Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1964, Blaðsíða 12

Fálkinn - 13.07.1964, Blaðsíða 12
JÖN GÍSLASON ill kostur höfðingjaseturs á miðöldum, þar sem ala varð marga hesta á hverjum vetri, til langferða og annarra ferða- laga. Skálholt hafði til að bera marga kosti til þess að vera aðalaðsetursstaður kirkjuhöfðingja íslands. Það var staðsett í blómlegasta héraði íslands, þar sem fjölmenn- asta byggð landsins var umhverfis. Gissuri biskupi ísieifs- syni hefur auðvitað verið það mjög hugþekkt, að Skál- holt yrði gert að biskupsstóli, því jörðin hafði verið í eigu ættar hans, móður hans og föður. En þrátt fyrir það var Skálholt ekki hið raunverulega ættaróðal langfeðga hans, heldur Mosfell í Grímsnesi. Mosfell var sízt minni bú- jörð eða höfðingjasetur en Skálholt. Ef til vill er staðar- legra á Mosfelli en Skálholti. En annað réði um val Skál- holts sem biskupsstóls, þó sagnamenn okkar og annálaritar- ar geti þess ekki af eðlilegum ástæðum. Gissur biskup vissi vei, við hverju mætti búast, ef til ófriðar dræi í landinu milli leikmanna og kirkjunnar eða jafnvel innan kirkjunnar sjálfrar. Vegna þess valdi hann Skálholt sem biskupssetur. Skuiu nú raktir helztu kostir Skálholts sem höfðingja- seturs á miðöldum, auk þeirra er þegar hafa verið greindir. Eins og þegár var getið, kynntist Gissur biskup á náms- árum sínum og í vígsluför ófriðnum er ríkti, jafnt innan kirkjunnar sjálfrar og milli hinna veraldlegu höfðingja, konunga, keisara og páfa. Framsýnn og hygginn höfðingi eins og Gissur biskup hlaut því að sjá, að _slíkur ófriður myndi er stundir líða verða einnig á íslandi. Vegna þess hlaut hann að velja biskupssetri landsins aðsetursstað, þar | sem væri torsótt til hans um herfarir. Og slíkur staður I var einmitt í landnámi langfeðga hans, Mosfellinga. Sá staður var Skálholt. Það hafði til að bera flesta þá kosti, | sem höfðingjasetur á miðöldum þurfti að hafa. Það er öruggt, að margir voldugir og drottnandi höfðingjar i Norð-j urálfu, hefðu mátt öfunda Skálholtsbiskup af aðsetri hansö Skulu nú raktir höfuðkostir Skálholts sem aðseturs- staður höfðingja á miðöldum. Skálholtsstaður er umkringdur vötnum á þrjá vegu, að austan, sunnan og vestan. En að norðan eru óbyggðir, toi- farnar, sakir fjalla, vatna og gróðurleysis. Árnar sem að- skilja Skálholt frá næstu sveitum, eru illar yfirferðar á nær : því hverjum árstíma sem er. Á þeim eru fá vöð, og öll . torfarin og nær því útilokað að færa þar yfir herflokka, þó þaukunnugir menn fari með forsjá. Frá Skálholti er víðsýnt um næsta nágrenni, og auðvelt að fylgjast með mannaferðum um hérað og koma skjótum boðum heim til f' staðarins, ef ófrið bæri að, og jafnframt að safna liði úr í næsta nágrenni, er liðsafnað þurfi að gera til varnar. Allir þessir kostir, er taldir hafa verið, eru miklir frá sjónar- miði höfðingja miðalda, en skulu nú að nokkru skilgreindir nánar, þó ekki verði farið nákvæmlega í smáatriði. Framhald á bls. 31. Fyrsti biskupsstóll landsins var settur í Skálholti í Biskupstungum. ísleifur biskup Gissurarson hins hvíta á Mosfelli var íslandsbiskup, án þess að hafa í raun réttri fastan aðsetursstað, lögbundinn, þó hann byggi í Skálholti. Sonur hans Gissur varð biskup íslands að föður sínum látn- um. Hann var mikill stjórnmálamaður og höfðingi ágætur. Hann nam skólalærdóm eins og faðir hans suður í Sax- landi. í þann mund er Gissur biskup ísleifSson var við nám, var ófriðvænlegt og sundurþykki mikið milli Þýzka- landskeisara og páfa. Höfðingjar veraldlegir og forustu- menn kirkjunnar skiptust í flokka, sama gegndi um klerka og leikmenn. Ófriður var á stundum milli hinna andstæðu stefna. Höfðingjar hvorutveggja urðu að vera við öllu búnir. Þeir urðu á stundum að halda her manns og víggirða aðsetursstaði sína. Gissur biskup varð því vel kunnugur þvi ástandi, er ríkti í þessum efnum, jafnt á námsárum sínum og þegár hánn fór í vígsluförina. Hann hlaut því að verða vitandi þess, hivers vænta mætti, ef til líkrar sundrungar kæmi á íslandi. Hann var fylgismaður páfa- stefnunnár, en hún hélt fram auknum yfirráðum kirkjunnar um málefni andíeg og eignum kirkjunnar. Stjórn hans á Islenzku kirkjunni var mótuð í anda goðorðaskipunar þjóðveldisins, og varð þjóðleg og holl sjálfstæði landsins. Hann mótaði fjárhagskerfi kirkjunnar með setningu tíundar- laganna, og gerði kirkjuna að ríkustu og voldugustu stofn- un landsins. Eftir að Dalla, móðir Gissurar biskups andaðist, fékk hann Skálhölt til fullra umráða og eignar. Ein af hugsjónum kirkjunnar var öreigasjónarmiðið. Kirkjuhnarmenn áttu helzt að eiga sem minnstar eignir, jafnt jarðeignir og lausa- fé. Þessi hugsjón samrýmdist illa hugsunarhætti íslend- inga og annarra Norðurlandabúa. Valdamenn kirkjunnar í norrænum löndum urðu margir hverjir vellauðugir menn, jafnt í jarðeignum og lausu fé. Gissur biskup hefur ef til vill viljað sýna í verki, að hann væri ekki um of auð- gjarn. Hann gaf kirkjunni jörðina Skálholt og meiri auð, og lét lögtaka á alþingi, að stóll biskups skyldi þar vera. Þannig varð Skálholt lögtekið biskupssetur og var þar biskup til ársins 1785, en þá var stóllinn fluttur til Reykja- víkur. Én þegar biskupsstóll var fluttur úr Skálholti, var hið forna fjárhagskerfi stólsins hrunið að grunni, og í raun réttri stefna Gissurar biskups ísleifssonar í hagræn- um efnum kirkjunnar liðin undir lok. Hún hafði staðist strauma aldanna, og var lengur við lýði en nokkur önnur stefna í fjármálum og skipulagsháttum, en þekkzt hefur hér á landi. Sýnir það fremur öðru framsýni og stjórnmála- hæfileika hins mikla leiðtoga, Gissurar biskups Ísleiíssonar. Skálholt er sæmileg bújörð, landstór fremur, en fólks- frek til nytja. Þar eru slægjur góðar, jafnt á túnum og á engjum. Jörðin er mikil heyskaparjörð. En slíkt var mik-

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.