Fálkinn - 14.09.1956, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Þátttakendui í fegurðarsamkeppninni
Mynd þessi er af þátttakendunum í fegurðarsamkeppninni, sem fór fram í Tivoli um síðustu helgi. Sex þeirra voru valdar úr til að taka þátt í úr-
slitakcppninni. — Aftari röð frá vinstri: Sigríður Guðmundsdóttir (10) Sauðárkróki, Sigrún Guðmundsdóttir (9) Reykjavík, Ásdís Stcinþórsdóttir (6)
Reykjavík, Lilja Hallgrímsdóttir (7) Reykjavík, Guðrún Guðmundsdóttir (8) Keflavík. — Fremri röð frá vinstri: Ida Jónsdóttir (4) Reykjavík,
Ester Garðarsdóttir (3) Fúskrúðsfirði, Jenny Lind Oddsdóttir (2) Akureyri, Ágústa Guðmundsdóttir (1) Reykjavík, Guðlaug Slsagfjörð (5)
Reykjavík. Ljósmynd: Pétur Thomsen.
INGRID BERGMAN FÆR „SÍTRÓNU-
VERÐLAUN“. — Franskir blaðamenn
veita árlega svokölluð sítrónuverð-
laun þeirri persónu, sem hefir geng-
ið best fram í að neita þeim um við-
tal, og þeir telja þess vegna „súra“.
Það var Ingrid Bergman sem fékk
verðlaunin i þetta skipti. Jafnframt
veitti félagið ýmsum leikurum „appel-
sínu-verðlaun“, en þau tákna hið
gagnstæða.
GLAÐUR GESTUR. — Ungfrú Mirva
Arvinen fegurðardrottning frá Finn-
landi liefir undanfarið dvalið í Lon-
don, sem gestur enskra kvikmynda-
leikara sem gistu Finnland fyrir
nokkru. Finnskar stúlkur hafa jafnan
fengið mikið lof fyrir fegurð sína,
þegar þær hafa komið fram á alþjóð-
legum fegurðarsamkeppnum.
TVÆR í BRÓKINNI. — Tvær þýskar
glaumstelpur reyna að sýna hve auð-
velt þeim sé að komast fyrir sín í
hvorri skálm á brókunum, sem einn
af félögum þeirra í leikflokknum not-
ar. Það er ekki um að villast að þær
komast fyrir í buxunum, en hitt er
annað mól hve vel þessi klæðnaður
fer þeim.
MAKARIOS í ÚTLEGÐ. — Það er
svona útsýni, sem gríski erkibiskup-
inn Makarios hefir núna, eftir að Bret-
ar fluttu hann í útlegð til Seychelles-
eyja. Hann er í Victoria, sem er höfuð-
staður eyjunnar Mahé, en þar er eina
sæmilega höfnin á eyjunum. Seychell-
es-eyjar eru í Indlandshafi, norðaust-
ur af Madagaskar og á líku breiddar-
stigi og Kenya í Afríku.