Fálkinn


Fálkinn - 27.09.1961, Side 29

Fálkinn - 27.09.1961, Side 29
Jjt)i(hal?jöt Nú líður óðum að þeim árstíma, sem fé er rekið af fjalli og slátrun hefst. Það er gömul venja að reykja og salta kjötið til vetrarforða. Og nú hefur þriðja geymsluaðferðin rutt sér til rúms, þ. e. a. s. hraðfrystingin og fjöldi fólks, sem að- gang hefur að frystihólfum, birgir sig upp með kjöt til ársins. Áður en kjötið er selt til neyzlu, er það skoðað og metið af tveimur skoðun- armönnum. Er fróðlegt fyrir húsmæður að kynna sér í hverju matið er fólgið. Fyrst er það skoðað af dýralækni eða læknj í sláturhúsum. Þeirra flokkun mið- ast einungis við heilbrigðisástand dýr- anna. Þeir dæma kjötið í fjóra flokka eftir heilbrigði: Kjötdeigsvefjur með hrærðum kartöflum öllu. 2. flokkur: Kjöt, sem ekki er tækt í 1. öðrum orsökum. 3. flokkur: Kjöt; sem ekki er tækt í 1. eða 2. flokk, en er þó hæft til matar, t. d. töluvert marið. 4. flokkur: Kjöt, sem er óhæft til neyzlu vegna sjúkdóma eða skemmda, og er því ávallt brennt eða eyðilagt á ann- an hátt. Kjötið er stimplað á 6 stöðum. Stimp- ilmerkið er jafnhliða þríhyrningur og 400 g saxað nautakjöt 200 g saxað svínakjöt eða saltkjöt 2 msk. hveiti 1 egg IV2 dl rjómi eða mjólk Salt, pipar; muskat Smjör. Kjötið saxað tvisvar, blandað vel sam- an. Hveiti, egggjarauðunni og kryddi hrært saman við. Mjólkinni hrært sam- an við smátt og smátt og að lokum eggjahvítan. 1. mynd: Kjötdeigið flatt út með hendinni á blautum smjörpappír. Þykk- ar, hrærðar kartöflur (% kg kartöfl- ur, 1 msk. smjörlíki, salt, pipar) breidd. ar þar á. Vafið upp eins og myndin sýnir. 2. mynd: Vefjunni velt upp úr blöndu af hveiti og brauðmylsnu, sem í er dá- lítið salt. Steikt í djúpri pönnu í nokk- uð mikilli feiti, lok sett á, steikt áfram við vægan hita í nál. V* klst. Einnig er hægt að steikja vefjuna í ofni. 3. mynd: Vefjan sett á fat, skornar nokkrar sneiðar, Borin fram með miklu af brúnuðum lauk og steiktum tómöt- um. Soðið úr pönnunni, sem í er sett 1 msk. af köldu smjöri, borið með í sósukönnu. innan í honum talan 1, 2 eða 3 eftir flokki. Síðan taka kjötskoðunarmenn við og jPalmincý matucela L íóó L apmn Sé ekki vel um matvæl- in búið, breyta þau um lit, þorna, geta tekið í sig bragð og næringargildið rýrnar. Til umbúða á kjöti og grænmeti verður að nota loft- og vatnsþéttan papp- ír. Beztur er plasticpapp- ir, sem hægt er að festa saman með heitu strau- járni. Einnig má snúa upp á endana og loka með teygju. Gæta verður þess að þrýsta vel öllu lofti burt, áður en lokað er. Þar sem þessi pappír er við- kvæmur, verður auk þess að leggja pakkana í pappa- kassa eða pakka þeim inn í sterkan umbúðapappír. Loka vel og merkja hvern pakka með dagsetningu og innihaldi. Einnig er ágætt að nota alúminíumpappír, sem er alveg loftþéttur. Notast má við vaxborinn pappír, en hann er þó varla nægi- lega loftþéttur. Hins veg- ar er smjörpappír ófull- nægjandi og eins venju- legur cellofan, svo að ekki sé talað um grisjupoka, sem allt of oft eru notað- ir. Þeir eru ágætir sem ytri umbúðir. Þegar raðað er í frysti- hólfið, er frosnu matvæl- unum, sem fyrir eru, stafl- að þétt saman öðrum meg- in hólfsins. Bezt er að nokkurt rými sé milli frosnu og ófrosnu matvæl- anna, svo að þau ófrosnu þíði ekki þau frosnu. Eigi að frysta mikið magn, er bezt að leggja rimla milli laga, svo að kalda loftið getið leikið betur um pakkana. Ath. að frystihólfið í ís- skápnum er ekki ætlað til hraðfrystingar á matvæl- um. Mesta frostið er í flestum tilfellum -t- 10 °C. Það er eingöngu ætlað til að frysta ísmola og ábæt- isrétti. Einnig til geymslu í takmarkaðan tíma á hraðfrystri vöru. framkvæma gæðaflokkun. — Dilkakjöt, sem selja á innanlands, nýtt eða fryst, eða flytja skal á erlendan markað, er metið eftir gæðum í 3 flokka. í. 1. gæðaflokk eru látnir allir skrokk- ar; sem eru holdmiklir og ógallaðir að útliti. í 2. gæðaflokk eru settir miðlungs- skrokkar, sem eru þó allvel hold- fylltir. í 3. gæðaflokk eru settir allir holdlitlir eða magrir skrokkar; teljist þeir þeir söluhæfir. Kjötið er vegið áður en það er fryst og skipt í þunga flokka, sem hér segir: 1. flokks skrokkar, sem vega 12y2 kg eða minna, eru merktir tölustafnum 6. 1. flokks skrokkar, sem vega 13—16 kg eða minna, eru merktir tölustafnum 2. 1. flokks skrokkar, sem vega 16V2—19 kg eða minna, eru merktir tölustafn- um 8. 1. flokks skrokkar, sem vega 19y2— 22Vz kg eða minna, eru merktir tölu- stafnum 4. 1. flokks skrokkar, sem vega 23 kg eða minna, eru merktir tölustafnum T. Skrokkar 2. gæðaflokks með samsvax-- andi þunga eru merktir með sömu töl- Framh. á bls. 29. FALKINN 25

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.