Fálkinn - 11.01.1957, Qupperneq 11
FÁLKINN
11
I----------------
★ Yískumyndiv ★
LITLA SAGAN
Veskið
Drungalegt nóvemberkvöld í borg,
sem geymir þrisvar sinum hundratS
þúsund sálir.
Á beygjunni við Tivolihornið kem-
ur sporvagn brunandi. í sömu svifuni
kemur maður út úr símaturninum
hjá fataversluninni, hraðar sér yfir
akbrautina og vindur sér inn i dinnnt
port.
Þremur mínútum síðar stefnir ann-
ar maður hraðstígur að símaturnin-
um. Áður en hann gefur sér tíma til
að velja númerið tekur hann eftir að
eitthvað liggur uppi á simanum. Svart
veski. Hann stingur því í vasa sinn
og símar. Og svo fer hann. Hann
heldur að enginn liafi séð til ferða
sinna.
Maðurinn í portinu liorfir á eftir
honum, biður þangað til hann er
kominn úr augsýn, og fer svo inn í
simaturninn. Veskið er horfið.
Hann heldur í humátt eftir mann-
inum. Án þess að nokkur taki eftir.
Maðurinn frá símaturninum stansar
við nœstu biðstöð. Sá síðari líka. Þeir
fara inn i sama vagninn. Og út úr
honum á sama stað. Eflirförin heldur
áfram.
Tólf mínútum síðar sér sá sem elti,
að maðurinn fer inn í hús í löngu-
götu númer 63. Við þriðja lnis þar frá
nemur sá sem elti staðar, laumast ti!
baka, sér að ljós cr kveikt i herbergi
til vinstri á neðstu hæð, athugar
nafnið á dyrunum þar. Og svo fer
hann heim með næsta strætisvagni.
Svo líður vika. Tvær vikur. Á stöð-
inni fyrir fundna muni eða hjá lög-
reglunni hefir ekki enn verið skilað
veski með tveimur barnamyndum,
mörgum kvittunum og tæpum 70 krón-
um í peningum.
En einn góðan veðurdag fær mað-
urinn i Löngugötu 63 svoliljóðandi
bréf:
„Síðasta aðvörun: — Skilið vinsam-
Jegast þegar í stað veskinu sem þér
funduð, ásamt því sem í þvi.var, á
aðalpósthúsið, poste restante, undir
merkinu BX 99. Ef svo kynni að
reynast að veskið sé ekki tii, förum
vér fram á bætur fyrir það i pcning-
um, næstu daga.
Vér þökkum fyrir aðfarir yðar,
sem hefir gert oss fært að komast
að mjög eftirtektarverðum niður-
stöðum um yður.
Könnunarstöð aimenns siðferðis."
HEFIRÐU HEYRT —
að af hverjum hundrað fjölskyldum
i Frakklandi eiga 22 bifreið, 16
hafa síma, 13 baðherbergi og 11
kæliskápa.
að fyrstu níu mánuði síðasta árs
smiðuðu Italir 165.511 bíla, og
Frakkar 402.000. Er það um fjórð-
ungi meira en á sama tima árið
áður.
að loðdýraræktin fer vaxandi í Nor-
egi. Árið sem leið fæddust þar um
400.000 minkar og 40—60 þúsund
tófur. Tekjur af skinnaútflutningi
voru áætlaðar um 40 milljón norsk-
ar krónur.
að jarðskjálftinn i San Francisco ár-
ið 1906 varð 452 manneskjum að
bana og olli 350 milljón dollara
tjóni.
HREYKIN I KASAK. — Það er Mang-
uin sem enn á ný hefir dregið þessa
flík fram í dagsins ljós. Fallegt, já,
en þó aðeins á þær grönnu. Pilsið
eða kjóllinn þarf að vera mjög þröngt.
Þessi Kasak er úr tveed, og við hann
er notað brúnt leðurbelti.
Því miður er ekki alltaf sumar og er
því gott að mæta vetrarkuldanum í
þessum ágæta kjól. Hann er úr þvott-
ekta bómullarefni. Pilsið er þröngt
og bolurinn einhnepptur ofan frá
hálsi. Gegnum hálslíninguna er dreg-
ið flauelsband og hnýtt í slaufu að
framan.
Séuð þér meðal íþróttakvenna er hér
klæðnaður sem yður niun falla. Pilsið
er úr gráu flúneli og við hvítu skyrt-
una er notað vesti. Langi yður til má
skella svona húfu á höfuðið.
Fallegt og þægilegt, er krafa skrif-
stofu- og skólafólks til vinnufatnað-
arins. Þessi kjóll frá Rudolw Brosda
er úr grænu og hvítu bómullarefni.
Pilsið er fellt með eilífðarfellingum
og treyjan hefir stóra utanávasa og
breiðar líningar á ermunum.
Vitið þér...?
að í Indlandi eru kornbirgðir
„innsiglaðar“ til að varna þjófn-
aði?
Bóndinn sker stimpla úr tré og
merkir kornbinginn. Ef snert er við
honum hreyfist kornið til og sést þá
hvort nokkur hefir komið nærri
korninu. En hann fær engar upplýs-
ingar um hver þjófurinn er, lieldur
aðeins um að liann þarf að liafa vörð
við binginn sinn og reyna að hramsa
þjófinn, ef hann skyldi koma aftur.
að veðurathuganaskipin bjarga
fjölda mannslífa?
Á norðanverðu Atlantshafi liggja
að staðaldri 9 veðurathuganaskip, og
fréttirnar frá þeim eru ómissandi til
þcss að halda uppi sæmilegri frétta-
þjónustu um veðrið, fyrir flugvélarn-
ar sem fara yfir norðanvert Atlants-
haf. Fréttir þessar hafa bjargað fjölda
flugvéla frá tjóni. En áhafnirnar á
skipum þessum hafa einnig bjargað
fjölda sjómanna frá bráðum bana,
eitt árið ekki færri en 52. Hins vegar
hafa skipin aldrei haft tækifæri til
að bjarga áætlunarflugvélum.
Þrír ungir Danir voru að koma úr
Þýskaandsferð og höfðu hver um sig
keypt sér koníaksflösku. I’egar þeir
komu að landamærunum voru þcir
krafðir um toll á áfenginu, en það
þótti þeim ósanngjarnt og tóku l>að
ráð að hella í sig koníakinu áður en
þcir færu yfir iandamærin. Drakk
hver sína flösku i botn. En áfengið
\ar sterkt og eftir nokkrar minútur
varð að flytja drengina hálfmeðvit-
undarlausa á spítala til að dæla upp
úr þcim. En allir liéldu iífi.
Það er ekkert nýmæli að menn
hætti að borða kjöt. Spekingurinn
Ptaton lifði til dæmis á fíkjum og
mjólk. Og Budda, Byron, Yoltaire og
Goethe voru jurtaætur.