Fálkinn - 21.06.1957, Page 5
FÁLKINN
5
Gamla leikhúsið á Drottningholm er notað enn. Þar Iét Gustaf III. sýna leik-
rit er hann samdi sjálfur, og franska söngleiki.
ir skemmtiferðamenn og forvitnir út-
lendingar, sem þessi fámenni þjóð-
flokkur liefir dregiS norður i auðn-
ina, langt norður fyrir 'heimskauts-
baug.
Síðan vetraríþróttirnar urðu vin-
sœlar hafa Áre og Storlien í Jamt-
landi, við járnbrautina milli Þránd-
heirns og Östersund orðið frægar
skíðaslóðir. En miklu sunnar eru þeir
staðir ,sem þykja 'einna eftirsóknar-
verðastir: Dalarne, sem bæði vegna
náttúrufegurðar og þjóðlegrar og
fornar menningar ibúanna, hafa lengi
verið frægir áfangastaðir, og Varm-
land nokkru sunnar, sem sögur
Selmu Lagerlöf hafa gert frægt um
allan heim. Er þá komið suður að
stærsta stöðuvatni Sviþjóðar, Vánern,
og frægustu skemmtiferðaleið Svi-
])jóðar, sem nú er að visu ekki jafn
tíðfarin og áður var, þvi að hún þyk-
ir of seinfarin á öld bíla og fhigvéla.
En það er Götakanalen, siglingaleið-
in frá Gautaborg upp Gautelfi, yfir
Vánern og um skurð þaðan til
Váttern og til hafs við Norrköping
— yfir landið þvert.
En það er fleira að sjá en náttúr-
una eina, i hinni „söguriku Svia-
byggð“. Fornar hallir víða um land-
ið eru minnismerki liðinna alda, en
hárcistir skólar, sjúkrahús, verk-
smiðjur og raforkustöðvar tala máli
nútímans.
Á fyrrnefndri leið um Götakanalen
skulu nefnd dæmi um hvort tveggja.
Við Trollháttanfossana, skammt frá
Gautaborg hafa risið upp risavaxin
orkuver, sem fulltrúar vélaaldarinn-
ar, en í Vadstena við Váttern stofnaði
Birgitta helga, þjóðardýrlingur Svía
klausturreglu fyrir bæði nunnur og
munka og byggði klanstur, sem varð
frægt menntasetur um öll Norður-
lönd og að sama skapi ríkt, því að
það eignaðist 800 jarðir. Klaustrið
var lagt niður 1595, en klausturkirkj-
an, byggð á árunum 1385—1450 eftir
teikningum Birgittu, stendur enn og
cr sóknarkirkja Vadstenabæjar. —
En merkustu miðaldamenjar i Svi-
þjóð eru tvimælalaust i hinum forna
Hansastað Visby á Gotlandi, sem um
hrið var miðstöð allrar verslunar við
Austur-Evrópu norðanverða. Þar
stendur hin háa víggirðing kringum
bæinn, með kringum 50 varðturnum
og hefir staðist timans tönn, og
margar af kirkjurústunum eru furðu
heillegar ennþá. Visby á enga sina
líka í Evrópu.
Háskólarnir í Lundi og Uppsölum
eru víðfrægir langt út fyrir Norður-
lönd. Sá fyrri stofnaður 1668 en Upp-
salaháskóli 1477. En þessir bæir báð-
ir eru ekki ófrægari sem erkibiskups-
setur, því að í Lundi sat fyrsti erki-
fciskup Norðurlanda frá 1048 og þar
stendur enn dómkirkjan, sem vígð
var 1145 og hafði þá verið i smiðum
i 60 ár; dómskólinn í Lundi er elsti
lærði skóli Norðurlanda. Og í Upp-
sölum situr erkibiskup Svia, og þar
var dómkirkjan byggð fyrir nær 700
árum, sú stærsta á Norðurlöndum. En
Uppsalir og Sigtún á Fýrisvöllum eru
helaustu staðir Svia, ekki sist vegna
sinnar heiðnu helgi. Og sem mennta-
setur bera Uppsalir á sér aðalsmót,
sem aðrir háskólabæir — og sjálf
höfuðborg Svía — hefir ástæðu til að
öfundast af. Öldum saman hefir þessi
bær (íbúafjöldinn er i við hærri en
Reykjavíkur) verið miðstöð andlegs
lífs þjóðarinnar og alið upp marga
af hennar frægustu sonum. Stúdenta-
lífið er með fornlegurn blæ, líkt og
i sumum enskum menntastofnunum;
þar skiptast stúdentarnir í „þjóðir“
eftir þvi hvaðan þeir koma og hefir
hver „þjóð“ sínar reglur, en eitt er
þó sameiginlegt með þeim öllum, að
þar ríkir æskugleðin. Glaðværari
samkunda en vorhátið Uppsalastúd-
enta á Valborgarmessu, er varla til
á N'orðurlöndum. Og ógleymanleg
verður útíendingum sú sjón, að sjá
sænskan æskulýð í þjóðbúningum
syngja og dansa kringum maí-stöng-
ina.
Ferðaráðið sænska gerir sitt til að
hæna túrista að landinu, ekki aðeins
með því að sjá þeim fyrir góðum far-
artækjum, beina og leiðsögu, heldur
og með sérstökum hátíðum, sem gefa
tækifæri til að kynnast siðum þjóðar-
innar, listum og menningu. Fræg er
söngleikavikan í júni, er leikhúsin
sýna óperur, ballet og leikrit með
bestu kröftunum, sem völ er á. Þá
eru jafnan sýningar i hinu gamla
hallarleikhúsi á Drottningholm, á
söngleikjum frá 18. öld — en þá var
vegur þessarar hallar sem mestur, i
tíð Adolfs Friðriks og Lovisu Ulrikku,
og sonar þeirra, hins mikla gleði-
rnanns og listunnanda, Gústafs III.
Stendur leikhúsið enn með sömu um-
merkjum og þá. En Drottningholm er
ein fegursta sumarhöll sem Svíar
eiga, byggð eftir teikningum hins
fræga húsameistara Tessins yngra.
í júlílok er jafnan haldin Bellmans-
hátíð í Stokkhólmi. Þá róa fjölda-
margir bátar út í Djurgárden, þétt-
skipaðir fólki klæddu eins og gerðist
í tíð Bellmans, syngjandi og spilandi
á lút, og heldur þessi hersing í
skemmtistaðinn „Gröna Lund“ og
]iar er sungið og dansað fram á nótt.
En allt árið hefir fólk tækifæri til
að koma í „Gyllene freden", gilda-
skála-jarðbúsið sem Bellnxan söng og
drakk í forðum. Bellman lifir enn
góðu lifi með Svíum og enn eru visur
hans sungnar og kveðnar í „Gyllene
freden".
í september er vakin eftirtekt út-
lendinga á sænskum iðnaði, með
gluggasýningum i verslunum. Það cr
ýmiss konar listiðnaður, sem þá er
einkum sýndur, og svo ýmsar nýj-
ungar í almennum iðnaði. Sviar eru
frægir fyrir listiðnað, svo sem gler-
og krystallsmuni frá Orrefors, Ström-
bergshyttan og Kosta, sem þykja
mestu gersemar og mikið er selt af
úr landi, og eins leirmuni ýmiss konar,
lxúsgögn, vefnaðarvöru og ryðfrítt
slál, og heimilisiðnaður er á mjög
Hvenær sem Walter Valentino
Liberace sést í sjónvarpinu verður
verkfall hjá 35 milljón amerískum
kvenverum í U.S.A. Þær ungu fjað-
urmagnast allar og kerlingarnar missa
prjónana sina i keltuna.
Liberace er enginn tónsnillingur.
Hann spilar ekki betur á píanó en
hver annar. En hann brosir fallega
og hefir lag ó að láta taka eftir sér.
Hann læutr sauma sér smokingföt úr
„gull-lamé“ og gengur í yfirfrakka
úr hermelínbjórum. Hann er 36 ára,
ókvæntur þegar síðast frétlist,
mömmudrengur á hemilinu og súkku-
laðidrengur um öll Bandarikin. Ilann
er snjall auglýsandi.
Þegar hann heldur hljómleika í
gullbrókunum sínum spilar hann ekki
á venjulegt píanó. Nei, hljóðfærið
verður að vera hvítt. Og tveir kerta-
stjakar á þvi, til að varpa birtu ó
ásjónuna á piltinum,
og á jarpt hárið, sem
er farið að grána of-
urlitið i kollvikun-
um. Og svo sést
hann við hljóðfærið.
„Meistarinn“.
Hann byrjar á Baoh
en áður en nokkur
veit er hann kominn
út í „Boogie-Woogie"
og svo gerir hann
hlé og fer að tala
um trúrnál og heim-
speki og — mömniu
sína. Mamma er allt-
af nærri honum og
stundum sýnir 'hann
liana i sjónvarpinu
eða dröslar henni
fram á leiksviðið.
Þetta er feit kerling-
arhlussa og ofurlik
Liberace. En mæð-
urnar sem horfa
verða hrifnar. Svona
son væri gaman að
eiga. Þær stein-
gleyma manninum
sinuni og kyssa gler-
ið á sjónvarpstæk-
inu, og þess eru
dæmi að skaprikir
eiginmenn hafi gefið
háu stigi þar, ekki sist listvefnaður
og alls konar skartgripir.
Hér er ekki rúm lil að nefna stór-
iðnaðinn, sem Sviar eru frægari fyrir
en aðrar norðurlandaþjóðir, ekki síst
fyrir vélaiðnaðinn. Þeir áttu járn-
grýti i landinu og fyrir það varð
sænskt stál frægt um víða veröld, og
sænskir hreyflar og kúlulegur er
frægt um allan heim fyrir gæði.
Skipasmiðjurnar í Gautaborg og
Málmey og víðar keppa við útlendar
smiðjur og smiða yfir hálfa milljón
lesta á ári, þar af um tvo þriðju fyr-
ir aðrar þjóðir. í rafmagnsiðnaði
standa Sviar i fremstu röð, svo sem
ASEA i Vásterás (sem smíðaði rafal-
ana á Ljósafossi) og talsimasmiðjan
L- M. Ericsson. Og þannig rnætti
lengi telja.
I Sviþjóð er nóg að sjá, hvort sem
gesturinn vill fyrst og fremst njóta
náttúrufegurðar, kynnast siðum há-
menntaðrar og kjarnmikillar nor-
rænnar þjóðar, listum hennar og
menningu, eða hann vill kynna sér
nútímatækni á hæsta stigi. *
Liberace á hann i sjónvarpinu, svo
að glerið hafi brotnað. Og gelgju-
skeiðstelpurnar eru ekki betri. Þær
hafa stofnað Liberaceklúbba um land
allt.
Liberac segir að liann hafi eitthvað
lík á'hrif á kvenfólkið og Marilyn
Monroe hefir á karlmennina, en jafn-
framt kallar hann sig Billy Graliam
tónlistarinnar, þ. e. vakningarmann.
Ekki er nú liæverskan íneiri en guð
gaf, enda hefir Liberace komið ár
sinni vel fyrir borð, ekki síður en
Snoddas forðum.
Foreldrar hans, Salvatore og Fran-
ces Liberace, munu hafa séð fram í
tímann, er barnið fæddist árið 1920
í Milwaukee, Wisconsin. Þau skírðu
liann nfl. Walter Valentino eftir
mesta kvennagulli aldarinnar.
Hann fór snemma að glamra á
Framhald á bls. 14.
Sonja Henie við vangann á Liberace.
LIBERACE - súkkulaðspíaaistinn