Fálkinn - 16.10.1959, Blaðsíða 9
FÁLKINN
9
NÝIR FLÓTTAMENN Á ASÍU-VEGUM. — Kommúnistar í Laos hafa með stuðningi Norður-
Vietnam gert árás á stjórnarherinn í Laos, sem á í vök að verjast. Á bardagasvæðinu flýr
fólkið undan, til að bjarga lífinu. Myndin sýnir heimilisföður, sem hefur bundið búsmuni
sína á skepnurnar til þess að komast undan á einhvern óhultan stað.
MISS UNIVERSE.
Akito Kojim hin japanska, sem
var kjörin Miss Universe þessa ár
er 22 ára og „foto-model“ í Tokíó.
Þó hún sé lagleg og tarosi fallega
mun vesturlandabúum þó yfirleitt
finnast, að ýmsar af hinum stúlkun-
um hefðu verið betur að tigninni
komnar en sú japanska.
♦
DEBBIE REYNOLDS er að leika
í kvikmynd núna á móti þýzka leik-
aranum Curt Júrgens. Þegar hún
kom á kvikmyndastöðina einn morg-
uninn, í ausandi rigningu, var stœð-
ið, sem hún var vön að nota fyrir
bílinn sinn, ekki laust, og varð hún
að leggja bílnum spölkorn frá, svo
að á leiðinni frá bílnum og inn í
húsið varð hún rennblaut. Var nú
farið dð þurrka hana og greiða henni
áður en hún tæki til starfa. En þeg-
ar því var lokið kom það upp úr
dúrnum, að atriðið, sem nœst var
fyrir, átti hún að leika rennblaut,
eða í líku ástandi og hún hafði kom-
ið inn í húsið. Varð hún því að fara
undir steypu aftur til þess að verða
leikhœf.
NOELLE ADAM GIFTIST. — Hin
unga franska dansmær Noelle Ad-
am skemmti fólki í náttklúbb á
Montmartra áður en hún var valin
til að dansa aðalhlutverkið í ballett-
inum „Vanrækta stefnumótið“ eftir
frönsku skáldpíuna Sagan. Þá varð
hún fræg og trúlofaðist síðan Sidn-
ey, syni Charlie Chaplin og varð
enn frægari fyrir það. Og nú munu
þau vera gift. Hver veit nema þau
skilji bráðum — og verði enn fræg-
ari fyrir það.
❖
— Já, einmitt, erfðaskrána, sagði
hann. — Viljið þér bíða eitt augna-
blik. Hann stóð upp og gekk út og
aflæsti dyrunum á eftir sér.
Að hugsa sér að Jerry skyldi geta
sér rétt til um þetta, hugsaði hún
með sér. Flestir eru sjálfum sér
líkir þegar peningarnir eru annars
vegar.
— Ó, sagði ungfrú Cantwell þeg-
ar hann kom inn til hennar. — Ætl-
ið þér að fara strax? Málaflutnings-
maðurinn kemur sjálfur á hverri
stundu. Hann ætlaði bara að fá sér
bita í leiðinni.
-—- Nei, við verðum að sleppa
þessu, svaraði maðurinn. — Eg get
ekki biðið lengur.
Hann deplaði augunum til frú
Epperson og slangraði út.
— Hvað sagðir þú að hann seldi?
spurði frú Epperson.
— Æ, ég man það ekki — háls-
bindi eða eitthvað þess háttar —
eða póstkort, sagði ungfrú Cant-
well.
— Já, því segi ég það — þessir
sölumenn eru ekki allir þar sem
þeir eru séðir, sagði frú Epperson.
— Sástu ekki að hann ,,blikkaði“
mig um leið og hann fór út? Meiri
frekja!
MISS W.C.
Salernaverksmiðjurnar í Ameríku
vilja ekki vera eftirbátar annara í
því að kjósa sér drottningu, og hafa
fyrir skömmu kjörið „Miss W.C.“ og
mun einni slíkri verða ungað út á
hverju ári framvegis. Hin fyrsta
Miss W. C. veraldarinnar heitir
Edna Brough og er 21 árs. Nafn-
bótinni fylgir lítill og fallegur
kamarslykill — auðvitað úr gulli!
>f
^krítlur
— Og hvernig viljið þér hafa hár-
ið klippt?
— Eins og hann bróðir minn.
— Og hvernig hefur hann bróðir
yðar það?
■—- Ágœtt.
*
Viveka litla situr hjá ömmu sinni.
Mamma hennar hafði lofað að koma
og sœkja hana klukkan sjö, en svo
varð hún sjö og hún varð átta og
níu, og engin mamma kom. Þeim
fór báðum að verða órótt og voru
að geta sér til, hvað gæti hafa taf-
ið hana svona lengi. Eftir að hafa
hugsað lengi og rœkilega, segir Vi-
veka litla:
— Hún hefur þó varla farið að
gifta sig svona fljótt aftur?
*
803' &
Skyndiheimsókn hjá ávaxtasalanum.
802
Rétta awgnabliJcið.
* .
Kennarinn: — Það er skylda allra,
að gera einhvem glaðan í hverri
viku, og helzt á hverjum degi.
Hvernig hefur þú hagað þér síðustu
vikuna, Óli litli?
— Vel.
— Það er gott. Hvern hefur þú
glatt í vikunni sem leið?
— Eg fór til hennar frœnku minn-
ar, og hún sagði á eftir, að hún
hefði aldrei verið eins glöð og þeg-
ar ég fór.
Gamall maður dó í sœnskri járn-
brautarlest og líkið var borið út á
næstu stöð, þar sem forvitinn múg-
ur og margmenni safnaðist kring-
um það. Allir þurftu að spyrja —
sérstaklega um það, hvernig og hve-
nær maðurinn hefði dáið. Loks spyr
einn:
—• Skyldi hann hafa verið dáinn
þegar hann fór inn í lestina?
*