Fálkinn - 08.11.1961, Qupperneq 37
FYLGIÐ TÍZKUNNI
Látið klippa hárið með hinum
vinsælu klippingarhnífum
FRANSKA PERMANENTIÐ
komið aftur
SÍMI 33968
Hrútsinerkið (21. marz—20. apríl).
Miðvikudagur og fimmtudagur verða dagar mikilla
tækifæra, en einungis ef þér notið skynsemina og gæt-
ið þess að rasa ekki um ráð fram, hvað snertir fjár-
málin. Undir vikulokin mun margt bregðast til beggja
vona, en þó munuð þér lenda í bráðskemmtilegu ævin-
t.ýri á laugardag.
Nautsmerkið (21. apríl—21. maí).
Þér ættuð að reyna að vera örlítið alúðlegri í fram-
komu við ákveðna persónu. Það mun án efa borga
sig vel. Ekki er laust við, að dálítillar þröngsýni gæti
hjá yður í einstaka málum, jafnvel fyllist þér stundum
hroka og merkilegheitum, sem skaðar mjög frama yðar.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní).
í þessari viku munu óskir hjartnanna rætast að
að nokkru leyti, því að sú von, sem þér óluð með yður
og væntuð að mundi rætast, mun rætast. Að vísu mun
hún þó ekki uppfyllast algjörlega, en persóna sú, sem
þér hafið haft í huga í þessu sambandi, mun fara
að veita yður meiri athygli en áður.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Það sannast í þessari viku, eins og oft áður, að víða
er pot.tur brotinn. Vissulega er ekki hægt að kenna
yður um allt, sem aflaga fer, en þér ættuð að kapp-
kosta að reyna fremur að bæta heldur en eyðileggja.
Hins vegar skuluð þér ekki veigra yður við að grípa
til róttækra ráðstafana.
Ljónsmerkið (22. júlí—23. ágúst).
Þær vikur koma stundum fyrir, sem allt gengur
svo auðveldlega, að maður þarf vart að hreyfa sig.
Allt, leikur í lyndi og ástamálin munu blómstra eins
og morgunfrú við hinni fyrstu sumarsól. Annars ættuð
þér að taka yður til og vinna svolítið, þó ekki væri
nema til tilbreytingar.
Jómfrúarmerkið (2U. ágúst—23. sept.).
Hinn grái hversdagsleiki mun grúfa yfir öllu þessa
viku eins og mara, en eitthvað mun þó rofa t.il þegar
líður á vikuna. Fyrirtæki nokkurt, sem þér eruð bendl-
aður við, mun bera af sér góðan ávöxt og þá mun
pyngja yðar þyngjast eitthvað. Happatala 9.
Vogarskálarmerkið (2U. sept.—23. okt.).
Þér fáið yfrið nóg að starfa þessa viku, en gætið
þess að lát.a ekki aðra troða yður um tær og vinna
þess vegna of mikið. Því að ef mönnum er sýnd greið-
vikni einu sinni, ganga þeir á lagið.
Sporðdrekamerkið (2U. okt.—22. nóv.).
Þér lendið í nokkuð erfiðri aðstöðu, því að svo virð-
ist, sem þér séuð milli tveggja elda, sem báðir loga
glatt. Annars vegar eru einkamál yðar og hinsvegar
persóna nokkur, sem lengi hefur haft töluverð áhrif
á yður. Reyniö að særa tilfinningar þessa fólks sem
minnst.
Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. des.).
Á því mun leika lítill vafi, að vikan verður góð til
hvers konar at.hafna. Margt það, sem þér hafið lengi
haft. á prjónunum, mun komast í framkvæmd. Gætiðþess
samt sem áður að ofmetnast ekki yfir verkum þeim,
sem vel eru unnin.
Steingeitarmerkið (22. deh.—20. jan.).
Hroðvirkni í starfi er aldrei kostur við vinnu eins
eða neins, og þér ættuð því að gæta þess að flýta yður
ekki um of í starfi yðar, en reynið að vanda fremur
verk yðar. Hinu er ekki að neita, að stjörnurnar spá
yður fermur góðri framtíð að öðru leyti.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.).
Einhverra leiðinda mun vera að vænta í þessari
viku, en þau munu samt bráðlega hverfa. í þessum
málum reynir talsvert á þolrifin í yður og st.jörnurnar
segja, að þér munið bara standa yður vel og verðið
þér meiri maður og reyndari.
Fiskamerlcið (20. febr.—20. marz).
Þér verðið óvenjulega vel upplagður þessa viku og
allt, sem þér snertið á, heppnast vel og verður yður
til sóma. Það er auk þess aðalsmerki að standa ávallt
í skilum, sem þér og hafið alltaf gert.. Með því og engu
öðru byggið þér traustan grundvöll undir starfsemi
yðar.
©
FALKINN
37