Fálkinn - 19.02.1960, Qupperneq 14
FALKINN
ií
XTC
JLíð otf Etldie —
Framh. af 7. síðu.
Meðan skilnaðarmálið var á döf-
inni fór Debbie til Róm, París,
London og Madrid. Hún lék í mynd
sem heitir „It started with a kiss“,
með Evu Gabor og Glenn Ford.
Debbie Reynolds er alger andstæða
Liz Taylor. Hún er afar látlaus,
reykir hvorki né drekkur og er laus
við alla duttlunga. En þessari
indælu konu tókst ekki að halda í
Eddie Fisher. Hann töfaðist af
glysi Liz. Debbie Reynolds fær 350
þúsund dollara ársmeðlag með
börnunum. Auk þess fékk hún hús-
ið með innbúi, bíla etc. Á síðasta
ári lék hún í sex kvikmyndum,
svo að hún hefur nóg að hugsa, ann-
að en trega Eddie.
Liz og Eddie fóru í langa brúð-
kaupsferð. Þau komu til Barcelona
16. maí í 200 lesta lúxussnekkju og
sigldu fram og aftur um Miðjarðar-
haf.
Vitanlega gengu ýmsar sögur um
Eddie og Liz. Ein þeirra sagði, að
Liz hefði verið orðin ólétt áður en
hún giftist Eddie. Það reyndist
ósatt. En Liz segist gjarnan vilja
eiga eitt barn í viðbót. Þegar frétt-
ist að þau væri á leið til Englands
streymdu blaðamenn þangað með
ljósmyndara sína. Þau höfðu leigt
sér hús fyrir utan London og voru
þar með þrjú börn Liz, og vonuðu
að fá að vera í friði meðan hann
væri að syngja á plötur og hún að
leika í tveimur myndum. Hún hefur
haft 500.000 punda tekjur á síðasta
ári, auk þess sem hún græðir á Mike
Todd-myndinni miklu: „Kringum
jörðina á 80 dögum.“
Þegar flugvélin þeirra lenti fyrir
utan London var fjöldi blaðamanna
mættur þar. Og það leyndi sér ekki
að köldu andaði til Liz.
— Hverjar eru framtíðaráætlanir
yðar? var fyrsta spurningin.
— Eg ætla að hætta að filma. Ég
óska mér heimilis og einskis annars
í veröldinni.
— Það sögðuð þér líka þegar þér
voruð hérna fyrir 18 mánuðum með
Mike Todd, sagði einn blaðamað-
urinn.
Liz hrökk við, en játaði að það
væri rétt. — Ástæðurnar hafa
breyst síðan þá, sagði hún dauf-
lega. Og það vissu allir.
Áður en blaðamaðurinn komst
lengra fór umboðsmaður kvik-
myndafélagsins á burt með hana.
En undir eins og þau höfðu kom-
ið sér fyrir byrjuðu heimsóknirnar.
Montgomery Clift, sem er mikill
aðdáandi Liz (sumir segja að hún
hafi gerspilt æfi hans) var meðal
fyrstu gestanna. Og fyrrverandi
eiginmaður nr. 2, Mike Wilding,
kom ásamt núverandi konu sinni,
Susan Nell, hinni ríku, til að sjá
drengina sína. Mike hefur alltaf
tekið svari Liz, þegar hann hefur
heyrt henni hallmælt. Þau eru góð-
ir vinir enn.
En þó að Liz væri nýgift Eddie
var hún eirðarlaus. Einn laugar-
dagsmorguninn heimtaði hún að
fljúga til Parísar, „til þess að fá
eitthvað almennilegt að éta.“ Og
þau flugu til Parísar. Þar náði
franskt vikublað tali af þeim. Og
daginn eftir fékk fólk að lesa um
barnið sem væri í vonum og ýmis-
legt fleira, sem Liz segist aldrei
hafa minnst á.
Eddie og Liz stefndu blaðinu. En
fyrir bragðið var enn meira talað
um það, sem í því hafði staðið....
Nú vill fólk halda því fram að
Liz sé til alls trúandi. Og ýmsu er
spáð um hjónabandið Taylor—Fish-
er. Liz hefur að vísu sagt að hveiti-
brauðsdagar þeirra muni standa í
þrjátíu ár. En hún hefur alltaf verið
„svo hamingjusöm“ fyrstu vikurn-
ar eftir að hún giftist, að enginn
tekur hana alvarlega — nema
Eddie.
☆
Mjólkurskál —
* FRAMH. AF 11. SÍÐU
Reyna að sjá til að þessar níu per-
sónur þarna hreyfðu ekki fæturna.
— Heyrið þið, sagði ég svo hátt
að allir hlutu að heyra það.
.... — Ég hef verið að hlusta
á rökræður ykkar um hugrekki og
þess háttar. En við getum verið
sammála um að hugrekki er í því
fólgið að hafa stjórn á sjálfum sér.
Og nú skulum við að gamni okkar
reyna hve vel okkur tekst það. Við
skulum sitja alveg hreyfingarlaus
og þegjandi í fimm mínútur.
— Þegjandi.... át Gösta eftir,
en ég tók fljótt fram í:
— Ekki aðeins þegjandi heldur
líka alveg hreyfingarlaus — fæturn-
ir líka. Eins og myndastyttur. Ég
skal segja ykkur ástæðuna þegar
fimm mínútur eru liðnar.
Gestirnir kinkuðu kolli og brostu.
Því ekki það? Og svo gaf ég merki
og allir þögðu.
Þögnin eftir allt gamanhjalið var
hræðileg. Þarna heyrðist ekki ann-
að en suðið í loftsnerlunum. Ég sat
þannig að ég gat séð dyrnar inn í
húsið. Nú stóð indverski þjónninn
bak við stól frá Maxon. Hann var
grár í framan og einblíndi á dúkinn
undir fótunum á okkur. Sá hann
nöðruna?
Ég leit á húsmóðurina og augna-
ráð hennar var mér nóg þakklæti
fyrir þetta, sem ég hafði lagt á mig.
Hitt fólkið vissi ekkert hvað und-
ir þessu bjó, og leiddist þögnin og
fannst lítið til þessa samkvæmis-
leik's koma. Ungfrú Gtilleux brosti
HrcAAqáta 'JátkanA
zo\guL * .i (’íll14 1” pfl
t- 1
Hff 1-7 ið W ai, w r PiAi -mmr, ■ 1 ' ™ 55WjL(-
57 jnr 55 glgcí -fiF m i yir~ ™ bbs m
LÁRÉTT SKÝRING:
1. Fiskur, 5. Þorandi 10. Blæs,
11. Ávíta, 13. Fangamark, 14. Karl-
mannsnafn, 16. Útungun, 17. Grísk-
ur stafur, 19. Þrír eins 21. Skap-
raun, 22. Málmur, 23. Skjótt, 24.
Guð, 26. Framkvæmir, 28. Fugl, 29.
Skjögrar, 31. Kali, 32. Óbrotinn,
33. Opera, 35. Raðtala, 37. Fanga-
mark, 38. Hljóðst., 40. Vesæll, 43.
Einangrunarefni, 47. Tóntegund, 49.
Hljóma, 51. Pár, 53. Nöldur, 54.
Ágæti, 56. Gælunafn, 57. Karl-
mannsnafn (ef.), 59. Hljóð, 61. Guð,
62. Ólíkir, 63. í fjósi, 64. Skora, 66.
Fangamark, 67. Röltir, 69. Tak, 71.
Ýkjur, 72. Með tölu.
LÓÐRÉTT SKÝRING:
1. Stafur, 2. Sambandsheiti, 3.
Falla, 44. Frægð, 6. Sleipir, 7. Borð-
andi, 8. Verkur, 9. Samhljóðar, 10.
12. Mánuður, 13. Garn, 15. Vanga,
16. Skaka, 18. Suðurlandsbúi, 20.
Sonur, 23. Brisið, 25. Kveikur, 27.
Ólíkir, 28. Kaupfélag, 30. Rölt, 32.
Reiðtýgi, 33. Sambandsheiti, 36.
Askur, 39. Veikir, 40. Vopn, 41. For-
skeyti, 42. Ræflar, 43. Fugl, 44.
Planta, 45. Gort, 48. Sonur, 50.
Tónn, 52. Skreið í gegn, 54. Hangsa,
55. Rusl, 58. Brotsjór, 60. Glundur,
63. Þrír eins, 65. Gælunafn, 68.
Hljóðst., 70 Skammst.
oCatiin á Iroiicjátu. í iíÉaita lUi.
LARETT RAÐNING :
1. Sítar, 5. Afrek, 10. Eitur, 11.
Rotin, 13. Nr. 14. Asía, 16. Dúsa,
17. Es, 19. Eir, 21. Lin, 22. Slot,
23. Slyng, 26. Meta, 27. Ilm, 28.
Skálkar, 30. Pat, 31. Makar, 32.
Slipp, 33. RR, 34. LS, 36. Hnífs,
38. Banda, 41. Kör, 43. Lunganu,
45. Frá, 47. Kría, 48. Ragna, 49.
Smið, 50. Ais, 53. Ámu, 54. RN, 55.
Flak, 57. Arfi, 60. MN, 61. Aular,
63. Kinda, 65. Mókir, 66. Viðar.
LGÐRÉTT RÁÐNING :
1. Si, 2. íta, 3. Tusk, 4. Ari, 6.
Frú, 7. Rosi, 8. Éta, 9. ÐI, 10. Erill,
12. Neita, 13. Nesið, 15. Aflar, 16.
Dýnks, 18. Snatt, 20. Romm, 21.
Lepp, 23. Skarfur, 24.Y1, 25. Gall-
ana, 28. Skríl, 29. Risnu, 35. Okkar,
36. Hrís, 37. Snark, 38. Banki, 39.
Afmá, 40. Náðun, 42. Örina, 44. GG,
46. Rimma, 51. Blak, 52. Ofið, 55.
Fló, 56. Ari, 58. RKÍ, 59. Ina, 62.
Um, 64. Dr.