Fálkinn - 27.09.1961, Side 20
Einar Jónsson óskar fegurstu stúlku Norðurlanda 1961 til hamingju með sigurinn.
Noregur sigraöi
Það var að vonum g'eysileg’
eftirvænting' að Hótel Borg um
miðnætti á laugardag, þegar
tilkynna skyldi úrslitin í
fyrstu fegurðarsamkeppni
Norðurlanda. — Sigurvegari
varð fulltrúi Noregs í keppn-
inni, Rigmor Trengereid. Rig-
mor er 21 árs að aldri og er
frá Bergen. Hún er bæði sýn-
ingarstúlka og Ijósmyndafyr-
irsæta að atvinnu. Hún hefur
tvisvar áður tekið þátt í feg-
urðarkeppni erlendis, í Beirút
og Miami. Hún varð númer
eitt í fegurðarsamkeppni
heimalands sins 1961. Rigmor
er enn ólofuð.
I>að er eklci að efa, að
keppni i þessari fyrstu fegurð-
arsamkeppni Norðurlandanna
hefur verið geysihörð og dóm-
nefndinni hefur verið mikill
vandi á höndum að velja eina
úr þessum glæsilega hópi.
Fegurðardisirnar hlutu all-
ar verðlaun og fjölmargar
glæsilegar gjafir og vöktu ó-
skipta athygli áhorfenda.
Talið frá vinstri: Birgitte
Heiberg (Danmörk), Mar-
grethe Schauman (Finn-
land), Ungfrú Norðurlönd
1961, Rigmor Trengereid
(Noregur), Inger Lundquist
(Svíþjóð) og María Guð-
mundsdóttir, fegurðardrottn.
ing íslands. (Ljósm. Oddur
Ólafsson).