Fálkinn - 06.11.1959, Síða 2
2
FALKINN
DANNY NAGAR. — Þessi gráð-
ugi náungi, sem er í þann veginn að
höggva tönnunum í liráan ananas,
er enginn annar en gárungurinn
Danny Kaye, sem hefur gaman af
að gera að gamni sínu þó hann sé
ekki að lcika í kvikmynd. Hann
var staddur í Sidney í Ástralíu
þegar myndin var tekin.
KJÖRBARN. — Bóndi nokkur í
smáþorpi í Frakklandi vaknaði ný-
Iega við að einn af hundunum hans
fór að gelta úti í skóginum. Hann
snaraðist á fætur og fór inn í skóg-
inn, o° þar fann hann veikt dádýr,
sem hann bar heim. Kona bóndans
hjúkraði dýrinu og það hresstist, og
síðan er dýrið orðið húsdýr hjón-
anna.
RADÍÓ-HJÁLMUR. — Svona
líta nýjustu hjálmar í Bandaríkja-
hernum út. f þeim er útbúnaður til
að taka á móti orku frá sólinni,
nægilegri til að starfrækja viðtæki
og senditæki. í hjálminum er líka
rafhlaða svo hægt sé að nota tækið
þegar sólar nýtur ekki.
£itt atf ktietju
ALLT f LAGI segir kvendið
hérna á myndinni. Það er ameríska
kaftakerlingin Elsa Maxwell, al-
ræmd fyrir sögurnar sem hún segir,
og fyrir hattanna, sem hún gengur
með. Hún er alltaf á ferðalagi og
eys út peningum, því að blöðin
borga vel fyrir slúðursögur henn-
ar. Myndin er tekin á kvikmynda-
hátíðinni í Venezia, — og vitanlega
var hún sjálfsagður gestur þar.
HEIT MUNNFYLLI. — Okkur
dauðlegum manneskjum finnst
vandi að drekka kaffið, ef það er
sjóðandi, og finnst ótrúlegt að'
nokkur maður geti étið eld. En þessi
eldgleypir frá Jamaice gerir sér
það að leik. Hann hefur verið að
sýna þessa list í London undanfarið.
GAPTU NÚ! — Það er ekki á allra
meðfæri að mata krókódíla. En
Ann Bertram, 21 árs, hefur þetta
að daglegri iðju, enda er hún starf-
andi í dýragarði í Englandi. En til
vonar og vara notar hún gaffal til
að mata kostgangara sína með, til
þess að hafa ekki of „náið“ sam-
band við þá.
Syngur og selur stúlkur
Það hefur vakið mikla athygli, að
lögreglan hefur handtekið hinn vin-
sæla útvarpssögnvara LucianoBene-
vene, og er hann sakaðar um hvíta
þrælaverzlun. Kona hans er gersam-
lega horfin, og mun líklega ekki
hafa haft hreint í pokanum heldur.
Er lögreglan nú að leita hennar.
Benevene hefur lengi sungið í nátt-
klúbb í Aþenu og ráðið til sín ung-
ar stúlkur í ballett, sem hann kall-
aði „Silfurstjörnurnar".
Þegar stúlkurnar komu til Aþenu
fengu þær sultarkaup hjá Benevene
og urðu að afla sér ,,aukatekna“
á annan hátt. Þær unnu í nátt-
klúbbnum frá kl. 16 til kl. 4. Áður
en klúbbnum var lokað á nóttunni
kom Benevene fram á leiksviðið og
tilkynnti að sá gesturinn, sem pant-
aði flestar kampavínsflöskur, gæti
valið sér hverja stúlkuna úr hópn-
um, sem hann vildi, og haft hana
hjá sér til morguns.
Stúlkurnar segja, að söngvarinn
hafi „pressað þær eins og sítrónur11.
Hann fór líka með þær í sýningar-
ferðir til Tyrklands. Flestar þeirra
voru yngri en 16 ára og verða af-
leiðingarnar þeim mun alvarlegri
fyrir Luciano Benevene.
★
Rainier Monaco-fursti rak nýlega
einn af sínum gömlu, trúu þjónum
úr vistinni. Þjónninn hafði komizt
yfir afganginn af boffsbréffunum,
sem prentuð voru þegar Rainier og
Grace Kelly giftust, og seldi þau
minjagripasjúkum Ameríkönum
fyrir 25 dollara hvert.
Hún át manninn sinn
Elizabeth Mudimba heitir kona
af musoga-kynstofninum í Uganda.
Hún hefur verið fangelsuð ásamt
þremur karlmönnum fyrir fáheyrð-
an glæp. Er hún sökuð um að hafa
étið manninn sinn. Við yfirheyrsl-
urnar yfir þessum fjórum hefur það
sannazt, að hinn myrti og étni eigin-
maður hennar kom að henni og
mönnunum þremur undir mjög ó-
þægilegum kringumstæðum. Dólg-
arnir þrír réðust á manninn og
drápu hann og átu svo. Frúin tók
þátt í þessari sóðalegu átveizlu.
í FYRSTA SINN HJÁ NEHRU. — Dalai Lama, hinn land-
flótta allsvaldur og hálfguð Tíbetbúa, flýði land sitt eftir að
kínverska kommúnistastjórnin sendi þangað her til að kúga
það undir sig og skipaði Tíbetingum nýjan guð: Pansjen Lama,
sem er lús milli naglanna á kínversku stjórninni. Dalai Lama
komst undan og yfir landamærin, og hefur síðan hafst við í
Mussorie, einu nyrsta héraði Indlands. — En nýlega gerði
hann sér ferð til höfuðborgarinnar, Nýju Delhi. Og þar er
myndin’tekin, í bústað Nehru forsætisráðherra, af Dalai Lama,
sem er alveg eins og mennskur maður í útliti þó Tíbetingar
segi hann guð, og Nehru forsætisráðherra og Indiru dóttur
hans.