Fálkinn - 06.07.1956, Side 8
8
FÁLKINN
Cdkarablóð
ÞEGAR Joy kom aftur út á götuna í
rigninguna, bœrðist hjartaö í henni
liraðar en það átti vanda til. Hún
var að koma úr danskennslustund iijá
Alex Tremp, og liann iiafði sagt að
hún gæti dansað. Hingað til hafði
hann iátið nægja að kinka vingjarn-
lega kolli við og við, en i kvöld hafði
hann klappað á öxlina á henni og sagt
að hún hefði tekið stórkostlegum
framförum.
Joy fór beint í litla ieikhúsið, sem
faðir hennar starfaöi við. Hann hafði
ekki hugmynd um að lnin hafði notið
kennslu í iistdansi i meira en heilt
ár, og að hún notaði afla sína fjár-
muni og fristundir i þetta. Hún hafði
starfað markvisst og lagt mikið á sig.
Þrjú kvöld í viku var hún lijá dans-
kennaranum, og hin kvöldin æfði hún
sig heima í stofunni meðan faðir
hennar var í leikhúsinu. Hann var
gamanleikari og oft í leikferðum. I
æsku hafði hann verið frægur mað-
ur, en hann vildi aldrei heyra nefnt
að dóttir hans helgaði sig leiklistinni.
Joy liafði verið látin ganga á versl-
unarskóla og síðan hafði hún fengið
pláss á skrifstofu. Þetta var hún að
hugleiöa á leiðinni upp að leikhúsinu.
Hvað mundi faðir hennar segja þegar
hann heyrði að hún hefði afráðið að
liætta á skrifstofunni og skapa sér
lifsstöðu með dansi?
Hún stóð um stund fyrir utan leik-
liúsið og var á báðum áttum. Átti hún
að fara inn um dyrnar að leiksviðinu
og tala við föður sinn strax? Eða átti
hún að bíða þangað til eftir sýning-
una? Hún afréð að sjá hann á leik-
sviðinu fyrst, og gekk rakleitt inn um
aðaldyrnar og keypti sér miða.
Það var orðið langt síðan hún hafði
séð föður sinn á leiksviðinu. Hún
mundi hvernig luin hafði staðið að
tjaldabaki með móður sinni forðum
daga, og hlustað á dynjandi lófaklapp-
ið eftir gaman-atriðin, sem faðir
hennar lék í.
Sýningin var um það bil hálfnuð,
og dansandi par var að stíga síðustu
sporin í dillandi tangó þegar hún
settist. Svo kom faðir hennar. Joy
fékk hjartslátt þegar hún sá skrítna
litla manninn í lafafrakka og með
pípuhatt koma fram á sviðið. Hún
horfði óróleg á fyrstu tiltektirnar
hans. Svo renndi hún augunum stolt
og ánægð um salinn. En hvað var að?
Það var ekki svo mikið sem liún sæi
nokkurn mann brosa, en sumir geisp-
uðu án þess að bera höndina fyrir
munninn. Joy fann tárin brenna í
augnahvörmunum.
— Hann er tuttugu árum of seint
á ferð, hvislaði rödd bak við hana.
Joy kreppti hnefana til að harka af
sér. Einhverjir klöppuðu á víð og
dreif þegar tjaldið féll eftir fyrsta
leikatriðið.
— Bara að hann komi nú ekki aftur,
bugsaði 'Joy með sér. En þarna var
hann þá kominn og nú reyndi hann
glens, sem alltaf hafði fallið í góða
jörð þegar hann stóð upp á sitt besta.
— Halló! Eru allir farnir lieiin?
hrópaði hann fram í salinn.
— Við gerum það ef þér farið ekki
burt af sviðinu, svaraði rödd úr saln-
um.
Joy fann að hún roðnaði af gremju
þegar miskunnarlaus liláturinn í sal-
um kvað upp dóminn yfir veslings
gamanleikaranum. Að geta verið svona
þrælslegur við gamlan mann, sem
hafði lifað sitt fegursta. Enginn
mundi eftir fyrri frægðarferli Teds
Davies, live mikils virði margra ára
starf hans hafði verið fyrir gaman-
leikhúsin, og allri þeirri gleði og
hlátri, sem hann hafði vakið hjá
áhorfendunum í áratugi. Hún beit á
vörina og langaði til að hljóða er hún
sá máttvana brosiö hans er hann livarf
út á milli tjaldanna. Svo féll tjaldið.
Það var dregið upp aftur að vÖJ’mu
spori og nú sást landslag i tunglsljósi
og ungur maður í smoking stóð á svið-
inu og söng. Fólkið hagræddi sér í
stólunum og hlustaði gagntekið á
angurblítt ástarlagið. Það var kald-
hæðni örlaganna að einmitt Barry
Knight skyldi vera látinn bjarga við
óförum föður liennar, hugsaði Joy með
sér og var gröm. Þrátt fyrir mikinn
aldursmun höfðu faðir hennar og
Barry alltaf verið góðir vinir. Hún
vissi ekki hvers vegna hinn ungi
söngvari og gamli gamanleikari voru
svona samrýmdir. Hún mundi eftir
Barry frá því að hún var svo lítil að
hún var ekki byrjuð í skólanum. Hann
var koi-nungur þá, en byrjaði að leika
og kom oft heim til hins eldri starfs-
bróður sins, Ted Davies.
Henni hafði fallið vel við Barry
áður, en nú þoldi hún ekki að sjá
liann. Það stafaði af sérstöku atviki,
sem hafði gerst fyrir nokkrum mán-
uSum. Hún hafði verið að æfa erfiðan
dans heima í stofunni, en þá opnuðust
dyrnar allt í einu, og þar stóð Barry
og horfði á hana. Hún hafði beðiö
hann um að útvega sér ráðningu við
leikhús, en hann hafði þvertekið fyr-
ir það. Hún gat ekki fyrirgefið honum
að hann vildi ekki hjálpa henni. En
hún gleymdi ekki hve augnaráð hans
var einkennilegt þegar hann fór.
Og nú stóð hann þarna og dáleiddi
fólkið. Joy sparkaði ergilega í stól-
fótinn og snýtti sér rösklega. Sessu-
nautur hennar þaggaði gramur niðri
i henni, en fólkraðirnar gleyptu Barry
með augum og eyrum. Lófaklappið
var eins og skriða þegar hann var
búinn og hann varð að koma inn og
hneigja sig hvað eftir annað.
JOY flýtti sér út úr salnum og að bak-
dyrunum að leiksviðinu. Hún hljóp
inn langan ganginn að hei-bergi föð-
ur síns. Ein hurðin stóð í hálfa gátt
og hún heyrði að Barry var að tala
við annan mann fyrir innan. Hún
heyrði ekki fyllilega livað Barry sagði
en hinn maðurinn var talsvert hávær.
— Ted verður að hypja sig burt þegar
þessi vika er úti, Barry, sagði hann
æstur. — Mér er enginn akkur i að
hafa hann lengur. Hann er orðinn of
gamall.
— Talaðu ekki svona liátt, tók Barry
fram í. — Hann gæti heyrt til okkar.
Joy flýtti sér framhjá og að dyrum
föður síns. Þær voru lika i hálfa gátt
og þegar hún kom í gættina heyrði
hún dynk og sá handlegg falla mátt-
lausan á gólfið. Eftir augnablik stóð
liún á hnjánum á gólfinu og var að
stumra yfir gamla manninum, sem
hafði fallið i ómegin.
— Pabbi! hljóðaði hún og lyfti
höfðinu á honum varlega en tárin
runnu niður kinnar hennar. Sem bctur
fór fékk hann meðvitundina von bráð-
ar, en hann var svo máttfarinn að
hann gat ekki staðið upp.
Barry kom hlaupandi og spurði
hvort eitthvað væri að.
— Þér og hann vinur yðar töluðuð
dálítið of liátt, sagði Joy. — Þér skuluð
athuga næst að loka dyrunum.
Svo var hringt eftir iækni, og hann
lét flytja sjúklinginn heim og sagði
að hann yrði að liggja.
Læknirinn leit inn morguninn eftir,
og áður en hann fór sagði hann Ted
að hann yrði að fara varlega með sig
um sinn.
— En ég verS að vinna, maldaði
gamli leikarinn í móinn, angurvær.
Ég má ekki svíkja leikluisið, læknir.
Þér hljótið að skilja að ...
— Ég veit það eitt, að ég get ekki
tekið ábyrgð á hvað fyrir kann að
koma, ef þér farið ekki hyggilega
að ráði yðar og gerið eins og ég segi,
svaraði lækniidnn rólegur.
Þegar hann var farinn settist Joy
á rúmstokkinn hjá föður sínum. Það
var glampi í augum liennar, þvi að
henni hafði allt í einu dottið ráð í
hug.
— Hafðu engar áhyggjur af þessu,
pabbi, við getum komist af með kaup-
ið mitt. Þú getur treyst því að það
fer allt vel, og bráðum verður þú
hress aftur.
— En leiklnisið, barnl sagði Ted
raunalegur. — Ég veit vel að Black
ætlar að reka mig út á gaddinn bráð-
um, en ég get ekki látið reka mig i
miðri viku. Ég hefi samning til
sunnudags, og það er ekki auðvelt að
breyta skemmtiskránni í einu vet-
fangi.
— Ég skal koma við hjá Black á leið-
inni á skrifstofuna, sagði Joy. — Það
rætist einhvern veginn úr þessu.
Hálftima síðar stóð hún fyrir utan
Iistdansskóla Alex Tremps og hringdi
dyrabjöllunni. Hann var að borða
morgunverðinn og hnyklaði brúnirnar
þegar Joy, með tindrandi augum og
rjóð i kinnum, bað hann um að koma
með sér til Blacks forstjóra á Gaman-
leikhúsinu þegar i stað.
Eftir tíu mínútur voru þau á leið-
inni í leikhúsið, án þess að Tremp
veslingurinn hefði fengið að vita
hvaða erindi hann átti þangaö.
BLACK virtist ekkert hrifinn þegar
liann sá Joy og Tremp koma inn í
skrifstofuna.
— Jæja, hvernig liður lionum föður
yðar? urraði hann.
— Hann segir að það sé best að þér
fáið einhvern annan til að talcá við
starfinu hans, sagði Joy.
— Það er þvi miður ekki hægt í
miðri viku. Faðir yðar er að vísu að
syngja síðasta versið hérna hjá mér,
en ég hafði hugsað mér að hafa hann
út vikuna. Ég get ekki sagt honum
upp fyrr en ég hefi útvegað mér nýtt
skemmtinúmer.
— Ég ætla að gera tillögu, sagði
Joy. Ég skal taka við af föður minum.
Herra Tremp mun vilja votta að ég
get dansað. Hann liefir kennt mér.
Black glotti út í annað munnvikið.
— Ungfrú Davies er betri en marg-
ar atvinnudansmeyjarnar, sem ég liefi
kennt, sagði Tremp. — Hún er fylli-
lega sambærileg við Lolu Grange.
— IJvað kemur Lola yður við?
Tremp brosti. — Það var ég sem
kenndi henni að dansa.
— Tremp, já, einmitt, nú man ég
það. Alex Tremp, er ekki svo? sagði
Black. Hann horfði á dansmeistarann
með lotningu, og leit svo fram til dyr-
anna, þvi að lokið var upp.
— Nú, ert það þú, Barry, komdu
bara inn. Dóttir Teds Davies var að
bjóðast til að hlaupa í skarðið fyrir
hann föður sinn.
Barry kom inn i skrifstofuna. —
Og hvað skyldi pabbi svo segja um
það?
— Hann fær ekkert að vita um það.
Black hafði tekið ákvörðun. — Við
skulum þá hafa æfingu síðdegis í dag,
ungfrú Davies!
Hvorki leikliússtjórinn né Barry
sögðu neitt eftir æfinguna en Joy var
sagt að koma í leikhúsið góðum tima
áður en byrjað væri. Hún flýtti sér
heim og bjó lil mat handa föður
sinum.
Það lá illa á henni er hún var á leið-
inni i leikhúsið aftur. Hugsum okkur
að faðir hennar kæmist að þessu!
Hún varð aö bíða lengi áður en að
henni kom. Hún. var hrædd og óró-
leg og lá við að óska að Barry kæmi
og hughreysti liana. En það gerði
hann ekki.
LOKS átti hún að fara inn á leiksviðið.
Hljómsveitin lék og húti dansaði inn.
Hún var hrædd við þetta gímaki
kringum sig, og áhorfendurna sá hún
eins og i grárri þoku. Hún mundi
hvernig hafði farið fyrir föður henn-
ar kvöldið áður og hræðslan greip
hana svo að lienni lá við að reka tærn-
ar i. Það var rétt svo að fólk nennti
að klappa.
— Inn aftur, skipaði Black. — Þér
eigið að dansa annan dans í viðbót.
— Ég veit það, stamaði Joy kjökr-
andi, — en ég held ekki að fólkinu
þyki neitt varið i að sjá mig dansa.
— Nei, þér eruð full klassisk fyrir
þessa áhorfendur, sagði leikhússtjór-
inn hreinskilnislega. — En það þýðir
ekki það sama og þér séuð léleg.
Það kom glampi í augun á honum,
en hún tók ekki eftir þvi. Hún beit
á jaxlinn og byrjaði nýja dansinn. Hún
sá varla frá sér vegna táranna i aug-
unum. Var það til að upplifa þessa
niðurlægingu, sem hún liafði sparað
og lagt að sér og neitað sér um allt
annað — og meira að segja farið bak
við föður sinn!
Þá heyrði hún allt í einu skæra
tenórrödd syngja lagið, sem hún
dansaði eftir. Það var Barry! Nú
heyrði hún ánægjulegan klið neðan
úr salnum og allt í einu hafði luin
fengið fullt vald yfir sjálfri sér. Henni
— Þetta húsnæði er alltof stórt
fyrir eina konu ...