Fálkinn - 28.08.1959, Blaðsíða 2
2
’ FÁLKINN
Strákjmttinn á miðri myndinni er Frankie Lymon, þar sem hann
er aS syngja með „Teenagers". Er þetta atriði úr myndinni
„Rock, rock, rock“, sem sýnd var hér á landi í hitteðfyrra. Nú
er Frankie Lymon vœntanlegur til fslands eftir helgina.
Varð undrabarn þrettán ára
- nú heimsfrægur söngvari
Ltjnttnt stjntjnr tí hljóntleikntn
í /I n,vínt'htfjttt'htói
Kjörskrá
til alþingiskosninga í Reykjavík
er gildir frá 1. maí 1959 til 31. desember 1959, liggur
frammi almenningi til sýnis í skrifstofu borgarstjóra, Aust-
urstræti 16. frá 25. ágúst til 21. september að báðum dög-
um meðtöldum, alla virka daga klukkan 9 f.h. til klukkan
6 e.h.
Kærur yfir kjörskránni skulu komnar til borgarstjóra eigi
síðar en 4. október næstkomandi.
(
Borgarstjórinn í Keykjavík, 22. ágúst 1959. i
Hingað er væntanlegur amerísk-
ur söngvari að nafni Frankie Ly-
mon, sem koma mun fram á hljóm-
leikum 1 Austurbæjarbíói og verða
hinir fyrstu næstkomandi þriðju-
dag.
Frankie Lyman er fimmtán ára
gamall, en fyrir löngu orðinn heims-
frægur söngvari, því hann hefur
ekki aðeis sungið inn á mikinn
fjölda hljómplatna, sem náð hafa
metsölu, heldur hefur hann og kom-
ið fram í kvikmyndum, og hefur
þá gjarnan viljað fara svo, að með-
leikarar hans í kvikmyndunum hafa
fallið í skuggann fyrir þessum unga
svertingjasnáða.
Frankie Fymon er frá New York
og þar hóf hann einmitt söngferil
sinn. Þegar hann og nokkrir félaga
hans voru að syngja á götuhorni
í svertingjahverfi New York-borgar
heyrði forstjóri hljómplötufyrir-
tækis eins i þeim og fékk þá strax
til að syngja inn á plötur fyrir fyrir-
tækið. Söngflokkurinn hlaut nafnið
,,Teenagers“ og söng Frankie litli
einsöng í flestum lögunum, sem
þeir sungu. Sum ljóðin, sem þeir
sungu, voru eftir Frankie, en hann
hafði unnið til verðlauna í skólan-
um sínum fyrir góða hæfileika í
ljóðagerð.
Frankie Lymon mun koma fram
hér á landi með aðstoð hljómsveit-
ar og jafnframt munu nokkrir ís-
lenzkir skemmtikraftar koma fram
á hljómsleikum hans, svo að búast
má við góðri kvöldskemmtun fyrir
þá, sem bregða sér í Austurbæjar-
bíó eftir helgina til að heyra í Fran-
kie Lymon.
Starf forstjúra
Innkaupastofnunar Reykjavíkurbæjar er hér með auglýst til
umsóknar. — Laun samkvæmt launasamþykkt fastra starfs-
manna Reykjavíkurbæjar.
Umsóknum skal skilað í skrifstofu borgarstjóra, Austur-
stræti 16, eigi síðar en 15. september n.k.
Skrifstofa borgarstjórans í Reykjavík.
19. ágúst 1959.
FRANKIE LYMON
Hljómleikar í Austurbæjarbíói þriðjúd. I.sept. kl. 11,15 e.h., miSvikud. 2. sept. kl. 7 e.h. og
kl. 11,15 e.h.
AÖgöngumiðasala í Hljóðfærahúsmu Bankastræti og Austurbæjarbíói eftir kl. 2 á föstudag 28. ágúst.