Fálkinn - 19.02.1960, Side 15
FALKINN
15
— bráðum mundi hún skella upp
úr, og þá mundu gestirnir ekki
stilla sig lengur. Ég leit til hennar
bænaraugum.. .. mundi hún skilja
það?
Ungi Svíinn var líka hættulegur.
Hann var að fitla við glasið sitt og
eirðarleysið skein úr honum. Hann
mundi gera uppreisn þá og þegar!
Bara að ég gæti gert honum skiljan-
legt að þetta var alvara en ekki
gaman. Ég horfði fast á hann. . . .
Ég veit ekki hve langur tími var
liðinn, en mér fannst hann afar
langur. Ég leit aftur til huguðu
konunnar sem sat við borðsendann
og sá breytingu á andlitinu. Roðinn
færðist smásaman aftur í andlitið.
Augun horfðu í ákveðna átt — nú
vissi hún hvar naðran var!
Þá mundi hættan bráðum liðin
hjá. Mjólkin hafði freistað nöðr-
unnar og nú kom hún úr felu-
staðnum sínum. Þjónn stóð með
keyri á lofti.... eftir sekúndu væri
naðran dauð.
Hann færði stólinn sinn og leit á
gólfið. Svo rak hann upp vein og
spratt upp, felldi stólinn og hörfaði
undan. Ég spratt líka upp, en í sömu
svifum sveiflaði þjónninn keyrinu.
Gösta riðaði eins og drukkinn
maður. Hann varð að styðja sig við
borðið. Augun voru starandi og
andlitið fölt.
— Mikill voði! stundi hann hásri
röddu. Þessi hræðilega naðra lá
undir stólnum mínum!
Þjónninn tók dauðu nöðruna og
fór út.
Svo var viskíi helt í glösin —
okkur veitti ekki af hressingu eftir
þetta, og Gösta varð að svolgra í
sig þremur glösum áður en roðinn
fór að koma í kinnarnar á honum
aftur. Nú fannst mér ekki úr vegi að
tala um hugrekki, og þess vegna
lagði ég nokkrar spurningar fyrir
húsmóðurina.
Allir hlustuðu á okkur, enda ætl-
aðist ég til þess. Ekki síst ungfrú
Cailleux, sem hafði byrjað að tala
um'þetta efni.
—: Frú Maxon. sagði eg — viljið
þér gera svo vel að segja mér hvar
cobran var þegar þér urðuð vör við
hana og senduð eftir mólkurskál-
inni?
Frú Maxon brosti. Ég sé brosið
hennar í anda ennþá. Það var ofur-
lítið glott-kennt. Hún leit til Gösta.
— Hún hafði hringað sig um fót-
inn á mér, sagði frú Maxon.
-x
PICASSO sá mikli málari keypti
sér höll eina í fyrra og settist par
að. Skömmu síðar braust þjófur inn
í höllina. Picasso sá hann í svip
áöur en hann slapp og þegar hann
kcerði þjófinn afhenti hann lögregl-
unni um leið teikningu, sem hann
hafði gert af honum. Var hún Ijós-
prentuð ag send lögreglunni víðs-
vegar um landið. Eftir einn sólar-
hring hafði lögreglan handiekið tvo
vatnskrana, einn kœliskáp, ryksugu
og skoska belgpípu.
Á skíðum um hásumar. Myndin er frá
Tékkóslóvakíu og sýnir gerfiskíðabraut, sem
gerð hefur verið úr pastik. Brautin er 500 m
löng og það hál, að hægt er að ná allmiklum
hraða.
Siðfáguðu fólki verður meira ágengt. Það
hefir gott útlit og auðvelt með að kynnast
öðrum. Fólk, sem umhugað er um útlit sitt,
verður að hirða tennur sínar reglulega og
nota tannkrem sem hægt er að reiða sig á.
Saxodent freyðandi tannkrem gefur tönnun-
um mjallhvítan blæ. Hin þétta súrefnisbætta
froða eyðir andremmu og hindrar húðmyndun
á tönnum. Þeir sem vilja hirða tennur sínar
samkvæmt nýjustu heilbrigðiskröfum mega
ekki láta hið freyðandi Saxodent tannkrem
vanta. Það hentar jafnt fullorðna sem börn-
um, ungum sem gömlum.
Heildsölubrigðir:
Kristján Ó. Skagfjörð. Sími 24120.
VEB
sm
SKILAR
HVITASTA ÞVOTTI
■■■Hi
X-OMO inn/FW.íflíc