Fálkinn


Fálkinn - 09.03.1956, Side 9

Fálkinn - 09.03.1956, Side 9
FÁLKINN 9 ætlaði ekki að lofa telpunni út i góða veðrið til hennar. Frá þvi Anna María vaknaði um morguninn hafði liún verið þögul og afskiptalaus og ekki sleppt litlu budd- unni, sem mannna gaf ihenni. Sigga fékk að klæða hana í útiföt, án nokk- urs áreksturs. Á treyjunni sem hún færði barnið í var litill vasi og þar gekk Anna María frá buddunni. Þegar systkinin fóru út kvöddu þau mömmu sína og Tonnna, öll riema Anna María, hún kvaddi engan en þumbaðist út til Möttu. Eins og telpan átti vanda til í seinni tið, leit helst út fyrir, að hún væri að velta einhverju fyrir sér, sem hún gat ómögulega mun- að hvað var. Matta tók Önnu Maríu vel, hún átti cngin systkini til að leika sér við og var fegin að fá hana til sín, þegar gott var veður. En i dag var Anna Maria í þungum þönkum og þó að sjálfur brúðuvagn- inn hennar Möttu stæði henni til boða vildi hún ekkert með hann hafa. „I kvöld eru jól,“ sagði liún. „Nú fer ég út að kaupa.“ Matta skildi ekkert i þessum duttl- ungum, sjálf hafði hún enga löngun til að kaupa neitt. Hún flýtti sér að ná i litla sleðann, sem hún fékk í afmælisgjöf um daginn og bauðst til að lána Önnu Maríu hann, það var svo gott að draga hann eftir snjófölinu. Anna Maria lét sem hún sæi ekki sleðann, hún gekk að garðshliðinu og horfði út á götuna. Hún kannaðist við þessi ihús, þó að hún hefði aldrei bein- línis veitt þeim eftirtekt. Þau höfðu bara alltaf verið þarna, Þó að Önnu Maríu virtust þau ósjálegri núna en áður. — Nú var hún að verða stór og gat gengið ein á þessari götu, — alein. Tomma Iitla þurfti að passa. „Komdu,“ sagði Matta litla og rétti fram höndina. „Ég fer að kaupa,“ sagði Anna Maria. „Ég á pening og veski." Hún klappaði á treyjuvasa sinn. Hún opn- aði hliðið og fór út á götuna. Malta horfði á eftir Önnu Maríu, þar sém hún hljóp niður götuna. Nú var ekkert gaman að fínu, fallegu brúð- unni, brúðuvagninum eða nýja sléð- anum. Hún vildi eiga pening og fara út að kaupa eins og Anna María. Þetta var ákaflega viðkvæmt mál fyrir Möttu. Hún skyldi líka fá pening hjá sinni mömmu og fara út að kaupa. María í Fífuhvammi kepptist við störfin, hana langaði að vera búin að koma sem allra mestu frá, þegar Magnús kæmi heim. Hann iagði sannarlega nóg að sér, þó að heimilis- störfin biðu hans ekki þegar heim kom. Tommi dundaði á gólfinu innan um gullin sín. Svona var Anna María róleg á hans aldri. Hún gat ekki látið vera að hugsa til þess, að barnið skyldi vera drifið að lieiman. Ó, hvað hún hlaut að hafa grátið og kallað á mömmu og pabba. En öllu má ofbjóða, gráturinn hefði sjálfsagt dvinað af þreytu og ótta við fóstruna, sem skiidi það eitt, að hin börnin urðu að geta sofið fyrir orgunum í krakkanum. Maria stundi við. Því var hún nú að liugsa um þetta ennþá einu sinni og særa sjálfa sig með þvi. Hún var sannfærð um, að hún hafði ekki rækl skyldur sínar gagnvart barninu, að þetta skyldi koma fyrir. Það voru ekki öll börn, sem þoldu það á þessum viðkvæma aldri, að vera rifin að heiman og kastað inn í ókunnugt um hverfi. — Það var líka önnur hlið á þessu máli, í gegnum þetta leiða at- vik hafði hún kynnst Magnúsi á ann- an hátt en hana hafði nokkru sinni órað fyrir að hún ætti eftir. Hvar voru þá gömlu kynnin þeirra og ö!l hennar yfirvegun áður en hún játaðist honum? Ó, að þetta skyldi henda hana, að ])urfa að rengja alit, sem henni hafði áður verið svo ljúft að treysta. María ieil til Tomma, hann var hættur að leika sér en iiallaði höfð- inu upp að þilinu og lokaði augunum. Hún tók hann blíðlega í fangið, færði hann úr fötunum og lagði hann i litla rúmið. En jafnvei þessi þjónusta við barnið gat ekki sefað hugarangur hennra. Betur að góður guð vildi íui senda henni einhverja hjálp út úr þessu öngþveiti. Hugur Maríu dreifðist, þegar Magn- ús og börnin konm heim. Börnin voru þögul en glöð og pukursleg. Það var víst jólagjöfin handa henni, sem þau voru að pukrast með. „Þið hafið tekið hana Önnu Mariu heim með ykkur," sagði María. „Við héldum að hún væri komin inn,“ sagði Sigga. „Þær voru ekki í garðinum, þegar við gengum þar fram hjá.“ „Æ, það var leitt,“ ansaði konan. „Þú ættir að skreppa út að sækja hana, Sigga mín, áður en við förum að borða.“ Sigga hljóp strax út, en kom að vörmu spori aftur án Önnu Mariu. Hún hafði þá sögu að segja, að Matta lægi inni með ólund yfir því, að hún fékk ekki aura eins og Anna María, sem ekkert hafði viljað leika sér í garð- inum, því að í kvöld voru jól og hún var að fara út til að kaupa. Magnús leit óttasleginn til konu sinnar. Áhyggjur hans snerust fyrst og fremst um hana. Þetta seinasta misseri hafði heilsu hennar hrakað mjög. „Ég ætla að bregða mér snöggvast út og heyra nánar um þetta,“ sagði hann. „Best er að börnin borði á með- an. Telpan hlýtur að vera einhvers staðar að slangra hérna við búðar- gluggana.“ María var verulega óróleg. Hefðu þau tekið hana með sér í morgun, myndi þessi ofraun ekki hafa dunið yfir. Þar að auki mátti Magnús sjá það, að telpan bjó yfir einhverju í morgun, þegar liún fór út. Það hafði eflaust verið þessi grilla, sem hún gekk með í kollinum. En engan þýddi að ásaka úr því sem komið var. Allt væri gott, ef guð gæfi henni barnið heilt á húfi. Börnin voru búin að borða, þegar faðir þeirra kom aftur inn. Gleðin sem liafði geislað af andlitum þeirra, er þau komu fyrst lieim, var með öllu horfin. Þau vissu að Anna María var óviti, aðeins þriggja ára barn. Ef eitt- hvað yrði nú að lienni myndi engin jólagleði verða hjá þeim og fallega vel skreytta jólatréð myndi ekki bera nein ljós. Magnús var engu fróðari en Sigga. Enginn vissi neitt um Önnu Maríu, nema það sem Malta sagði. Það var að verða ískyggilega langur timi, síð- an hún fór þetta. — „En auðvitað er barninu engin hætta búin um hábjart- an dag i þessu indæla veðri og fólk alls staðar á ferli,“ sagði Magnús. María varð ein eftir með Tomma litla. Verkin biðu, en þrátt fyrir það sat liún eins og lömuð og starði fram fyrir sig. Hvorki hendur né fætur vildu lilýða henni og hugur hennar var sljór. Gangur iífsins var marg- þættur. Hvað myndi nú ske? Var þetta guðs ráðstöfun eða var verið að hirta þau fyrir sljóleikann? — Nú gat hún séð hvernig i þessu lá. Anna María hafði verið vansæl í morgun, svo vansæl að lnin skaut sér undan því að kveðja mömmu eins og hin börnin gerðu. Og hún, móðirin, leit- aði ekki eftir ástæðunni heldur iét litla óvitann einan um það, sem að henni amaði. Þó að Maríu hefði fundist fyrir skammri stundu síðan, að hún gæti hvorki hreyft legg né lið, þá stóð hún nú upp og gekk eins og i leiðslu inn í svefnherbergið. Hún fór úr sloppn- um og lagðist fyrir i rúmið sitt. Hún var undarlega fyrirkölluð. Henni fannst einhver ósýnileg hendi stjórna sér til alls sem hún aðhafðist og ýta frá sér erfiðleikunum. Hún gat ekki á annan hátt skýrt ástand sitt. Hana sveið í augun og þegar hún lokaði þeim læddust tár niður vanga hennar. — Rúmið hennar gekk í bylgjum, seig niður eða hófst upp. — En svo fann María, að það var ekki rúmið, sem tók þessar difur, heldur hún sjáif. Hún fékk hugmynd um, að þessa stund væri hún einlhvers staðar á milli lífs og dauða, en það hafði engin sérstök áhrif á hana, vakti hvorki gleði né kviða. Maríu hvarf minni, hún virtist sofa værum, djúpum svefni. Sál hennar hélt þó áfram að þjóna móðurskyld- unni. Þarna sá hún Önnu Maríu sof- andi i rúmi, kinnar hennar rjóðar og heitar og Ijósa hárið hafði verið strok- ið frá enninu. Siminn hringdi heima hjá Magnúsi í Fífuhvammi, en enginn ansaði. Póst- urinn kom og bankaði i hærra lagi á dyrnar, en engin sála virtist vera heima i húsinu. Slikt var þó með ó- líkindum á sjálfan aðfangadaginn. Loks komst Maria aftur til meðvit- undar. Hún hafði sofið svo fast, að hún var dálitla stund að átta sig á, að það var Tonnni litli, sem var farinn að láta heyra i sér. Um leið heyrði hún í Magnúsi. Hvernig stóð á því, að hann var kominn heim um þetta leyti dags? En allt í einu glaðvaknaði hún og mundi eftir öllum kringumstæðum. Og nú kom Magnús í dyrnar og brosti til liennar. „Þetta var vel og skyn- samlega gert af þér, góða mín,“ sagði hann. „Betur gastu ekki notað tímann. Það er allt í lagi með Önnu Mariu,“ bætti hann við svolítið vandræðaleg- ur á svipinn. María flýtti sér að laga sig til og fara fram í stofuna á eflir Magnúsi. Þar stóðu börnin í hnapp og horfðu á Önnu Maríu og ókunna stúlku, sem sat með hana á hnjánum. „Fann hún barnið?“ sagði María áköf. „Við fundum hvor aðra,“ sagði ókunna stúlkan hróðug. „Ég var að sækja mjólk fram í Útbæ, þá heyrði ég barnsgrát og þekkti strax að það var Anna María sem grét.“ „Það var undarlegt,“ tautaði María. „Nei, það var ekki svo undarlegt, frú. Nei, ekki svo mjög. Við Anna María vorum saman á barnaheimilinu ihennar fröken Sesselju. Því miður var það aðeins seinasta mánuðinn, sem Anna María var þar, en það var þó betra en ekki neitt. Þær voru alveg að eyðileggja barnið, það grét og grét og þær hristu hana og hótuðu svo að hún var bæði lirædd og reið. En við Anna María urðum mestu mátar. Þær ráku mig af þvi að ég eyddi of miklum tima i hana, já, það gerði fröken Sesselja. Það gerði reyndar ekkert til, Anna Maria fór.um sania leyti, og ég hefði aldrei unað mér þar, þegar hún var farin.“ Ókunna stúlkan strauk Önnu Maríu mn koll- inn, og litia stúlkan var sæl á svipinn. „Ég er nú þannig gerð,“ hélt ókunna stúlkan áfram, „að ég þoli aldrei eð heyra ilia farið að börnum, þó ég eigi ekkert barn sjálf.“ Stúlkan þagnaði. Magnús snéri sér að Maríu og lét í Ijós ósk um að fá nú reglulega gott kaffi. „Día má ekki fara,“ sagði Anna Maria. „Día,“ endurtók María. „Það er ein- mitt nafnið, sem barnið stagaðist stöðugt á, fyrst eftir að hún kom heim. Hún var hætt að nefna það í seinni tíð, en stundum gripu hana köst, þeg- ar mér virtist iiún stöðugt vera að reyna að muna eitthvað." „Ég.beiti Þórdís og er kölluð Dísa, en Anna María sleppti essinu og sagði Dia.“ María fór fram að hita kaffið. Þór- dís hjálpaði Önnu Maríu úr útifötun- um, og telpan hljóp eftir inniskónum sínum svo Día gæti selt þá á hana. Þórdis leit á barnahópinn. „Hafið þið ekki ihjálparstúlku?" sagði liún við Magnús. „Nei, hún er nú engin,“ ansaði ihann. „Þeim þykir það ekki glæsilegt, blessuðum stúlkunum, að fara inn á svona heimiii, þar sem börnin eru mörg og húsmóðirin heilsuveil og þarfnast fyrst og fremst hvíldar." Það kom hik á stúlkuna. Lítil, ljós- blá augu liennar urðu flöktandi og hún gat ekki leynt óróa sinum. Það var auðséð að lnin reyndi árangurs- laust að ná öryggi sinu. Án þess að líta á Magnús sagði hún stamandi: „Ég gæti kanske, ef þið vilduð, ver- ið hérna einlivern tíma. Ég á heima hjá mömmu og systkinmn mínum og get farið og komið þangað eftir þvi sem á stendur fyrir mér.“ „María, heyrir þú hvað lnin segir.“ kallaði Magnús. María kom í dyrnar. „Hún Þórdís er að bjóða okkur hjálp sína ef við viljum.“ „Ja, ef við viljum," endurtók María, og nú sá Magnús, að konan hans var þrútin til augnanna cins og hún hefði grátið. Hún sneri út í eldhúsið aftur, og hann hraðaði sér á eftir henni. -— Þau þögðu um stund, en báðum fannst það sama, fannst að jólahelgin hefði borist fyrr í bæinn þeirra en þau hefðu átt von á. Þau fóru bæði saman inn i stofuna aftur. „Þú verður þó að vera heima lijá þér fram yfir jólin, Þórdís mín,“ sagði María. „Ég er ekki við neitt bundin," svar- aði Þórdís örugg og ákveðin. „Mér dugar að sírna núna. Á morgun get ég skroppið heim og lofað Önnu Mariu með, ef hún má.“ Eldri börnin fengu pabba sinn með sér fram i forstofuna. „Finnst þér bún ekki góð,“ sagði Sigga grátklökk. „Við verðum að finna eilthvað reglu- lega fallegt handa henni í jólagjöf.“ Magnús klappaði Siggu á vangann. Hann var eitthvað ólíkur sér og seinn til svars. Með sjálfum. sér var hann viss um, að þessi óvænta hjálp sem Anna Maria hafði komið með inn á iheimilið, mundi verða þeim öllum til blessunar og börnunum ómetanleg fyrir seinni tímann. „Hollur er sá sem hlífir,“ tautaði María við sjálfa sig. Ilún hafði varla ennþá áttað sig á því, hvernig áhyggj- um hennar og erfiðleikum hafði allt í einu verið aflétt.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.