Fálkinn - 19.02.1960, Blaðsíða 3
FALKINN
3
Þetta er stórhýsi Bygging-
arsamvinnufélags prentara í
Laugarnesi. Myndin er af
líkkani af húsinu.
LYFTUfl
r
I
STÖBHÝSI
Þá markaði þetta hús önnur tíma-
mót í byggingarsögunni og kannski
ekki ómerkari. Þegar fréttist um að
það ætti að byggjast var stofnað fé-
lag hér í bæ um skriðmót, sem
hentug eru við byggingu háhýsa.
Var húsið reist á þann hátt og síðan
hafa mörg á eftir komið.
Lyftur þær, sem eru í húsi Bygg-
ingarsamvinnufél. prentara í Laug-
arneshverfi eru smíðaðar í Vestur-
Þýzkalandi af fyrirtæki Havemeier
og Sander í Hannover, sem er þekkt
firma hér á landi fyrir lyftur sínar
allt frá því 1925. Til dæmis eru
vörulyfturnar í Hafnarhúsinu frá
þessu fyrirtæki, og hafa þær reynzt
með afbrigðum vel, svo og lyfturn-
ar í Alþýðuhúsinu svo að dæmi séu
nefnd. Bræðurnir Ormsson hafa um-
boð fyrir þessar lyftur hér á landi
og sjá um uppsetningu þeirra og
viðhald.
Lyftunum er mjög • haganlega
komið fyrir í Laugarnesstórhýsinu,
en þær eru þrjár talsins. Þær eru
það rúmgóðar að hægt er að koma
fyrir í þeim sjúkrakörfum. Burðar-
þol þeirra er 600 kg. (8 manna lyft-
ur) og hraðinn 80 sm. á sekúndu.
Lyfturnar eru útbúnar svonefndri
safnstýringu, sem gerir það að verk-
um, að lyftan geymir öll köll, ef
svo má að orði komast og svarar
þeim síðan í réttri hæðaröð upp eða
niður. Þá er það nýjung við lyfturn-
ar að þær stanza við stigapall á
milli hæða svo fólk gengur annað-
hvort sjö þrep upp eða niður til að
komast að þeim eða frá.
• tfr iffnJum attuftt •
/ BONN gengur pessi saga: Sonar-
sonur Konráðs Adenauers kanslara
spurði afa sinn hvernig honurn litist
á, að hann yrði kanslari þegar hann
vœri orðinn stór. — Nei, ekki líst
mér á það, sagði gamli maðurinn.
— Við getum ekki verið kanslarar
báðir.
♦
S TRÁKPRAKKARI EINN suður i
Afríku stal mannsbeinagrind úr
skólanum, sem hann gekk í. Þjófn-
aðurinn komst upp og þegar strák-
urinn var spurður um tilganginn
með þjófnaðínum svaraði hann: „Ég
laumaði beinagrindinni í rúmið hjá
honum pabba, til þess að sjá hvernig
honum yrði við þegar hann vakn-
aði.“
♦
CHARLES PRINS, ríkiserfingi
Breta, kom heim úr skólanum einn
daginn, með sjö athugasemdir í
einkanabókinni sinni. Fjórar þeirra
voru út af því að hann hafði truflað
kennsluna með hávaða og brambolti,
tvœr fyrir að hafa kastað pappírs-
kúlum í bekknum og ein fyrir að
hafa brunað niður handriðið á stig-
anum.
♦
ÞAÐ má segja að mörkuð hafi
verið tímamót í byggingarsögu bæj-
arins, þegar Byggingarsamvinnufé-
lag prentara hóf undirbúning sinn
að því að reisa átta hæða stórhýsi í
Laugarneshverfi. Fram til þess tíma
voru stærstu íbúðarhús ekki nema
fimm hæðir og eingöngu notaðir
stigar til þess að ferðast á milli
hæða. Gefur auga leið, hvaða óþæg-
indi það hefur fyrir þá, sem efstir
búa.
Ákveðið var aftur á móti að í
þessu húsi skyldu vera þrjár lyft-
ur. Með því skipti ekki lengur
máli, hvort menn áttu heima á 1.
eða 8. hæð. Síðan hefur fjöldi há-
hýsa verið reistur hér í bænum og
gert þar ráð fyrir lyftum, eða þær
þegar komnar upp.
Hinn nýi forseti Vestur-Þýzkalands tekur hér á móti erlendum sendiherrum. Forsetinn, dr.
Liibke, er á miðri myndinni og talar hann við sendimann páfastólsins.
15 ára starf.
Byggingarsamvinnufélag prent-
ara hefur nú starfað í 15 ár og reist
nokkur fjögurra íbúða hús við
Hagamel, sambýlishús við Nesveg,
sambýlishús við Hjarðarhaga, sam-
býlishúsið í Laugarnesi og vinnur
nú að byggingu 14 hæða háhýsis við
Sólheima. Er það hæsta íbúðarhús,
sem reist hefur verið hér á landi.
Formaður félagsins er Guðbjörn
Guðmundsson og hefur hann verið
það frá upphafi.
Það er ekkert vafamál að bygging
slíkra stórhýsa til íbúða er mjög
hagkvæm á allan hátt. Elga þeir
sannarlega þakkir skilið, sem í því
brjótast oft við lítil efni.
☆
HERTOGINN AF WINDSOR er til-
haldssamur og tildurgefinn í klœða-
burði, ekki síður en Wallis Simpson
kona hans. Þegar hann þarf að fá
sér föt lœtur hann sauma jakkann
í London, og þar kaupir hann einnig
efnið í brœkurnar, en lœtur sauma
þœr í Ameríku. „Engir í heimi eru
jafn snjallir í því að „byggja upp“
brœkur og bandaríkjaskraddararn-
ir,“ segir hinn fyrrverandi Játvarður
konungur áttundi.