Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1964, Page 5

Fálkinn - 13.07.1964, Page 5
ég held að ég geri engum rangt undir höfði þótt ég segi að þarna hafi á köflum ekki verið leikin verri knattspyrna en á Laugardalsvellinum. En það var annað sem heillaði mig. Þessir ungu drengir léku leik- inn af miklu meiri ánægju en þeir stóru. Mér virðist oft eins og hinir stóru væru leiðir og nenntu varla að dunda þetta við boltann. Og nú er það helzta ánægja mín á kvöldin að fara út og horfa á drengina leika sér. Og ég vil ráðleggja mönnum eindregið til að gera þetta. Þeir verða ekki fyrir von- brigðum. Það þori ég að ábyrgj- ast. Knattspyrnuunnandi. Svar til Dúdda: Láttu eins og eklcert hafi komiö fyrir og gættu þess aö enginn merki á þér neinn leiöa. Þú liefur fariö gætilega aö ráöi þínu og ekki er ólíklegt aö þú eigir eftir aö uypskera nokkurn ávöxt af þvi. Hvaö seinni spurninguna viökemur þá ættir þú aö hugleiöa öll máls- atvik vel áöur en þú rœöst i nokkrar framkvæmdir. Börn á götunni. Kæri Fálki! Þið birtið oft bréf um alls kyns þjóðfélagsvandamál og nú langar mig til að minnast á eitt slíkt, að vísu margrætt. Það er leikur barnanna á götunni. Er ómögulegt að koma í veg fyrir hann? Árlega verða banaslys vegna hans, og hvert mannslíf er mikils virði hjá fámennri þjóð eins og okkur. Er ekki óhætt að leggja í talsverðan kostnað til að kippa þessum málum í lag, Hvernig væri að bæta við lögregluna menn, sem hefðu eftirlit með þessum mál- um og gefa svo út lög, sem heimiluðu að sekta þá foreldra, sem eiga þessi börn. Ég er nefnilega sannfærður um, að orsökin til alls þessa er ein- faldlega trassaskapur foreldr- anna og ekkert annað. Þau banna ekki börnunum að leika sér á götunni. Og mér er nær að halda, að sumir reykvískir foreldrar yrðu fljótari að taka við sér, ef buddan yrði í hættu en þó þeir sofandi viti að líf barna þeirra séu í hættu. Jón. 'Svar: Þessi uppástunga þín er nú vist • ekki alveg i samræmi viö grund- ivallarreglur islenzkra laga i þess- um efnum, en okkur finnst hún sam t hreint ekki svo vitlaus og lcannski er liún i rétta átt. Eitt er~ víst, aö mannslifiö er okkur dýrt. Lélcgar kvikmyndir. Kæri Fálki! Geturðu _sagt mér, hvers vegna kvikmyndirnar í kvik- myndahúsunum hérna um þessar mundir eru svona ótta- lega lélegar, með aðeins örfáum undantekningum? Það voru ágætar myndir í flestum bíó- unum í vetur, og maður var farinn að vonast eftir, að áfram- hald yrði á þessu, en nú virðist allt sækja í sama horfið og fyrr. Kvikmyndaunnandi. Svar: Þessi tími árs einkennist m. a. af lélegum myndum í kvikmynda- húsunum, og er þaö aö nokkru leyti skiljanlegt. Kvikmyndahúsin hér veröa ávallt aö taka mikiö af lélegum myndum til þess aö fá þcer góöu, og einhvern tíma veröur aö sýna þær flestar. A þess- um árstíma fer fólk lítiö í bíð, einkum þegar veöurbliöan er eins og nú. Þaö er því ekki nema von aö kvikmyndahúsin noti fremur þann tíma til aö sýna lélegu mynd- irnar en bíöa meö þær skárri, þangaö til aösókn fer aö aukast. Svo getum viö glatt þig meö því, aö strax i haust munu a. m. k. sum kvikmyndahúsin taka margar ágætar myndir til sýningar, svo þú skalt bara hlakka til! Áframhaldandi hreinsun. Háttvirti Fálki! Mig langar til að skrifa þér vegna hreinsunar þeirrar, sem fram hefur farið á vegum borg- arinnar undanfarið, vegna af- mælis lýðveldisins. Hún er allra góðra gjalda verð, og mér dett- ur ekki í hug að amast út i hana. En það þarf bara að vera áframhald á henni. Það eru alltaf til trassar, og þeir sem hafa orðið að borga núna stór- ar upphæðir fyrir hreinsun á lóðunum, láta sér ábyggilega ekki segjast. Þeir safna drasl- inu jafnóðum fyrir aftur. Það þarf að taka til hjá svona körlum alltaf af og til og láta þá borga rækilega fyrir hreins- unina. Borgari. Svar: Viö erum þér alveg sammála. Hvor cr eldri?- Kæri Fálki! Getur þú ekki skorið úr deilu- máli hjá okkur. Við erum að rífast um það hvor sé eldri Ringo Star eða Presley. Okkur kæmi vel ef þú gætir svarað okkur sem allra fyrst. ERT. Svar: Presley mun vera all nokkru eldri en Ringo Star. JOMI iiiitliKækiA með 6 mismunandi munn- stykk|um ávalt fyrirliggjandi. Tækið nuddar með vibration sem gengur inn í vöðvana. (ZOMi JOMI hitaiiudd|iuðinn nuddar einnig með vibraton Þessi taeki eru ómissandi á hverju heimili og eru hentug tækifærisgjöf. BORGAHFELL H.F. Laugaveg 18 -- Sími 11372 Daglega umgangist Þér fjölda fólks Framleitt medeinkaleyfi'LINDAh I Akureyri BYÐUR FRISKANDI BRAGÐ OG BÆTIR RÖDDINA. FÁLKINN 5

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.