Fálkinn


Fálkinn - 06.07.1956, Blaðsíða 9

Fálkinn - 06.07.1956, Blaðsíða 9
FÁLKINN 9 gramdist viö Barry fyrir það að hann hafði ætlað að reyna að „bjarga“ henni. Hún skyldi sannarlega sýna bæði honum og áhorfendum að hún þurfti engan „björgunarhring“. Nú var ekki ástæða til að kvarta yfir undirtektunum. Barry kom fram og tók í höndina á lienni og þau tóku á móti lófaklappinu í sameiningu. Þau urðu að gefa aukanúmer og lófaklappið í salnum ætlaði aldrei að enda. Eftir fjórða og síðasta auka- númerið hljóp hún fram i klæðaklef- ann og flýtti sér að hafa fataskipti. Hún hataði Barry — alltaf þurfti liann að sletta sér fram i það, sem lionum kom ekkert við! Svo æddi hún heim til sín og vissi hvorki i þennan heim né annan fyrr en hún var komin til föður sins. — Ó, pabbi! sagði hún með sárum ekka og flcygði sér á rúmstokkinn lians. Hann strauk hárið á henni, og svo sagði liún honum kjökrandi alla sög- una. — Ég vil ekki standa i þakkarskuld við Barry, hrópaði hún með þráa. — Hann er svo mikill á lofti og ánægður með sjálfan sig, og lítur niður á mig og mína líka. — Þér skjátlast i því, Joy. Barry er besti vinur minn. — Hvað áttu við? — Mig langaði tii að veita þér tryggan undirbúning undir lífið, Joy. En um það leyti sem þú hafðir aldur til að fara að menntast fann ég að heilsan mín var farin að bila. Leik- húsin gátu verið án Ted Davies. Þá var það sem Barry hjátpaði mér. Hann sá vel, að ég var enginn „stólpagrip- ur“ iengur, en hjálpaði mér samt til að fá atvinnu. Þegar hann vissi að ég átti bágt með að standa í skilum með skólagjaldið þitt, kippti hann því i lag líka. Joy gat ekki komið upp nokkru orði. En nú var dyrabjöllunni hringt og Barry slóð við dyrnar. Hún skildi ekkert hvers vegna liún fékk svo mik- inn lijartslátt. — Heyrðu, Joy, sagði liann, — ég veit að þú heldur að ég hafi stolið „númerinu“ þínu í kvöld. En ef þú tiefðir ekki þotið svona fljótt af æf- ingunni í dag, mundir þú hafa heyrt, að þetta var afráðið fyrirfram. — En hvers vegna fékk ég ekki að vita það áður en ég byrjaði að dansa? — Af því að ég vissi að þú mundir ekki fallast á það. — Já, af þvi að þið voruð svo lúa- legir við hann pabba. — Nú skal ég segja þér nokkuð, Joy. Black er stórhrifinn af númerinu okk- / \ — Mér finnst endilega ég hafa gleymt einhverju. ar. Söngurinn minn væri einskis virði án dansins, og sama er að segja um dansinn. En saman — aftur á móti ... — Heldurðu það? Það kom vonarglampi í augu henn- ar. En svo datt henni annað í hug. Hún leit feimnislega á Barry. — Hann pabbi hefir sagt mér frá hve mikið þú hefir gert fyrir okkur, um skólann og ... ég skal borga þér þetta aftur undir eins og ég fer að vinna fyrir einhverju á leikhúsinu ... — Ég kysi heldur að þú borgaðir mér það með öðru móti, Joy. Hann horfði beint í augun á henni. — Joy, mér hefir lengi þótt vænl um þig, ég varð ástfangin af þér daginn sem ég sá þig dansa i stofunni. Ég veit að þú varst reið af því að ég vildi ekki hjálpa þér til að ná í ráðn- ingu, en ég gat það ekki. Ég liafði lofað föður þinum að reyna að bægja þér frá leiksviðinu ... Þau heyrðu sjúklinginn kalta innan úr svefnherberginu. — Nú skal ég koma, pabbi, kaltaði hún til baka. llún tók undir handlegginn á Barry og horfði á hann augum sem ljómuðu. — Komdu, við skulum koma bæði og segja honum frá ... frá nýja „númer- inu“ okkar. * Couis Öíelsch á fimtn konur Og heimilisbragurinn er fyrirmynd. AÐ eru fleiri en austurtanda- höfðingjar, sem hafa kvenna- búr. Louis Kelsch, rösklega fer- tugur maður í Utah er kvæntur fimm konum og býr með þehn öllum i sátt og samlyndi. Hann er mormóni og samkvæmt trú þeirra var fjölkvæni leyft fyrr- um, eða jafnvel fyrirskipað. En árið 1890 var mormónum bannað fjölkvæni. Sumir þeirra hafa ekki viljað htýðnast þessu banni og telja það brjóta i bág við liina einu sönnu mormónatrú. En þessir menn eiga í stríði bæði við mormónakirkjuna sjálfa og við hin borgaralegu yfirvöld. Louis Kelsch býr á afskekkt- um stað í nokkrum smáhúsum með konurnar sínar fimm og 31 barni, sem liann liefir átt með þeirn. Svo að þetta er þungt heimili hjá lionum. Eins og stend- ur getur heimitisfaðirinn ekki unnið fyrir konum og krökkum, því að hann situr í fangelsi fyrir fjölkvænið. En konur hans treysta því að hann verði bráðlega lát- inn laus, því að hér er ekki um venjulegt fjölkvæni að ræða. Hann hefir ekki leynt þær neinu, og þær vissu að liverju þær gengu. Konurnar eru: Elise, 46 ára og á 12 börn. Barbarab, 41 árs á 9 börn. Susannah, 35 ára á 3 börn, Ellinor 31 árs á fjögur og Leona, 29 ára á þrjú börn. En sjálfur er Louis 41 árs. Tvær af konum lians eru systur en hinar eru ná- skyldar. Nú mundi margur spyrja hvernig þessum finnn konum kæmi saman — tivort ckki logaði allt i afbrýðisemi og illindmn og jafnvel áflogum og hárreyt- ingum, eins og stundum verður milli kvenna, sem elska sama manninn. Þær neita því og segja: — Trú- in tengir okkur saman! Sú yngsta segir í viðtali við blaðamann: — Ég get ekki neitað því að ég er stundum afbrýðisöm. Það er gagnstætt eðli kvenna að eiga mann með fleiri konum. Ef það væri ástin ein, sem við lif- um fyrir, væri svona sambúð ó- hugsandi, en við eigum trúna og hún bindur okkur saman. Trú okkar verður ávallt að vera sterkari en ástin til Louis, ef við eigum að geta bælt niðri í okkur löngunina til að hata hver aðra. Þær segja að maðurinn geri þeim öllum jafnhátt undir höfði, liann skiptir timanum jafnt milli þeirra, og þær vita jafnan hjá hverri konunni hann er þá stund- ina. Þarna er engin „eftirlætis- húsfreyja" ef treysta má því sem konur Louis segja, þó að dauð- legum mönnum mundi finnast líklegt að sú nýjasta væri það. Þau hafa sjaldan tíma til að fara í ferðalög þarna á heimilinu. En stundum er þó farið í 3—4 daga ferðalag. Þá fer Louis ekki nema með eina konu i einu, en allar fá jafnlanga ferð. Leona, sú yngsta, segir að sig mundi ekki tanga neitt til að eiga manninn sinn ein, eftir að liún hefir vanist að eiga hann með fjórum öðrum. Þegar hún var spurð hvort þeim konunum leidd- ist ekki og tæki ekki sárt að litið væri niður á þær, svaraði hún þvi, að þær hefðu engan tíma til þess. Attlaf nóg að gera á 31 barns heimili. Konurnar skipta með sér verkum, sumar vinna úti við aðrar gæta barnanna. Og svo drekka þær kaffi liver hjá ann- arri og tala þá einkum um kven- fólkið, því að ekki geta þær tatað illa um manninn sinn í viðurvist hyerrar annarrar. Næstyngsta konan, Eltinor, segir að hún sé alin upp til fjöl- kvænis. Hún kynntist Louis þeg- ar hún var skólastelpa og vissi að hann átti þrjár konur heima. Samt trúlofuðust þau og giftist honum þegar hún varð 16 ára. Hinar konurnar tóku henni vin- samlega og kenndu lienni bú- stjórnina, því að liún kunni ekki einu sinni að búa til kaffi. En þetta nægði ekki Louis. Hann varð að fá sér fimmtu kon- una og svo giftist hann Leonu, frænku Eillinor, sem var 15 ára. Og hver veit nema þær verði fleiri, ef hann sleppur úr fang- elsinu. Þessi fjölskylda er talin fátæk, en þó á hún bil og sjónvarp til sameiginlegra afnota. Og það er fjölmennt kringum sjónvarps- tækið í barnatimanum. Piasecki-flugvélaverksmiðjurnar í Pennsylvania hafa smiðað 40 farþega þyrilftugu, sem knúin er gastúrbinum, og hefir margvíslega kosti fram yfir eldri þyrilftugur, m. a. eru þær hrað- fleygari og sparari á eldsneyli. Hreyfl- arnir eru tveir, en vélin getur haldið fullum hraða, þó að annar þeirra sé ekki látinn starfa eftir að vélin er komin á loft. Dr. Antoine Lipie, tannlæknir í Argenton hefir orðið að mæta fyrir rétti út af einkennilegri lækningar- aðferð er hann notar við þá sjúkl- inga sína, sem kvenkyns eru. Undir eins og sjúklingurinn er sestur i „kvalastólinn" byrjaði tannlæknirinn lækninguna með þvi að kyssa sjúkl- inginn með svo ástríðufullri áfergju að það gekk fram af frúnni eða ung- frúnni og hún gleymdi öltu öðru en þessari biræfni. En þegar dr. Lipie kom í réttinn sagði hann vandlæt- ingarfullur: „Ég veit að aðferð mín er óvenjuleg, en titgangurinn með henni er aðeins sá, að draga athygli sjúklingsins burt frá tannpínunni. Enginn sjúklinga minna liefir kvartað undan aðferðinni, og 80 af hverjum hundrað sjúklingum mínum er kven- fólk. Þetta ætti að vera næg sönnun fyrir því að ég geri þetta í besta, þrælvísindalegum skilningi.“ — Það var rétt, sem tannlæknirinn sagði, að enginn af sjúklingunum hafði kvart- að, en ein frúin hafði sagt mannin- um sínum frá lækningaraðferð dr. Lipie. Og þessi maður var afbrýði- saniur. Hann fór undir eins til tög- reglustjórans og kærði. Tannlæknir- inn fékk aðeins smásekt, en áminn- ingu um að spara sem íiíest nýju að- ferðina. Tom Hill í Alrewas fékk fyrir nokkru heiðursgjöf, sem var dálítið sérstaks eðlis. Gjöfin var silfurbikar, sem hann fékk fyrir að liafa þambað 40.000 lítra af öli á sama stað og á tíkum tíma dags. Síðan árið 1895 hefir hann komið á bjórkrána „Tlie Crowns Inn“ á hverju kvöldi og drukkið tvo lítra af öli. Fangavörður i stærsta fangelsinu í Montevideo var nýlega sviptur em- bætti. Einn af vistmönnunum í fang- etsinu hafði kennt honum aðferð til að búa til silfurpeninga, sem ekkert silfur var í, og fangavörðurinn'orðið svo hrifinn af þessari aðferð, að hann liafði kennt móður sinni og systur, svo að þetta varð arðvænleg „lieima- iðja“ lijá fjölskyldunni. — Segðu við þá að þeir skuli ekki vera hræddir við okkur!

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.