Fálkinn - 29.06.1964, Page 31
hvað annað, eitthvað allt annað,
er það ekki? Og svo skulum
við kannski fara út og skemmta
okkur í kvöld, til dæmis í bíó,
eða svoleiðis, og ...
Ég tók varlega í kápuermi
hennar, en hún reif sig lausa.
— ÉG ÆPI, EF ÞÚ SLEPP-
IR MÉR EKKI STRAX! æpti
hún, og ég flýtti mér að róa
hana, vegna nágrannanna.
— Sssssssssss ... auðvitað
sleppi ég þér, vina mín, en . ..
Hún æddi upp stigann upp á
aðra hæð og inn í svefnherberg-
ið til þess að ná í eitthvað, —
og þá notaði ég sem sagt tæki-
færið til þess að læsa hana inni.
Það eru einir þrír — fjórir
klukkutímar síðan, núna. Ég
held ég áræði að líta aðeins inn
til hennar, kannski er hún orðin
svo róleg aftur, að það sé hægt
að tala við hana.
Jæja, þá er ég búinn að fara
inn í svefnherbergið hennar.
Það var mannlaust. Hún hafði
bundið nokkur lök saraan,
bundið þau svo við gluggapóst-
inn og lesið sig niður eftir þeim.
Þetta er skelfilegt. Ég er
alveg utan við mig. Ef ég bara
vissi nú, hvað ég á að grípa til
bragðs. En annars er það senni-
lega of seint núna. Ógæfan
er vafalaust skeð. Nei, ég skil
hreint ekki konur. Hvernig i
ósköpunum getur ómerkileg og
illa uppsett auglýsing, eins og
þessi, komið þeim úr öllu jafn-
vægi?:
OKKAR ÁRLEGA ÚTSALA
Á PELSUM. 50% AFSLÁTT-
UR Á ÖLLUM EKTA PERS-
ÍANVÖRUM!
Willy Breinholst.
*
\ morgun . . .
Framhald af bls. 29.
Æ, já, það er víst bara ég, sem
er heimsk gömul kona. Hún
sneri sér að Lísu. — En hvað
þér eigið laglegan og myndar-
legan kærasta.
— Kærasta? Við ... við
erum dálítið saman, sagði Lísa.
Það er ekkert meira milli okk-
ar.
— Elskið þér hann?
Lisa lokaði augunum. Ég
held það ekki lengur út, hugs-
aði hún, allt þetta nöldur og
spurningar. — Ég hef ekkert
hugsað um það, laug hún.
— Ég skil ekki unga fólkið
nú til dags, sagði frú Allain
hægt. — Þegar Ernest biðlaði
til mín, var enginn vafi á því,
að við vildum giftast.
„Biðlaði" hugsaði Lísa og
reyndi að sjá það fyrir sér, dró
fram fyrir hugskotsjónir sínar
mynd af gamaldags verönd og
brakandi hengisófa. Orð eldast
eins og athafnir, hugsaði hún
undrandi. Pilsin verða ýmist
styttri eða lengri, víðari eða
þrengri. Gömul orðtæki og til-
finningar verða úrelt, hæfa
ekki lengur.
Hún gat næstum heyrt
hrærða rödd gamla Allains, er
hann sagði, „ljúfan mín, gæzk-
an mín“, orð sem einhvern
veginn tilheyrðu liðnum tíma.
— Það er svo undarlegt,
þetta að verða gamall, sagði
frú Allain. — Það gerist svo
fljótt. Þegar maður er ungur,
heldur maður að það vari að
eilífu. En það er þannig, að
maður lætur gabbast og sér
ekki sjálfan sig í réttu ljósi, af
því maður er alltaf ó’oreyttur
— hið innra með sér.
— Hvað sögðuð þér? sagði
Lísa og leit undrandi á hana.
— Maður breytist aldrei,
hið innra með sér, endurtók
frú Allain. Hún talaði hægt og
röddin var þreytuleg. — Ég
hef aldrei sagt neinum þetta.
Það hljómar svo heimskulega,
eins og maður sé ímyndunar-
veikur. Eftir að ég giftist og
eignaðist börn fann ég bara
hvernig árin liðu, við það að
ég sá börnin stálpast. En hið
innra með mér breyttist ég
ekki. Eins og ég væri alltaf
nítján ára. Auðvitað vissi ég
að ég væri að eldast, en ég
varð raunverulega ekki viss um
það, fyrr en ég skoðaði sjálfá
mig með athygli í spegli einn
góðan veðurdag og sá allt i
einu andlit gamallar konu. Ég
bara gat ekki trúað því.
Lísa starði á hana. Að inni
í þessum gamla líkama væri
enn þá ung, nítján ára stúlka,
sem varð ástfangin í Ernest
sinum...
— Ég elska hann, sagði Lísa
allt í einu, eins og hún væri
að trúa jafnöldru sinni fyrir
leyndarmáli. — Ég veit ekki,
hvernig tilfinningar hann ber
til mín. Hann er alltaf giæsi-
legur og aðlaðandi. En það er
eins og alltaf sé glerveggur
milli okkar. Ég næ ekki inn
til hans!
Frú Allain stundi. — Það
sem á að gerast, gerist. Þannig
gengur það alltaf til.
Öll gömlu orðatiltækin, hugs-
aði Anna og fann til einnkenni-
legs léttis. Öll gömlu huYtökin,
sem fólk hefur svo mikl? trölla-
trú á.
Henni létti, þegar laa inirinn
kom inn, og var þakkiát vfir
tilbreytingunni. Handan s'-erm-
anna, sem settir höfðu vrtið
upp kringum rúm gömlu frú
Allain heyrði hún tuldrandi
raddir á meðan gamla konan
var rannsökuð.
En hvað lakið var svalt og
hvað það var gott að vera aftur
komin upp í þægilega rúmið!
Lísa teygði úr sér. Hún leit á
skermana, sem enn umluktu
rúmið hinum megin. f heilan
mánuð hafði frú Allain lcgið
þar og einblínt upp í loftið,
út um gluggann og á potta-
blómið, sem hún var svo hrædd
um að myndi deyja. „Líkaminn
eldist, en hið innra með sér er
maður alveg óbreyttur . .
Frú Allain hafðj versnað.
Lísa sá það á svip læknisins,
þegar hann loks ýtti skermun-
um til hliðar og á áhyggjufullu
andliti hjúkrunarkonunnar.
Framh. á bls. 36.
Kæri Astró!
Mig langar til að vita eitt-
hvað um framtíðina og leita
þess vegna til þín.
Ég hef undanfarið verið með
strák, sem er fæddur ......en
svo er annar sem er fæddur....
Geturðu nokkuð sagt mér í
sambandi við þá. Hvenær gift-
ist ég? Ég hef dálítinn áhuga
á að fara til Danmerkur og
læra snyrtingu, heldurðu að það
verði eitthvað af því. Viltu svo
gjöra svo vel að sleppa fæðing-
ardegi, mánuði, ári, stund og
stað. Með fyrirfram þakklæti.
Rósa.
Svar til Rósu:
Ég mundi ekki ráðleggja þér
að dvelja erlendis til náms eða
dvalar þar eð Neptún er í
níunda húsi. Þú mundir lenda
í mörgum lítt fyrirsjáanlegum
erfiðleikum. Neptún í níunda
húsi dregur athygli fólks að
hinni duldu hlið tilverunnar og
trúarbrögðum, einnig að þú
hefur óvenjulega andlega hæfi-
leika. Þú hefur tilhneigingar til
að slita þig algjörlega frá rétt,-
trúnni.
Venus í tólfta húsi: í vissum
skilningi er þessi afstaða frem-
ur mótsagnakennd, því hún
bendir til þess að þú eigir bæði
leyndar gleðistundir og sorgir
á sviði ástamálanna. Afstaðan
bendir til að leynd ástasambönd
skipist, en einnig að kringum-
stæðurnar krefjist þeirrar fórn-
ar af hendi manns að ástasam-
bandið verði að rjúfa til vel-
ferðar hinum aðilanum. Eða
eins og sagt er þá er Venus hér
tákn ástar í meinum. Venus hér
gefur listræna hæíileika, sem
hægt væri að nota við sérgrein
eins og snyríingu eða hár-
greiðslu. Venus hér bendir til
þess að varfærni sé þörf í sam-
bandi við þátttöku þína í
skemmtanalífinu, sérstaklega
ef um risnuskemmtanir er að
ræða með viðskiptavinurn. Þar
eð tólfta hús stendur að nokkru
leyti fyrir óvináttu, þá muntu
kenna á slíku aðnllega fyrir
sakir aðgtrða kvenna út af af-
brýði í þinn garð og að ein-
hverju leyti mun tilfinninga-
hiti þinn koma þarna við sögu.
Sólin í merki Vogarinnar er
hagstæð afstaða fyrir þann, sem
hefur áhuga á að r.ema snyrt-
ingu, hárgreiðslu eða allt yfir-
leitt, sem viðkemur fegrunar-
starfsgreinunum.
Þú hefur mjög hagstæðar af-
stöður í tíunda húsi, en það
bendir til þess að þú ættir að
taka fyrir eitthvað sérfag, því
í slíku starfi mundi þér vegna
mjög vel, sérstaklega sakir
handlagni þinnar.
Úranus í sjöunda húsi bendir
til þess að á ýmsu muni ganga
í hjónabandi þinu. Venjulega er
stofnað til hjónabands undii
þessum áhrifum vegna skyndi-
hrifningar, sem venjulega end-
ar með sama hiaða og tu var
stofnað. Þér er því brýn nauð-
syn að fara að með sérstakri
gát á sviði ástamálanna og ættir
þú að leggja mest upp úr langri
trúlofun, þannig að þú vitir að
hverju þú gengur og tilvonandi
maki þinn einnig. Einnig er þér
nauðsyn að gæta vel tilfinninga-
lífs þíns því það er mjög rikt
og ástríðufullt en slíkt gæti
borið af sér ótmabæra ávexti.
Pilturinn, sem fæddur er 5.
október mundi eiga betur við
þig heldur en sá er þú gazt
einnig um.
★
FALK.I NN
31