Fálkinn - 27.09.1961, Blaðsíða 14
Ég fluttist vestan af fjörðum með
föður mínum skömmu eftir að móðir
mín dó. Pabbi var Reykvíkingur og
hafði aldrei unað sér fyrir vestan þar
sem mamma var borin og barnfædd.
Hann hafði verið sjómaður fyrir vest-
an og réði sig á togara þegar við flutt-
um suður. Ég var fimmtán ára þegar
þetta var.
Mér þótti afar vænt um mömmu og
saknaði hennar svo mikið að marga
mánuði grét ég mig í svefn á hverju
kvöldi. Ég var einbirni og við mamma
höfðum því átt meira saman að sælda
en títt er þar sem börnin eru fleiri.
Pabbi tók andláti mömmu mjög þungt,
en hann er dulur að eðlisfari og hafði
ekki mörg orð um.
Við fengum leigða kjallaraíbúð inni
í Kleppsholti og það var afráðið að ég
skyldi fara í skóla um haustið og föður-
systir mín einhleyp kona á sextugsaldri,
búsett suður með sjó, ætlaði að flytja
til okkar og halda hús. Við fluttum suð-
ur að vorlagi og það var ákveðið að ég
skyldi sjá um íbúðina og matselja um
sumarið. Það var í sjálfu sér lítið verk,
því ég mundi vera ein mestallan tím-
ann, pabbi var á sjónum eins og ég gat
um áðan. Þess vegna fékk ég mér vinnu
í fiski til að drýgja tekjurnar og drepa
tímann. Ég hafði aldrei vanist aðgerðar-
leysi. í fiskinum kynntist ég ýmsum
stúlkum á mínu reki og sannast að segja
þótti mér þær sumar heldur gjálífar. Ég
hafði ekki vanist því að vestan að stúlk-
ur á mínum aldri væru byrjaðar að
reykja og sumar þeirra smökkuðu jafn-
vel áfengi og voru með strákum. Þeg-
ar þær vissu hvernig högum mínum
var háttað komu tvær þeirra að máli
við mig og stungu upp á því að halda
partí í íbúðinni hjá mér úr því ég hefði
svona mikið frjálsræði. Þær sögðust
þekkja nóg af piltum, eða gæjum eins
og þær kölluðu þá, og ekki yrðu vand-
ræði með veizluföng. Þessu þverneitaði
ég og forðaðist þessar stelpur framveg-
is. Hins vegar eignaðist ég þarna ýms-
ar góðar kunningjastúlkur og ein þeirra
sem ég kynntist fyrsta daginn er enn
í dag bezta vinkona mín.
Allt gekk vel þar til pabbi kom heim
úr öðrum túrnum á togaranum. Þá bað
hann mig að hreinsa reglulega vel til í
íbúðinni því hann ætti von á gestum.
Gömlum vinum frá því hann átti heima
í Reykjavík á sínum yngri árum. Ég var
að vísu búin að hreinsa íbúðina í hólf
og gólf en datt í hug að skreyta hana