Fálkinn


Fálkinn - 28.12.1960, Blaðsíða 33

Fálkinn - 28.12.1960, Blaðsíða 33
Oskum öllum viöskiptavinum okkar árs og friðar é^ldincj hraJintj CJo. hJ. HAFNARHVDLI - REYKJAVÍK DIESELVELAR 3 TIL 2000 HÖ Umboðsmenn: Hlutafélagið Hamar um ársins og á veturna þó sérstaklega, þar sem þær liggja hinar löngu nætur 1 bælum sínum. Finnur þá refurinn lykt- ina af þeim og læSist á móti golunni, þar til hann veit nákvæmlega hvar rjúpan liggur. Tvö til fjögur hnitmiðuð stökk er lokaþátturinn. En refurinn er hættulegur rjúpunni á öðru sviði. Hann er ægilegur eggjaræningi eins og hrafn- inn. Ég hygg að refir finni sjaldan svo hreiður á víðavangi, að þeir ekki taki eggin ef þeir geta grafið þau. Það er líka hans vetrarforði, því að fyrirhyggj- una vantar ekki.“ Þriðji og skæðasti óvinur rjúpunnar er maðurinn, en það er önnur saga. Við skulum sleppa að segja frá sambúð hans og rjúpunnar, svo að mönnum verði ekki illt af jólarjúpunni sinni... Frétt ársins - Frh. af bls. 19 Guðmundssonar yfir auðum stólum í háskólanum og viljið þið fleira? Við þökkuðum fyrir okkur og héldum að þetta mundi duga. ★ Fréttast j ór ar Reyk j avíkurblaðanna hafa nú sagt álit sitt á frétt ársins 1960 og það fer ekki á milli mála, að hún er fréttin um Úranus, sem var heimtur úr helju 13. janúar. Fréttastjórarnir eru nær allir sammála um að velja þessa gleðilegu frétt og verður ekki annað sagt, en þeir séu í fyllsta máta jákvæð- ir í starfi sínu, eins og vera ber. Viðburðarríkt ár er liðið og nýtt ár er sem óskrifað blað í ritvélinni. Nýtt ár með nýjum fréttum. Litla sagan - Framh. af bls. 24. hringum, sem liðnir voru frá því að maðurinn dó. Hann hafði verið skotinn með annarri skammbyssu, af sömu gerð og skammbyssa hins látna var. Síðan hafði skammbyssan verið lögð á gólfið hjá honum, til þess að láta líta svo út sem þetta væri sjálfsmorð. Og það mun- aði minnstu að Þetta bragð tækist. Flóknara reyndist að velja úr þessum fimm, sem allir höfðu átt grunsamleg skipti við hinn látna, en það tókst þó eftir að tæknilegum brögðum sakamála- lögreglunnar hafði vérið beitt. í herbergi hins látna fannst öskubakki með sex vindlingastúfum. Eftir að þeir höfðu verið efnagreindir, kom það á daginn, að sumir vindlingarnir höfðu verið reyktir af einhverjum úr svo- nefndum B-flokki, en aðrir af mönnum í O-flokki. Sá myrti var í O-flokki og nú var vandinn að finna mann úr B-flokkn- um. Þeir fimm voru hver eftir annan boð- aðir á fund með sakamálafulltrúanum til að gera grein fyrir viðskiptastarf- semi hins látna. Fulltrúinn var óspar á vindlingana. Það kom á daginn, að þrír af þessum fimm reyktu alls ekki, og að sá fjórði var í A-flokki. En nr. 5 var í B-flokki, og nú bárust böndin að honum. Hann var tekinn fastur á heimili sínu, og þegar sönnunargögn lögreglimnar voru lögð fyrir hann, taldi hann réttast að meðganga. FÁLKLNN 33

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.