Fálkinn - 15.11.1961, Blaðsíða 7
ir, þá las ég íslendingasögur
þegar ég var ungur, enda lærði
ég að lesa á Njálu. Af íslend-
ingasögum gætu börnin ýmis-
legt lært, þar mundu þau
kynnast stórkostlegum persón-
um, sem mundu hafa áhrif á
þau alla ævi. Mætti ekki til
dæmis lesa upp íslendinga-
sögulestur fyrir börn í barna-
tímanum og skýra þá persón-
urnar og textann út fyrir
þeim, jafnvel láta þau svara
spurningum um efnið o. s. frv.
Ég er viss um að þetta væri
mjög þroskandi, hvað svo
sem allir súkkulaðipædagógar
segja. K. Þ.
Svar:
Mjög athyglisverð tillaga.
Hvað segið þér, lesandi góður?
OrSið er laust.
Hinn erfiði amor.
Rvík^ 24. okt. 1961.
Kæri Fálki! — Ég skrifa
ykkur til þess að leita ráða
ykkar. Ég er tuttugu og eins
árs gamall og hef stundað flest
störf bæði til sjós og lands.
Upp á síðkastið hef ég verið
með stelpu, sem er 18 ára, og
höfum við um það talað, að
við gengjum í það heilaga von
bráðar, eða að minnsta
kosti trúlofuðum okkur innan
skamms. En þegar hún kemur
heim til mín og við höfum
verið saman nokkra stund, og
hún ætlar að fara, fæ ég ekki
að fylgja henni heim, og segir
hún að þess þurfi ekki. En
nokkrum sinnum hef ég séð,
að þegar hún er komin spöl-
korn frá húsinu, kemur bíll
akandi og hún stígur upp í.
Komið hefur það líka fyrir, að
hún sé að daðra við aðra
stráka þegar við förum eitt-
hvað út. En þegar ég fer að
finna að þessu, þá tekst henni
jafnan að sannfæra mig í bili
og segir hún að hún meini
ekkert með þessu, Hvað á ég
að gera við stúlkuna? Ég elska
hana og hún segist elska mig.
Verið þér nú ekki of harður
í dómi og reynið að hjálpa mér
í þessum vandræðum.
F. D.
Svar:
Þér ættuð án tafar að reyna
að losa yður við hana. Eftir
þessu bréfi að dœma, er þetta
bara drós og hún virðir yður
ekki nokkurs. Satt að segja
höfum við aldrei heyrt annað
eins. En umfram allt, látið
ekki þessa drós tœla yður í
hjónabandið.
EGGERT KRISTJANSSON & CO. H.F.
sími 11400 H01LAND
FÁLKINN 7