Fálkinn - 22.06.1964, Síða 20
Atriði úr II þætti
Svanavatnsins
Kalinov- eftir Tsjækovskí.
skaja í
hlutverki
Odette £
Svana-
vatninu.
1841, en enn þann dag í dag er
hann jafnvinsæll. Titilhlut-
verkið hefur löngum verið eft-
irsótt af færustu ballerínum
heimsins og munu þær Gavrí-
lenko og Kalnkovskaja skipt-
ast á um að dansa það hlutverk
hér, en þó er ekki endanlega
búið að tilkynna hingað hlut-
verkaskipan, þegar þetta er
skrifað.
Þá verður á efnisskránni
ballettinn Francisca da Rimini.
Tónlistin er eftir Tsjækovskí,
en kóreógrafían (dansarnir
sjálfir) eru eftir Vronskí. Ball-
ettinn er byggður á einu þekkt-
asta verki miðalda, La Divina
Comedia, (Hinum guðdómlega
gleðileik) eftir ítalska skáldið
Dante, sem uppi var um alda-
mótin 1400. Hið forna verk er
í þremur köflum, fyrst er förin
til Heljar, þar sem skáldinu
er leiðbeint um Hel og leið-
sögumaðurinn er enginn annar
en Virgil, hið forna latneska
skáld, og hann leiðir Dante
þar um hin mörgu svæði Helj-
ar, þar sem syndarar skiptast
í ákveðna flokka, og neðst í
Víti kvelst hinn mesti syndari
allra alda, sjálfur svikarinn
Júdas. Hinir þættirnir fjalla
um förina gegnum hreinsunar-
eldinn og að lokum er skáldið
komið í himnaríki og þar er
sælunni lýst.
La Divina Comedia er eitt