Fálkinn - 29.06.1964, Blaðsíða 27
Efst: Njósnarastarfið á mýrun-
um er ekkert sældarbrauð ...
í miðið: Brenndar eru borgir ..
Neðst: Farið í hinztu förina.
\ gerist njósnari fyrir land sitt,
og það er stórum auðveldara
fyrir lítinn dreng að laumast
bak við víglínurnar en fullorð-
inn mann, enda erhann löndum
I sínum dýrmætur. Hann er líka
Injósnari af hugsjón og það þarf
heldur að halda aftur af honum
en hvetja hann. Hann vill
dveljast með hermönnunum og
hjálpa til. Við kynnumst lífi
hersveitanna, nöktum hryllingi
og raunveruleika stríðsins. Við
kynnumst því, hver áhrif hafa
f meitlazt inn í þarnssálina, er
ívan litli fær martröð hvað
eftir annað og vaknar upp með
andfælum. Hann dreymir stöð-
ugt móður sína, en draumarnir
enda ávallt á líkan hátt. Og
loks er hann sendur í þá för,
er hann kemur ekki aftur úr.
Og það er ekki fyrr en Berlín,
háborg nazismans er fallin, að
örlög hans koma í ljós fyrir
tilviljun ....
Eins og fyrr segir sýnir þessi
mynd okkur ógnir stríðsins um-
búðalaust og án þess að reyna
að gera nokkra gloríu úr lífi
hermannanna. Myndatakan er
mjög góð, en myndin er svart-
hvít. Þetta er að mörgu leyti
týpísk rússnesk mynd, eins og
við þekkjum þær beztar, og
FALKINN
27