Fálkinn - 20.04.1964, Side 36
Elvenþjóðin
Framhald af bls. 34.
Skerið nokkra hráa sveppi,
sem geymdir hafa verið, í
fallegar sneiðar eða til helm-
inga, ef þeir eru litlir. Látnir
á síðasta augnabliki út í sjóð-
andi súpuna.
frönsk gulrötasúpa
látin sjóða við vægan hita í
tæpa klukkustund.
Súpan marin gegnum sigti,
þynnt út með afgangnum af
soðinu. Kryddað með salti og
pipar. Smjörbiti látinn út í.
Steinselju stráð yfir.
Togast - Burgers
Framhald af bls. 35.
lagi (IV2—2 cm) af kjötdeigi
á hverja sneið.
Smyrjið dálítilli matarolíu
ofan á með pensli og setjið
brauðin inn í heitan ofn 190°.
Smyrjið oft ofan á kjötdeigið
með tómatkrafti, meðan það er
að brúnast.
Borið fram sjóðandi heitt.
*
\ sætrjám
Framhald af bls. 19.
Meðal þeirra sem björguðust
var 3. stýrimaður á „Geysi“.
Hann var sofandi í klefa sínum
en vaknaði við ógnvekjandi
hávaða er skipssúð molaði einn
vegginn í klefanum. Þegar í
næstu andrá fjarlægðist skips-
stefnið og stýrimaðurinn sá
ofan í hyldýpið. Hann sá að
eina björgunarvonin var að
fara út um skarðið, sem mynd-
ast hafði í skipssíðuna og án
þess að hugsa sig um stökk
hann og tókst að ná tökum á
akkerisfesti, „Þingvalla“, sem
hékk niður með stefninu. Þriðji
stýrimaður var ungur og
hraustur og honum tókst að
lesa sig upp akkerisfestina og
komast af henni upp á þilfar.
Meðan á björguninni stóð og
enginn vissi hve mikið „Þing-
vellir voru laskaðir, eða hve
lengi það myndi fljóta, lét skip-
stjóri skjóta flugéldum og
neyðarblysum. Þýzkt skip,
e.s. „Wieland" var statt skammt
frá. Þetta skip var á leið til
New York með innflytjendur.
skipsmenn sáu flugeldana og
ályktuðu réttilega að slys hefði
hent.
Margir þeirra 31 sem bjarg-
að var af „Geysi“ voru slas-
aðir, en aðrir aðframkomnir
af kulda, enda flestir á nær-
fötunum einum. Þegar Wieland
kom á vettvang höfðu skips-
menn á „Þingvöllum“ veitt
skipbrotsmönnum alla þá að-
hlynningu sem hægt var að láta
í té. Um morguninn 14. ágúst
voru svo allir farþegar sem
voru um borð í „Þingvöllum"
fluttir um borð í Wieland, sem
sigldi með þá til New York.
Litlu síðar sigldi „Þingvell-
ir“ á hægri ferð af stað til
Halifax.
Blöðum beggja vegna Atlants-
hafsins varð að vonum tíðrætt
um þetta hörmulega slys, þar
sem tvö skip frá sama landi
og meira að segja frá sama
skipafélagi lentu í árekstri á
hinni miklu víðáttu Atlants-
hafsins með þeim afleiðingum
sem að framan getur.
En hrakföll Þingvallafélags-
ins voru ekki þar með á enda.
„Þingvellir11 náðu til Halifax
og hlaut þar viðgerð. Skipið
hóf síðan siglingar að nýju á
leiðinni Kaupmannahöfn New
York og flutti marga innflytj-
endur til Ameríku á næstu
árum. í einni slíkri ferð rakst
skipið á hafísjaka, en laskaðist
ekki að ráði og komst til hafn-
ar af eigin rammleik, eftir að
áhöfnin hafði gert að skemmd-
unum með tiltækum ráðum.
En þótt „Þingvellir" væri
þannig tvisvar búið að komast
í hann krappann og sleppa í
bæði skiptin til hafnar, voru
önnur skip Þingvallafélagsins,
sem í slíku lentu ekki eins
heppin, og þar kom að fólk
fékk ótrú á félaginu og skip-
um þess, farþegum fækkaði og
félagið átti erfitt uppdráttar.
Mesta slysið í sögu félagsins
var er e.s. „Norge“ fórst fyrir
vestan Skotland og með skip-
inu um 600 manns, en um 200
var bjargað.
Nokkru síðar komst félagið í
eigu Sameinaða gufuskipa-
félagsins og lauk þar sögu
þessa óhappa danska skipa-
félags sem hét íslenzku nafni
og átti mörg skip sem báru
íslenzk nöfn. Sv. S.
Kvikmyndir
Framhald af bls. 29
Scott Marlowe heitir sá sem
fer með hlutverk Tony. Hann
er 23 ára fæddur í Róm en fór
ungur vestur um haf. Eins og
Lola er þetta fyrsta stóra hlut-
verkið hans en áður hefur hann
leikið í nokkrum sjónvarps-
myndum. - -
' -tSagan sem 1 þessi mynd er
byggð á hefur • fýrir stuttu
komið út í íslenzkri þýðingu.
Litla sagan
Framhald af bls. 30.
líka sá síðasti. Og ég
læt Trampenkrónu-Silfurskjöld
greifa fara með þér til að sjá
hversu æðislega þú ekur.
Prinsessan neitaði að aka, ef
greifinn kæmi með, og loks
fékk hún leyfi til þess að fara
án hans. Þrjú hundruð kíló-
metra frá höllinni ók hún
Jagúarnum á gríðarlega stórt
tré, sem stóð við veginn. Hann
fór í klessu. Hún fór út og
hringdi á kranabílinn.
Hann kom og hávaxinn og
herðabreiður ungur vélvirki
með ljóst liðað hár steig út úr
honum og gekk brosandi á móti
henni.
Uynrfardómvr PERSONNA tr tó, o! mtS |I5J.
.vgvrn tilravnvm htfvr ranmóknarliji PERSONNA
leKiztaJ gero 4 flvsbtittor eggjar ó hver|v bloJi.
ei5|® vm PERSONNA blóJin.
Hin fróbaerv nýjv PERSONNA rakblöS ór „iloin.
Imi llttl” tnr nfi Miini fóonltg hór ó landi.
Slmnto ikrtflS I þróvn mkbloSa fró þvl oS fronv
fHSHo Þtlrm hófil, PERSONNA rokblaJiS htldvr
flvgbltj fró fynla tll liSoita = 15. rokitvn.
43122 - 11299
HEItDSOlUBIROOIfi
— Ástin mín! sagði hún og
hljóp upp um hálsinn á honum.
— Þetta er í síðasta skiptið,
sem við getum hitzt á þennan
hátt. Pabba og mömmu er farið
að gruna eitthvað!
Geimferftir
Framhald af bls. 31.
kerfið. Máninn verður að öllum
líkindum fyrsti áfangastaður-
inn, þótt sumir álíti, að Rússar
leggi ekki mikla áherzlu á
mánaferðir. Það getur verið
eitthvað til í því. Ef til vill
hafa þeir meiri áhuga á ferð til
Marz, og sagt er að þeir hafi
þegar hafið víðtækan undir-
búning undir Marzferð. Það
yrði auðvitað miklu stærri
sigur.
Vin Hólm.
--S'UlO'k-
Félagsprentsmiðjan h.f.
Spítalastíg 10
Sími 11640.
Prentun á bókum
blöðum
tímaritum.
Alls konar eyðublaðaprentun
Vandað efni
ávallt fyrirliggjandi.
Gúmstimplar afgreiddir
með litlum fyrirvara.
Leitið fyrst til okkar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Spitalastíg 10 — Simi 11640.
BLAUIÐ
DAGUR
er víðlesnasta blað,
sem gefið er út utan
Reykjavíkur.
BLAÐIÐ DAGUR,
Akureyri.
Áskriftasími 116 7.
DAGUR
36 FÁLKiinim