Fálkinn


Fálkinn - 27.09.1961, Blaðsíða 17

Fálkinn - 27.09.1961, Blaðsíða 17
hringdu bara í Joan. Þú getur ekki verið án hennar lengur, hugsa ég mér. Láttu hana bara koma og troða sér á milli okkar, Arnold. Ég er hugrakkari en þú. 'Ég get setið hér og hlustað á þig kalla mig fuglahræðu. En þú vilt ekki svara mér hreinskilnislega, og það er vegna þess að ásakanir mínar eru réttar. Þú hatar mig, en þú elskar Joan. — Nei, nei, það er ekki rétt. — Jú, ég veit að það er rétt. Ætlar þú að segja mér að þú sért sá eini, sem ekki gerir þér það ljóst? Ég veit það, Joan veit það, og Jacob Diamond veit það. Ég hef vitað það lengur en allir hinir, en þú fékkst mig til að trúa því að það hafi verið ímyndun. Nú ætla ég 1 að biðja þig að segja mér umbúðalaust að þú elskir mig ekki, svo að ég geti þá fengið sálarró. —• Það get ég ekki, stundi hann. — Þú skalt segja það. Ég skal heyra það frá þínum eigin munni, svo að ég láti ekki undan aftur og fari að halda að ef til vill sé það rangt hjá mér. — Ég held dauðahaldi í einhverja veika von, Arnold, og það er það, sem er að gera út af við mig. Hann leit á hana að þrotum kominn. Að lokum hafði henni tekizt að brjótast á bak við skjöld hans, vegg kulda og hlutleysis. — Charlotte, þú elskar mig ekki, svaraði hann ákafur. — Það er að minnsta kosti nokkuð, sem þú hefur gert þér í hugarlund. Það er sjúkleg í- myndun. — Segðu að þú elskir mig ekki, sagði hún með þeirri röddu, sem ósjálfrátt fékk hann til að hlíða. — Ég elska þig ekki, Charlotte. Að lokum hafði henni tekizt að fá sannleikann út úr honum. Það var eins og hnífur hefði legið við hjarta hennar, og hún hefði verið að því komin að missa vitið á meðan hún beið eftir bana- högginu. Nú var það riðið af, og sárs- aukinn var jafn átakanlegur og hún hafði búizt við. En jafnhliða var hann góður, eins og sársauki undan hnífi skurðlæknisins, sem er að fjarlægja sýkt líffæri. Og það var sársauki, sem hún varð að standast. Hún varð að svífa í þessu auða rúmi milli lífs og dauða, þar til hún gat endurfæðst aftur. Þessa nótt grét hún sem óhuggandi og barðist í örvæntingu, þar til engin tár komu í augu hennar framar. Að morgni jóladags hafði hún tekið ákvörð- un. Hún ætlaði að byrja nýtt líf, án Arnolds. í lestinni á leiðinni heim, sagði hún við hann, að hún ætlaði að sækja um skilnað, án þess að vekja nokkuð umtal. Henni sárnaði að sjá, hversu honum létti. — Við getum verið vinir, sagði hann. — Nei, sagði hún gröm. — Við höf- um aldrei verið vinir, og hvers vegna ættum við þá að fara að byrja á því núna, þegar öllu er lokið? Það var það, sem var meinið, hugs- aði hún og sat með lokuð augun og hlust- aði á hjólin skella á teinunum með jöfnu hljóðfalli. Þau höfðu aldrei verið vinir. í fyrstunni hafði það verið ástríða, án vináttu eða kærleika, en þegar ástríð- an dó út, var ekkert eftir nema von- brigði og eymd fyrir þau bæði. Þau höfðu verið tvær ókunnugar manneskjur, sem tilgangslaust reyndu að lifa lífinu saman. Tvær ókunnugar manneskjur, hún og eiginmaður henn- ar. Það var sannleikurinn, og það var ekki hægt að skjóta sér undan því lengur. Þegar hún kom heim, gaf hún Joan gyllta kjólinn, sem hún hafði keypt, til að vera falleg í. Joan mátaði hann strax, og Charlotte vildi endilega að Arnold sæi stjúpsystur hennar í þessum marg- umrædda kvöldkjól. — Hann er mjög fallegur, sagði hann næstum hátíðlega og gleymdi nú að lát- ast. Ást hans til Joan lýsti út úr aug- um hans. — Joan, sagði Charlotte, — Arnold þarf að tala við þig um svolítið. Nú fer ég upp til mín. Góða nótt, bæði tvö. Hún gekk upp í myrkrið og einmana- leikann eins og svo oft áður, og þann tíma, sem í hönd fór, varð hún að taka á öllu, sem hún átti, og halda áfram eins og ekkert hefði í skorizt, til að skaða ekki Arnold, sem var sjúklega hræddur við allt, sem gat haft eftirtekt og skömm í för með sér. Hún varð að fara með honum í ný- ársveizlu í háskólanum, en fyrst lét hún lita hár sitt dökkt aftur, og hún keypti sér kjól, sem var henni mátulegur og fór henni mæta vel. Hægt og hægt var Charlotte að komast út úr myrkri því, sem hafði verið að lykjast um hana. Hún tók þátt í nýársveizlunni, og hún leit óvenjuvel út, þó að glöggt merki mætti sjá þess, sem hún hafði orðið fyr- ir. Jacob Diamond var einnig viðstadd- ur, og það var í síðasta sinn, sem hann var í háskólanum, því að hann hafði fengið stöðu sem ritstjóri við mánaðar- rit. Hann hlakkaði mikið til nýja starf- ans. Arnold hafði lengi brugðið fyrir hann fæti og eyðilagt möguleika hans í háskólanum, en hann saknaði þess ekki. Hins vegar saknaði hann Charlotte. Þegar hann kvaddi hana seint um kvöldið, gaf hann henni heimilisfangjð Framh. á bls. 28. fXlkinn 17

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.