Fálkinn - 20.04.1964, Blaðsíða 32
— bér verðið sjálfur að
finna sætið yðar herra minn.
Myndin er bönnuð innan 14
ára!
— En við höfum þegar gert
góðverk í dag!
HVAÐ GERIST I NÆSTU VIKU ?
Hrútsmerkið (21. marz—20. avrílJ.
Svo sem áður brýnum við fyrir yður varkárni
hvað viðkemur fjármálin ok það ættuð þér að
taka alvarlega. Hvað við kemur einkalífið verð-
ur bessi vika mjög þægileg og fmmtudagurinn
verður óvæntur á ýmsan hátt.
Nautsmerlciö (21. avríl—21. maí).
Þessi vika verður enn rólegri heldur en sú fyrri
og það getur komið svo að yður finnist m.iög
leiðinlegt. Þér skuluð samt ekki láta þetta á yður
fá því það er skemmtilegir tímar framundan.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní).
Þér getið nú andað rólegar og horft b.iörtum
augum fram til þessarar viku. sem verður hin
þægilegasta. Þér ættuð þó að fara rólega í viku-
lokin og vera heldur heima við en vera á stjái
úti við.
Krabbamerkiö (22. iúní—22. júlí).
Þér verðið að fylgjast vel með þvi sem er að
gerast á vinnustað um þessar mundir þvi ella
kann svo að fara að Þér verðið fyrir talsverðum
óþægindum og erfiðleikum.
LjónsmerkiÖ (23. júlí—23. áaúst).
Það er hætt við að þessi vika verði ekki eins
skemmtileg og sú hin síðasta. Svo sem í fyrri
viku verðið bér að gæta sérstakrar varkárni svo
ékki fari illa fyrir yður og þér ættuð að vera
einkar tortrvgginn.
JómfrúarmerkiÖ (2h. áaúst—23. sevt.).
Þessi vika verður jafn róleg og hin fyrri var
skemmtileg. Þér skuluð leggja allt kann á að
tryggja þau sambönd sem hófust í fyrri viku og
ef það tekst getið þér verið rólegir.
VoaarskálamerkiÖ (2h. sevt.—23. okt.).
I síðustu viku var það vinnustaðurinn, sem þér
áttuð að helga yður. Nú skuluð bér í þessari viku
snúa yður að heimilinu og reyna að koma lagi
á það sem aflaga hefur farið að undanförnu.
Þriðjudagurinn kann að reynast yður erfiður.
Svorödrekamerkiö (21,- okt.—22. nóv.).
Þér skuluð ekki ráðast í neinar stórframkvæmd-
ir i þessari viku því afstöðurnar eru ekki neitt
sérlega heppilegar fyrir yður um þessar mundir.
Þér ættuð þess vegna að taka lífinu með ró.
Boaamannsmerkiö (23. növ.—21. des ).
Þessi vika verður miög skemmtileg fyrir þá,
sem fæddir eru i nóvember og hún verður einnig
notaleg fyrir hina. Þeir sem geta komið því við
ættu að fara i smá ferðalag um helgina.
Steinaeitarmerkiö (22. des.—20. janúar).
Svo sem áður eru það fjármálin sem miklu
varða í þessari viku og þér ættuð að reyna að
koma einhverju lagi á þau. Mánudagur og mið-
vikudagur verða heppilegir til þessa.
Vatnsberamerkiö (21. janúar—18. febrúar).
Það fyrirtæki, sem þér hafið verið að undirbúa
að undanförnu mun fara að bera ríkulegan ávöxt
um þessar mundir. Þér ættuð að gæta fengins
fjár en ekki að eyða því í vitleysu.
FiskamerkiÖ (19. febrúar—20. marz).
Ef þér hafið haldið rétt á spilunum i vikunni
sem leið þá munuð þér nú fara að sjá ávöxt af
þeirri útsjónarsemi yðar. Annars verður þessi vika
róleg og þér ættuð að vera sem mest heima.
©
©
32
FALKINN