Fálkinn - 29.06.1964, Blaðsíða 13
iskýjum, ef vindur blæs á skrá-
þurr fjöllin og sandana, en þær
fimm flugvélar, sem Ariana
hefur á að skipa, fljúga hins
vegar ekki allar upp yfir þessa
.ógnandi tinda. En nú er þetta
. sem svo margt annað óðum að
, breytast. Rússar og Banda-
ríkjamenn eru að byggja flug-
velli og annað, sem þeim þarf
að fylgja, við umferðamestu
staði landsins, Pan Amerícan
hefur verið fengið til að reka
Ariana um sinn og veita Afgön-
um margskonar aðstoð á þessu
sviði. Flugmenn eru enn flestir
Bandaríkjamenn og Indverjar.
Flugvélin er full farþegum,
nær eingöngu Afgönum, körl-
um og konum sem flest eru á
Jeið til Kandahar, annarrar
gtærstu borgar landsins, þar
sem við lendum eftir á þriðju
.stundar flug. Þar umhverfis er
.sléttlendara en við Kabúl. í
suðri tekur við endalaus sand-
sléttan, en fyrir norðan liggja
yztu ranar Hindukushfjall-
garðsins, sem eru jafn gróður-
Hjá bakaranum.
laus og skorpin og sléttan.
Auðn og meiri auðn, það er
Afganistan. Byggðin er að-
eins litlar vinjar, þar sem
vatnsmiklar ár hafa breytt
þurrum jarðvegi í akra og
skógarlundi.
Tveggja tíma flug til, og
við erum komin til Herat.
Lítill er bærinn en þó sá
stærsti í Vestur-Afganistan
Þarna háði Alexander mikli
fyrstu orrustu sína í Aríana,
landi hinna fornu Afgana, og
sigraði að venju. Eftir sigur
sinn lét hann byggja þarna
nýja borg, sem hann gaf
heitið Alexandria Aria, en
það nafn hefur fyrir löngu
verið lagt niður.
Eftir að hafa séð meiri
hluta þeirrar leiðar, sem
Alexander mikli fór um í
herferð sinni fyrir nær 2300
árum, er það ekki lengur
hersnilld hans eða dugnað-
ur hinna grísku hermanna
sem undrun vekur. Hafi
lönd þessi þá verið jafn
hrjóstug og eyðileg og þau
eru nú, þá er sú hugsun
ailtaf efst; að hann skuli
hafa nennt að brjótast um
þessi nær endalausu strjál-
byggðu og óbyggilegu land-
flæmi.
Stórar gamlar kastalarúst-
ir standa enn í Herat, og er
bærinn að mestu byggður í
kringum þær. Þarna var
lengi vestasta virki Afgana
gegn óvinum sínum í vestri
Persum og einhvern tíma
var höfuðborg Afganistan.
Við kastalann standa enn
nokkrar þungar klossaðar fallbyssur á hjólum, bersýnilega
frá fyrri öld, ef ekki enn eldri. Þær hafa dagað þarna uppi
og enginn hirðir um þær, þótt áður hafi þetta verið verð-
mætir gripir og vafalaust einhvern tíma notaðir, því að oft
hefur verið barizt um þessa ævagömlu borg.
Herat ber það augljóslega með sér, að hafa oft verið sigruð
og rænd. Þar má sjá leifar kastala, sem hafa verið svo
til jafnaðir við jörðu og rétt utan við bæinn má sjá geysÞ
háar og gildar mínarettur. í fjarska telur fáfróður gestur
sig sjá geysiháa verksmiðjureykháfa, sem skiljanlega koma
á óvart á stað sem þessum. Orsökin er ekki aðeiris útlit
þessara geysiháu mínaretta, heldur einnig hitt, að hjá þeim
standa engar moskur. Þær voru lagðar í rústir fyrir nokkr-
um öldum, en mínarettunum leyft að standa uppi eftir
að búið var að brjóta af þeim turnhúsin. Það var metnaðuf
Kastalarústir í Hcrat, um þessa hæð barðist Alexander
mikli fyrir um 2300 árum.
IWllill*
FALKINN