Fálkinn - 03.02.1956, Side 3
FÁLKINN
3
PERON
Casanova
Suður-Ameríku
Eftir að Peron missti völd og flýði á. náðir sendiráðsins í Paraguay var einn
af fylgismönnum hans handtekinn fyrir utan sendiráðið. í fórum hans
fannst bréf frá Peron til 16 ára stelpu. „Þú crt sú eina sem brást mér ekki.
þegar aðrir sneru við mér bakinu. Þess vegna elska ég þig ...“ skrifaði hinn
fallni einræðisstjóri. En það var meira mél af sama tagi í pokanum ...
Alltaf batnar það! sagði einn hers-
höfðinginn i stjórninni, sem tók við
eftir flótta Perons. — Fyrst var sagt
að Peron væri kvæntur 19 ára stúlku,
en nú skrifar hann annarri ástarbréf,
og hún er ekki nema 1G ára, og i
Olivos hcfir liann rekið lieilt kvenna-
búr. Og hvað er um Eddu Ciano,
Maríu Weiss og Andree Debar ...
Nú hefir verið flett ofan af kvenna-
málum Perons í Argentínu. Það var
áróður er blöðin töluðu svo mikið
um „einstæðinginn“, sem aldrei liafði
sést brosa eftir að Evita Peron dó.
Það var í áróðursskyni sem skrifað
var, „að Peron lifði einn scr í bústað
sínum í Olivos, og tæki aðeins á móli
heimsóknum, þegar knýjandi nauðsvn
væri á því, vegna stjórnmála." Það
var áróður er hann sagði hálíðlega um
sjálfan sig: „Síðan mín heittelskaða
eiginkona, hin heilaga hetja, Evita dó,
lifi ég aðeins fyrir velferð þjóðar
minnar, sem hefir sýnt mér traust."
En reyndin var önnur.
LOLLO HAFÐI TÆKIFÆRI.
Þegar* Gina Lollobrigida heimsótti
Argentínu, tók enginn til þess þó að
hún talaði um Peron sem „ástúðlegan
mann í framkomu, sem minnir dálítið
á samkvæmis-casanovana af gamla
skólanum". Gina, sem lifir i farsælu
hjónabandi með júgóslavneska læknin-
um Mirko Skofic, mun ekki liafa talið
Umferðalögreglan í Duisburg í Þýska-
landi hefir fengið sltórar lögreglu-
niannamyndir til þess að hjálpa sér
til að benda vegfarendum á umferða-
skiltin. Er gert ráð fyrir að fólk taki
betur eftir þeim þegar þeir sjást benda
á þau.
ástæðu til að gefa einræðisherranum
undir fótinn — þó að sennilega hefði
það borið góðan árangur. Að minnsla
kosti þóttust þeir, sem sáu þau saman,
vissir um það.
■En Peron var varkár og hafði liemil
á aðdáun sinni á liinn fögru
ílölsku kvikmyndadís. Á yfirborðinu
var hann ennþá syrgjandi eiginmað-
ur, sem eigi mátti sýna kvenfólki
atlæti nema í hófi. — Argentínu-
mcnn vissu ekki, að Peron svalaði
fýsnum sínum eigi langt frá bústaðn-
um sinum í Olivos.
ÞÆR LAGLEGUSTU FRÁ UES.
Ekki langt frá höll Perons i Olivos
voru leikvellir og íþróttavellir UES
— úUnion Estudiantes Secundarios“
i Buenos Aires. Þar eyddu þúsundir
af unglingum — körlum og konum —
fristundum sínum við alls konar
líkamsæfingar.
Peron fór að venja komur sínar
þangað. Þar gekk hann um innan um
unga fólkið og var alls ekki iíkur
„syrgjandi ekkli, sem sjaldan brosti“.
Peron fór að ganga i íþróttabúningi
og taka þátt í líkamsæfingum „í hinum
allt of fáu frístundum sinum“.
En það var ekki fyrr en Peron
fór að hafa fallegustu stúlkurnar með
sér lieim til sín og skemmta sér með
þeim, í stað þess að sitja veislur er-
lendra sendiherra, sem sögurnar fóru
að komast á kreik. — En þó trúði
öll alþýðan, en hún studdi fyrst og
fremst Peron, ekki slikum sagum,
en þóttist viss um að einræðisherrann
væri Evitu „eilíflega trúr“.
Erfiðleikarnir hófust fyrir al'vöru
eftir að Peron var farinn að gefa
þremur dömum svo gott auga, að
áróðursmálaráðherrann varð í vand-
ræðiim. Ein þeirra var Edda Ciano.
Hún cr sem kunnugt er dóttir
Mussolinis. Þegar föður hennar var
steypt af stóli 1942, var Ciano greifi,
tengdasonur hans, einn af samsæris-
mönnunum. Og þegar „II Duce“
komst til valda aftur, með þýskri
hjálp, árið 1944, lét hann varpa
Ciano í fangelsi og dæma hann til
dauða fyrir landráð. Edda flýði lil
Sviss.
Eftir striðið fór luin í mál við
ítalska rikið til að fá greidd ritlaun,
sem henni báru fyrir útgáfu endur-
minninga Cianos greifa í Bandaríkj-
unum. Ritlaunin höfðu verið gerð
upptæk í USA. Dagbækurnar voru
auðvitað gefnar út í Argeiitínu líka,
meira að segja undir eftirliti Perons
sjálfs, og „descamisados“ — hinir
skyrtulausu", þ. e. alþýðan keypti
Peron var illa þokkaður af rómversk-kaþólskum mönnum, og páfinn bann
færði hann, en hér sést hann hins vegar þiggja heiðursmerki frá grísk
kaþólsku kirkjunni.
bókina mikið. Fjárhagshlið málsins
hjálpaði Perön Eddu með á besta hátt.
Þarna var ekki ritlaununum haldið lil
Iiaka, enda voru þau aðal tekjlilind
Eddu Mussolini.
En það var hersýnilegt og öll sú
hugulsemi og fjárhagsaðstoð sem
Edda naut af 'hálfu Perons hlaut að
vekja umtal og hvíslingar. En undir
eins og eitthvað í þá átt birtist á
prenti lýsti dóttir Mussolinis það upp-
spuna, með svo mikilli ákefð að
grunsamlegt þótti.
Svo var það Maria Teran de Weiss.
Péron sýndi henni svo mikla liugul-
semi, og fór ekki dult með, að það
var altalað að hún ætti að verða
eftirmaður Evitu. Hún hafði vcrið gift
argentinska iðjuhöldinum og tennis-
kappanum Haraldo Weiss, sem varð
fvrir því óláni að fá hart tennisbolta-
skot- í magann árið 1951 og dó eftir
nokkra mánuði. Peron forseti, sem
missti konuna um líkt leyti, fór þegar
i stað að hlaða undir'hana og geröi
hana að leiðtoga æskulýðsiþróltanna
og sæmdi hana mjög háu argentínsku
tignarmcrki fyrir „mikilsverð afrek“.
Skönnnu síðar bauð hann hcnni með
sér í ferðalag til Chilc. Ekkillinn og
ekkjan fóru, og áróðursmálaráðherr-
ann átti i miklum vanda, er hann
reyndi að breiða yfir þetta.
Og loks kom franska kvikmynda-
dí'sin Andree Debar til sögunnar. Hún
var svo nauðalik Evitu Peron í sjón,
að einræðisherrann skrifaði henni og
spurði hana hvort hún vildi koina
og leika Evitu ;— að vísu aðeins í
kvikmynd. Hún fór svo til Argentinu
og Peron lét taka myndir af þeim
háðum saman: i dýragarðinum, inn-
an um fólksfjölda, við móttökur, við
standmyndina af Evitu .. . En aldrei
varð nein kvikmynd af þessu, en hins
vegar komust margar sögur á kreik.
-GIFTINGARÁFORM.
Svo gerðist það að páfinn bann-
færði Peron og herinn og flotinn gerði
samsæri .gegn Peron. Einn prestanna,
sem flúði til útlanda, fræddi blöðin
á því, að Peron væri kvæntur stúdent,
19 ára, sem 'héti Laura del Solar, og
stóð framarlega í sútúdentahreyfingu
pcrónista. En þetta reyndist ekki rétt
þegar til kom. En hins vegar reyndist
hún sönn ástarsagan sem komst á
kreik um Peron og 1G ára stúlku,
Nelly Rivas, sem var handtekin nokkru
eftir að einræðisherrann flýði.
Hjá þessari ungu mær, sem átti
heima í foreldrahúsum, fundust ýms-
ir skartgripir, sem Evita Peron hafði
átt forðum, fín frönsk ilmvötn, iburð-
armiklir kjólar og alls konar lúxus-
vörur, kringum hálfrar milljón pesos
virði. Einnig hafði Peron gefið telp-
unni lúxusbifreið. En vinnufólkið í
höll Perons í Olivos gat líka frætt
lögregluna á þvi, að „senorítan" hefði
alltaf komið til Perons á kvöldin og
aldrei farið fyrr en á morgnana.
Þegar Nelly Rivas var handtekin
sagði hún fyrir rétti, að hún væri
svo scm ekki sú eina, sem hefði þegið
gjafir af einræðisherranum. Og luin
nefndi ýmsar skólastúlkur, á aldrinum
15—17 ára.
Þannig var hið rétta andlit Perons
forseta, mannsins sem lét reisa Evitu
konu sinni minnismerki í flestum
horgum Argentínu og tókst að halda
völdunum lengur en flestir einræðis-
stjórar Suður-Ameriku hafa gert. Það
er kannske engin tilviljun, að þegar
hann kom til Paraguay sem flótta-
maður, fékk hann inni hjá vini sinum,
sem á sínum tíma hafði orðið að flýja
frá Argentinu til þess að komast hjá
að lenda í fangelsi fyrir tvikvæni! *
♦♦♦