérna í grennd- inni, ungfrú Ray?“ • >- „Ég kom frá Englandi fyrir fáéinum dög- um. Eins og stendur er ég á Gumbula og stunda frú Kensey.“ , ,k Lorna tók hendinni fyrir munninn, „Sagði ég eitthvað óviðurkvæmilegt áðan? Mér þyk- ir leitt éf ég hefi talað af mér.“ „Ég held varla að maður geti sagt’ of mikið um frú Wyman,“ sagði frú McFaddon þurr- lega. „Þei-þei!“ sagði Betty hlæjandi. Frúin roðnaði. „Það kann að véra að þetta hafi verið óvinsamlega sagt' af mér, en ...“ Hún,sneri sér að June. „Við höfum verið vinir Wymansfjölskyldunnar árum saman. Við höf- um búið hérna á Bungari álíka lengi og Wyman hefir átt Gumbula. Það kann að Vera að það sé sérviska, én við höfúfti álltáf helst kosið, að drengirnir giftust stúlkum úr hér- aðiftu, sem þekkja lífskjörin og Kunna að búa. Frú Wyman hefir aldrei gert tilraun til að setja sig inn í þess háttar, að því er ég veit best. Og nú er altalað að hún sfetli að sélja jörðina.“ „Haldið þér að hún hafi hpgsað sér það, í alvöru?“ spurði June. • „Ég veit ekki. Það er kannske ekki nema flugufregn. Það vona ég að minnstá kosti.“ „Hvernig líst yður á hann Ken, ungfrú Ray?“ spurði Betty. „Hann hefir alltaf verið svoddan kvennagull. Hann er laglegur, finnst yður það ekki?“ 1

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.